Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 4

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Veður víða um heim 13.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 slydda Hólar í Dýrafirði 2 skýjað Akureyri 2 alskýjað Egilsstaðir 2 alskýjað Vatnsskarðshólar 1 slydda Nuuk -8 léttskýjað Þórshöfn 4 skýjað Ósló 2 skúrir Kaupmannahöfn 5 skúrir Stokkhólmur 2 rigning Helsinki -1 skýjað Lúxemborg 5 rigning Brussel 8 skúrir Dublin 8 skúrir Glasgow 7 rigning London 9 skúrir París 10 skúrir Amsterdam 9 rigning Hamborg 6 skúrir Berlín 8 léttskýjað Vín 7 skýjað Moskva -3 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt Madríd 13 léttskýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 11 skýjað Róm 11 súld Aþena 9 léttskýjað Winnipeg -5 skýjað Montreal 0 rigning New York 5 heiðskírt Chicago 7 alskýjað  14. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:50 19:25 ÍSAFJÖRÐUR 7:57 19:28 SIGLUFJÖRÐUR 7:40 19:11 DJÚPIVOGUR 7:20 18:54 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á föstudag Austan 5-13, en 13-18 syðst. Él, einkum við S-strönd, þurrt á Vestfjörðum og N-landi. Á laugardag Austanátt, skýjað með köflum og dálít- il él A-lands og við S-ströndina. Víða austan 8-13, en 13-18 við SA-ströndina fram yfir hádegi. Él um landið A-vert og slydda eða snjókoma með köflum SV- og V-lands, en þurrt á NV-landi. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Kynntu þér afsláttarþrep Orkunnar á orkan.is. Nú eru allar 55 stöðvar Orkunnar þínar stöðvar. Nú hafa alls átta íslenskir ráð- herrar sjálfir beðist lausnar frá embættum sínum í tengslum við umdeild mál. Flestir þeirra vegna harðrar gagnrýni á störf þeirra, en þó ekki allir. Sigríður Á. Andersen er önnur konan til að segja af sér. Afsagnir frá upphafi 1923 Sagði af sér sem fjármála- ráðherra vegna ásakana um spill- ingu. Magnús var ráðherra utan flokka. Magnús Jónsson 1932 Sagði af sér sem dómsmálaráðherra árið 1932 eftir að hafa stuðlað að ólöglegri eignatilfærslu til heildsala sem varð svo gjaldþrota. Magnús Guðmundsson 1987 Sagði af sér sem iðnaðarráðherra eftir að hafa vantalið tekjur til skatts á ní- unda áratugnum. Albert Guðmundsson 1994 Baðst lausnar úr embætti félagsmála- ráðherra í kjölfar skýrslu ríkisendur- skoðunar um embætt- isverk hans. Guðmundur Árni Stefánsson 2009 Ögmundur baðst lausnar úr emb- ætti heilbrigðis- ráðherra vegna ágreinings innan ríkisstjórnar Samfylkingar og VG um Icesave-málið. Ögmundur Jónasson 2014 Sagði af sér sem innanríkisráðherra í kjölfar þess að Leka- málið svonefnda kom upp. Hanna Birna Kristjánsdóttir 2009 Sagði af sér sem viðskiptaráð- herra til að axla ábyrgð sína á því sem miður fór í kjölfar bankahrunsins. Björgvin G. Sigurðsson 2019 Sagði af sér sem dómsmálaráðherra vegna Landsréttar- málsins svonefnda, í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í því. Sigríður Á. Andersen Andri Yrkill Valsson Jón Birgir Eiríksson Sigríður Á. Andersen dómsmálaráð- herra tilkynnti í gær að hún myndi stíga til hliðar sem ráðherra í kjölfar þess að Mannréttindadómstóll Evr- ópu (MDE) kvað upp dóm sinn í tengslum við Landsréttarmálið svo- nefnda. Sigríður kvaðst munu stíga til hliðar á meðan málið yrði til lykta leitt, en hún mun áfram sitja sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Um hádegi var boðað til ríkis- stjórnarfundar klukkan fjögur síð- degis þar sem til stóð að dómur MDE yrði ræddur. Um tveimur tímum síð- ar var boðað til blaðamannafundar í dómsmálaráðuneytinu þar sem ráð- herrann lýsti sýn sinni á málið og lýsti yfir ákvörðun sinni. Fundur ríkis- stjórnarinnar var í framhaldinu af- boðaður. „Hinn pólitíski veruleiki“ Í samtali við mbl.is í gær kvaðst Sigríður standa föst á þeirri skoðun sinni að dómurinn gæfi ekki tilefni til afsagnar hennar sem dómsmálaráð- herra. Hún hefði tekið ákvörðun um að stíga til hliðar í gær eftir að hafa skynjað að persóna hennar kynni að trufla þær ákvarðanir sem teknar yrðu í ráðuneytinu. Sigríður sagði að með ákvörðun sinni vildi hún skapa vinnufrið svo takast mætti á við málið innan dómsmálaráðuneytisins. Ákvörðun hennar tæki mið af hinum pólitíska veruleika, en ekki þeim lög- fræðilega. „Þetta er hinn pólitíski veruleiki. Ég ann dómstólunum of mikið til þess að láta það gerast að menn kunni að hengja sig á það að ég hafi haft aðkomu að þeim ákvörðun- um sem þar verða teknar,“ sagði hún. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra kvaðst í samtali við fjölmiðla styðja ákvörðun Sigríðar. „Ég styð ákvörðun ráðherrans sem stígur til hliðar til þess að tryggja vinnufrið um þetta mikilvæga mál. Þannig axlar hún ábyrgð á því að hægt sé að leiða það til lykta,“ sagði hún og kvaðst taka dóm MDE mjög alvarlega. „Ég setti fram mína gagnrýni í upphafi þessa máls. Sú breyting hefur orðið á núna að dómur Mannréttindadóm- stólsins hefur það víðtækar afleiðing- ar á stöðu Landsréttar að þess vegna styð ég ákvörðun ráðherra að stíga til hliðar,“ sagði hún. Katrín sagði það eðlilegt að dómn- um yrði vísað til yfirréttar og að nið- urstaðan væri fordæmalaus. Útilokar ekki endurkomu Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokks, tók í sama streng og Katrín og kvað Framsóknarmenn styðja ákvörðun ráðherrans. Enginn þrýstingur hefði þó verið á ráðherrann að segja af sér. „Þessi dómur er alveg fordæma- laus og þess vegna kallar hann á að honum verði áfrýjað. Það hefur kom- ið fram að þetta gæti haft áhrif á aðr- ar Evrópuþjóðir og því tel ég eðlileg- ast að áfrýja og vinna í okkar málum á meðan. Við tökum úrskurðinn al- varlega og vinnum úr því að eyða hér allri réttaróvissu,“ sagði hann í sam- tali við mbl.is. „Það er mikilvægt á öllum tímum að ríkisstjórnir komi fram með skyn- sömum hætti. Ég tel að við séum að gera það hér og ráðherra tekur þessa ákvörðun að sínu frumkvæði. Hér voru uppi óvissutímar og ráð- herra axlar ábyrgð,“ sagði hann, en kvaðst þó ekki vita hver næstu skref yrðu í ríkisstjórninni. Aðspurður sagðist hann ekki vilja útiloka að Sigríður ætti afturkvæmt í ríkisstjórn. „Ég vil alls ekki útiloka það að það gerist, ef áfrýjunardóm- stóllinn kemst að annarri niðurstöðu en meirihluti Mannréttindadóm- stólsins. Ég tel að þessi ákvörðun hennar sé málinu í heild til góða. Hún stígur til hliðar svo enginn vafi sé á varðandi dómsvaldið,“ sagði Sigurður Ingi. Framhaldið í höndum Bjarna Sigríður sagði það í höndum Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, hver tæki við sem dómsmálaráðherra og að sú ákvörðun yrði tekin í samráði við þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Bjarni sagði tvo kosti í stöðunni við skipun nýs ráðherra. Annaðhvort yrði einhver ráðherra ríkisstjórnarinnar fenginn til þess að gegna embættinu eða einhver úr þingflokki Sjálfstæð- isflokks taki við embættinu. „Ég hef staðið með Sigríði Ander- sen í hverju skrefi sem hún hefur tek- ið í þessu máli,“ sagði hann um ákvörðun hennar. „Þessir flokkar sem starfa saman núna hafa mjög mikla trú á þessu stjórnarsamstarfi. Þegar við setjumst saman niður og ræðum stöðu eins og þá sem nú er komin upp þá hugsum við fyrst og fremst að fá frið til að leiða vandasöm verkefni til lykta,“ sagði hann. Bjarni var harðorður í garð Mann- réttindadómstólsins hvað varðar dóminn frá því í fyrradag. „Mér finnst mikilvægt að við velt- um upp þeirri spurningu hvort við höfum framselt túlkunarvald yfir ís- lenskum lögum til Evrópu. Ég hélt ekki. Eitt af stóru álitamálunum yfir þessum dómi snýr að því hvar hann dregur mörkin í afskiptum af niður- stöðum í aðildarríkjum,“ sagði hann. Víkur vegna Landsréttarmálsins  Sigríður Á. Andersen stígur úr ráðherrastóli  Endurkoma ekki útilokuð  Vildi stuðla að vinnufriði  Formenn stjórnarflokkanna vilja vísa til yfirréttar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stígur til hliðar Sigríður Á. Andersen tilkynnti um ákvörðun sína á blaðamannafundi í dómsmálaráðuneytinu. „Hún var ekki búin að kynna þetta fyrir okkur með neinum hætti. En hún er, samkvæmt orðanna hljóðan, að stíga til hliðar um tíma þótt enginn geti sagt með nákvæmum hætti hversu langur sá tími verður,“ segir Birgir Ármanns- son, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og vísar til ákvörðunar Sigríð- ar Á. Andersen þess efnis að stíga tímabundið til hliðar úr embætti dóms- málaráðherra. „Við reiknum bara með því að hún muni taka aftur við embætti og hún nýtur trausts þingflokksins í hvívetna þó að við virðum þessa ákvörð- un.“ Spurður hvort ákvörðun Sigríðar hafi komið honum og þingflokknum á óvart kveður Birgir já við. „Með vissum hætti, já. En auðvitað áttaði maður sig á því að þetta var eitt af því sem gat gerst í stöðunni,“ segir hann. khj@mbl.is Nýtur trausts þingflokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.