Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 1
Andri Yrkill Valsson
Jón Birgir Eiríksson
Sigríður Á. Andersen lýsti því yfir í gær að
hún muni stíga úr stóli dómsmálaráðherra.
Ákvörðunin er tekin í kjölfar þess að Mann-
réttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm er
varðaði m.a. dómaraskipun hennar í Lands-
rétt. Sigríður boðaði til blaðamannafundar í
dómsmálaráðuneytinu í gær þar sem hún lýsti
sýn sinni á málið og tilkynnti síðan um ákvörð-
un sína. Sigríður sagðist standa föst á þeirri
skoðun að dómurinn hafi ekki gefið tilefni til
afsagnar hennar sem dómsmálaráðherra. Hún
hafi ákveðið að stíga til hliðar eftir að hafa
skynjað að persóna hennar kynni að trufla þær
ákvarðanir sem teknar yrðu í ráðuneytinu.
Að sögn Birgis Ármannssonar, þingflokks-
formanns Sjálfstæðisflokks, kom ákvörðunin
þingflokknum á óvart „með vissum hætti,“ en
Sigríður hafði ekki kynnt ákvörðun sína fyrir
þingflokknum. Hann segir þingflokkinn reikna
með því að hún taki aftur við embætti. „Hún
Dómsmálaráðherra víkur
Formenn stjórnarflokkanna
lýstu stuðningi við Sigríði í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþingi Ákvörðun um það hver eftirmaður Sigríðar Andersen verður í dómsmálaráðuneytinu er í höndum Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, en hann studdi ákvörðun Sigríðar í gær.
nýtur trausts þingflokksins í hvívetna þó að við
virðum þessa ákvörðun,“ sagði hann.
Þá lýstu formenn hinna stjórnarflokkanna
tveggja yfir stuðningi við ákvörðun Sigríðar.
Boðað hefur verið til ríkisráðsfundar á
Bessastöðum í dag klukkan fjögur vegna af-
sagnar Sigríðar. Útlit er fyrir að eftirmaður
Sigríðar komi úr þingflokki sjálfstæðismanna
eða úr hópi ráðherra flokksins, að því er fram
kom í máli Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, í gær, en ákvörðun um
þetta er í hans höndum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði
það eðlilegt að dómnum verði vísað til yfirrétt-
ar Mannréttindadómstólsins og að niðurstaða
dómsins sé fordæmalaus.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, formaður Dóm-
arafélags Íslands, segir að boltinn sé hjá
stjórnvöldum og Alþingi hvað framtíð Lands-
réttar varðar og það óvissuástand sem dómur
Mannréttindadómstólsins leiddi af sér.
Ákvörðunin kom formanni þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins á óvart
Ríkisráð kemur saman til
fundar á Bessastöðum síðdegis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðuneytið Sigríður Andersen vék úr ráðherrastóli, en verður áfram þingmaður Sjálfstæðisflokks. MVíkur vegna Landsréttarmálsins »2, 4, 36
F I M M T U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 62. tölublað 107. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS ÆPANDI VERKEFNI
EKKI SAMA
HVAÐAN PEN-
INGAR KOMA
LEIKRITIÐ SÚPER EFTIR JÓN GNARR 56 VIÐSKIPTAMOGGINN12 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
360° snúningur | Innbyggður fótaskemill
Hallanlegt bak | Stillanlegur höfuðpúðiWizar
HÆGINDASTÓLL
Fyrir lífsins ljúfu stundir.
Efni: Leður/tau
20% AFSLÁTTUR
Verð: 159.920
Fullt verð: 199.900