Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 26

Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarson ai@mbl.is Það myndi enginn lá John Speight það ef hann væri ögn stressaður fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstkomandi fimmtudag. Mikið er jú í húfi, því hljómsveitin mun þar frumflytja fimmtu sinfón- íu Johns og segir hann að fyrsti flutningur verks sé alltaf sá mik- ilvægasti: „Ef illa gengur þegar verk er flutt í fyrsta skipti getur það eyðilagt framtíð verksins,“ út- skýrir hann, en bætir við að stjórnendur gæti þess yfirleitt að vanda sig alveg sérstaklega þegar þeir fá glænýtt verk í hendurnar og séu duglegir að spyrja tón- skáldið spurninga ef einhver vafa- atriði koma í ljós. „Stundum eru stjórnendurnir með betri hugmynd en tónskáldið – og þá er um að gera að gera eins og þeir leggja til,“ útskýrir John og minnir á að tónskáld verði að leyfa flinkum stjórn- endum að vinna vinnuna sína. „Frægt er að Stravinsky var mjög í mun að stjórna flutningi eigin verka, nema hvað hann var ekkert sérstaklega góður stjórnandi og var það ekki fyrr en Robert Craft – sem var miklu betri stjórnandi – kom til sögunnar að verk Stravin- skys fengu að njóta sín eins og þau áttu að gera.“ Anna-Maria Helsing er stjórn- andi á tónleikum fimmtudagsins en auk verks Johns flytur sinfón- íuhljómsveitin Tokkötu eftir Kar- ólínu Eiríksdóttur, Illumine eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Sinfóníu nr. 2 eftir Þorstein Hauksson. Tækifærin biðu á Íslandi John Speight fæddist í Bret- landi en örlaganornirnar ákváðu að flétta saman þræði hans og Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur pí- anóleikara á meðan þau voru bæði við nám í Guildhall-tónlistarhá- skólanum. „Við giftum okkur á Ís- landi 1969 og ákváðum að flytja frá Bretlandi til að setjast hér að árið 1972,“ segir John og bendir á að á þeim tíma hafi aðstæður fyrir ungt tónlistarfólk verið á marga vegu betri á Íslandi en í Bret- landi: „Vandinn við menningarlífið í London á þessum tíma var að það var mjög lokað: aðeins smár hópur fólks hafði réttu samböndin og fékk að halda tónleika og erfitt að brjótast inn á tónlistarsenuna. Á Íslandi var annað upp á ten- ingnum og ef maður vildi halda tónleika var minnsta mál að panta sal, auglýsa og gera viðburðinn að veruleika.“ John varð 74 ára gamall í febr- úar og segir hann að þessi tæpa hálfa öld á Íslandi hafi verið af- skaplega ánægjulegur tími fyrir þau hjónin, sem eiga núna að baki langan feril tónsmíða, tónlistar- flutnings og kennslu – og eign- uðust í leiðinni tvo syni og heilan verk. Hann segir það hafa orðið sér til happs að kynnast Jóni Nor- dal fljótlega eftir flutninginn frá Bretlandi. „Það var hann sem hvatti mig til að semja stærri verk en ég hafði gert fram að því, og því honum að þakka – eða kenna – að ég gerði mína fyrstu sinfóníu,“ útskýrir John og hlær. Að semja heila sinfóníu er meiriháttar afrek og segir John að fyrsta sinfónían hafi orðið til á rösklega einu ári. „Sú fimmta var sjö ár á leiðinni, en skýrist af því að ég tók mér hlé inn á milli til að sinna öðrum verkefnum.“ Það er krefjandi að semja nýja sinfóníu, en um leið skemmtileg Sinfónía þarf að innihalda lífið allt  Í nýrri sinfóníu minnist tónskáldið John Speight félaga sem hafa fallið frá  Hann líkir því að semja sinfóníu við að skrifa bók, en verkið var sjö ár í smíðum skara barnabarna svo að núna eru, auk Johns, 11 manns á listum Þjóðskrár sem bera Speight- eftirnafnið. Ímyndunaraflið fær að ráða Er óhætt að segja að John hafi nýtt tímann á Íslandi vel og verið duglegur að senda frá sér ný tón- Ferill John sér ekki eftir að hafa flutt til Íslands snemma á 8. áratugnum. „Vandinn við menningar- lífið í London á þessum tíma var að það var mjög lok- að: aðeins smár hópur fólks hafði réttu samböndin og fékk að halda tónleika, og erfitt að brjótast inn á tón- listarsenuna. Á Íslandi var annað upp á teningnum.“ 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Færeyingar veittu tónlistarverðlaun sín í fyrrakvöld í hinu glæsilega Norðurlandahúsi í höfuðstaðnum Þórshöfn og féllu flest verðlaun í skaut dómsdagsmálmsveitinni Hamferð og tónlistarkonunni Ei- vöru Pálsdóttur, sem er Íslend- ingum að góðu kunn. Verðlaunahátíðin var með svipuðu sniði og Íslensku tónlistarverðlaun- in; tónlistaratriði flutt með reglu- legu millibili milli verðlaunaafhend- inga og meðal þeirra sem léku fyrir gesti var einn þekktasti og farsæl- asti tónlistarmaður Færeyja, Teitur Lassen, sem á nú býsna langan feril að baki og hefur leikið í fjölda landa. Teitur heillaði gesti með fallegri söngrödd sinni, píanó- og fiðluleik og hlaut auk þess tvenn verðlaun þetta kvöld, fyrir lag ársins í flokki rokk- og popptónlistar, „Sara“, og sem besti sólólistamaður í sama flokki. Alls hlaut Teitur fjórar til- nefningar. Tónlistarlífið er blómlegt í Fær- eyjum og tónlistin fjölbreytt eins og sjá mátti af tilnefningunum í ár. Hin mjög svo drungalega Hamferð hlaut þrenn verðlaun og nýtur hún mikilla vinsælda innan lands sem utan. Verðlaunin hlaut hún fyrir karl- söngvara ársins, Jón Aldará, fyrir lagatexta ársins og framleiðanda ársins, Theodor Kapnas. Og fleiri verðlaun runnu til svart- málmsins því hljómsveitin Svart- málm hlaut verðlaun fyrir best hannaða plötuumslagið, umslag sinnar fyrstu plötu sem er samnefnd sveitinni. Umslagið prýðir drunga- leg og afar vel gerð dúk- eða trérista eftir myndlistarkonuna Elinborgu Lützen (1919-1995) en umslagið hannaði Uni Árting. Verðlaunuð fyrir tónlist við sjónvarpsþætti Íslandsvinurinn Eivør Pálsdóttir hlaut jafnmörg verðlaun og Ham- ferð þetta kvöld en var fjarri góðu gamni og þurfti því að þakka fyrir sig með myndbandi. Verðlaunin Eivör og Ham- ferð sigursæl  Færeysku tónlistarverðlaunin voru afhent í Þórshöfn í fyrrakvöld Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.