Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Kjarasamningar félaga leik- og grunnskóla- kennara munu losna 30. júní og er undirbún- ingur hafinn að því að móta kröfugerðir þeirra. Samningar Félags framhaldsskólakennara losna í lok þessa mánaðar og eru viðræður fé- lagsins við ríkið hafnar. Félögin eru þau lang- stærstu innan Kennarasambands Íslands, með hátt í 9.000 félagsmenn, og formenn þeirra eru sammála um að talsverðra kjarabóta sé þörf. Félag leikskólakennara hefur staðið fyrir kjarafundum víða um land undanfarnar vikur. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir að það sem helst hafi komið fram á fundunum sé að leikskólakenn- arar vilji að laun þeirra verði samkeppnisfær við aðra háskólamenntaða sérfræðinga á markaði. „Það kemur svo sem ekkert á óvart,“ segir Haraldur. „Tölur Hagstofu sýna að það er 63% munur á meðaldagvinnulaunum sér- fræðinga sem starfa hjá sveitarfélögunum, þ.m.t. leikskólakennara og sérfræðinga á al- menna vinnumarkaðnum. Munurinn á milli sérfræðinga hjá sveitarfélögunum og hjá rík- inu er svo 20%. Það er býsna mikill munur.“ Viðræður gætu hafist 21. apríl Annað sem Haraldur segir að hafi verið rætt á fundunum sé að brýnt sé að leiðrétta starfs- aðstæður á milli skólastiga. Hann segir of snemmt að ræða um áherslur kröfugerðar fé- lagsins og vill ekki nefna neinar launatölur í þessu sambandi. „Við viljum fyrst heyra hvað fólki finnst skipta máli,“ segir hann. Viðræður leik- og grunnskólakennarafélag- anna við viðsemjanda sinn, sem er Samband ís- lenskra sveitarfélaga, hefjast í fyrsta lagi tíu vikum áður en samningar renna út, sem er 30. júní, viðræður gætu þá hafist 21. apríl. Að sögn Haraldar hefur sambandið óskað eftir því að félögin verði í samfloti hvað launalið viðræðn- anna varðar og hefur Félag leikskólakennara lýst sig reiðubúið til þess. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir að fyrir liggi að taka þurfi á ýmsum málum í komandi kjara- samningum sem ekki hafi verið gengið frá sem skyldi í þeim síðustu. „Meðal annars jafnræði til launa, þ.e. að skoðað verði hvernig hægt sé að jafna laun umsjónar- og sérgreinakennara,“ segir Þorgerður en samkvæmt núverandi kjarasamningum er kennurum greitt sérstak- lega fyrir umsjón með nemendum, en sér- greinakennarar fá engar slíkar greiðslur. Skil- greina þurfi umsjón sérstaklega, ekki síst hvað varðar tíma til verkefna sem falla undir um- sjónarkennara. „Svo liggur ljóst fyrir að það þarf að finna leiðir til að jafna laun á milli al- menna og opinbera markaðarins, það lá fyrir þegar lífeyrissjóðafrumvarpið var samþykkt og lífeyrisréttindin jöfnuð á milli þessara hópa,“ segir Þorgerður. Félagið hyggur á sambærilega fundaherferð og Félag leikskólakennara hefur verið í og hefst hún í næstu viku. Þorgerður segir að kröfugerð sé í mótun og mikilvægt sé að heyra hvað brenni á kennurum víða um land. „Við fylgjumst grannt með því sem er að gerast á al- menna vinnumarkaðnum núna og það sem mun gerast þar mun að einhverju leyti móta línuna, þó að við séum auðvitað ekki skuld- bundin af því sem þar verður ákveðið.“ Ekki farin að ræða launaliðinn Kjarasamningar framhaldsskólakennara losna í lok þessa mánaðar, ásamt samningum 151 stéttarfélags. Guðríður Arnardóttir, for- maður Félags framhaldsskólakennara, segir að samninganefndir félagsins og viðsemjand- ans, sem er ríkið, hafi þegar fundað þrisvar og fjórði fundurinn er fyrirhugaður í næstu viku. „Við höfum rætt ýmis tæknileg mál, eins og t.d. hvernig hægt sé að koma til móts við unga kennara og gera starfsaðstæður þeirra meira aðlaðandi þannig að þeir haldist í starfi. Við höfum líka rætt um starfsaðstæður og skipulag almennt, en erum ekki enn farin að ræða launaliðinn,“ segir Guðríður. Hún segir að framhaldsskólakennarar, líkt og aðrir hópar í samfélaginu, horfi til þess sem nú er að gerast á almenna markaðnum. „Það er satt best að segja ekkert sérlega mikil ástæða til bjartsýni þegar maður horfir á það sem þar er að gerast.“ Spurð hverjar launakröfur félagsins séu seg- ist Guðríður ekki vilja gefa þær upp. „Ekki annað en að við tökum undir áherslur BHM um að menntun verði metin til launa. En ég tel að okkar kröfur séu fremur sanngjarnar og við myndum gjarnan vilja fara að ganga frá samn- ingum.“ Morgunblaðið/ÞÖK Skólamál Formenn þriggja stærstu kennarafélaganna eru sammála um að kjarabóta sé þörf. Kennarafélögin undirbúa kröfugerð  Samningarnir renna út í lok mars og júní Þorgerður Diðriksdóttir Haraldur Gíslason Guðríður Arnardóttir LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500 Range Rover Sport HSE PHEV Verð frá: 13.690.000 kr. Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti. Verið velkomin í reynsluakstur! RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ Í RANGE ROVER www.landrover.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 7 3 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is 3.900 nemendur í 9. bekk í 149 skól- um þreyttu samræmd próf í ís- lensku, stærðfræði og ensku fyrr í þessari viku. Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri matssviðs Mennta- málastofnunar, segir próftökuna hafa gengið „glimrandi vel“ og að engir hnökrar hafi komið upp eins og í fyrra þegar villa í netþjónum stofn- unarinnar olli því að sumir nemend- anna komust ekki inn í rafræna prófakerfið til að taka prófið. „Það eina sem kom upp var að rafmagn og netsamband fór af Grunnskólanum á Þórshöfn þegar krakkarnir þar tóku enskuprófið,“ segir Sverrir. Þetta er annað árið í röð sem sam- ræmd próf eru lögð fyrir nemendur í 9. bekk á þessum tíma árs. Áður voru prófin lögð fyrir nemendur í 10. bekk og um tíma voru þau notuð af framhaldsskólunum til að meta um- sóknir nemenda inn í þá. Árið 2008 voru gerðar breytingar á prófunum og tilgangur þeirra að vera til upp- lýsingar fyrir nemendur og skóla. „Eftir breytinguna eru prófin frem- ur nýtt til þess að meta hvernig nem- andanum gengur í hverjum náms- þætti fyrir sig og meta hvað þurfi að gera til að bæta stöðuna ef þess er þörf,“ segir Sverrir. Í hverju þessara þriggja prófa voru tvær útgáfur og réð hending hvora þeirra nemendur fengu. Próf- in eru tekin rafrænt og er röð verk- efna ekki alltaf sú sama. Þá var skól- um í sjálfsvald sett á hvaða tíma prófin voru lögð fyrir á milli 8 og 17. Er samræmt próf ekki rangnefni fyrir próf ef til eru tvær útgáfur af því og það lagt fyrir á mismunandi tímum? „Prófatriðin eru samræmd. Við berum saman spurningar úr prófaútgáfunum tveimur og okkar niðurstaða er að þau séu algerlega samræmd, þó það sé ekki verið að spyrja um nákvæmlega það sama,“ segir Sverrir. Nemendur höfðu 150 mínútur til að leysa prófið og að sögn Sverris var meðalpróftími í fyrri tveimur prófunum, sem voru íslenska og stærðfræði 74 mínútur. Um 30% nemenda sóttu um lengdan próftíma og upplestur vegna m.a. lesblindu, kvíða og námserfiðleika, en aðeins lítill hluti þeirra nýtti sér úrræðið þegar kom að því að taka prófið. Samræmd próf hafa verið gagn- rýnd m.a. á þeim forsendum að þau stjórni kennsluháttum meira eða minna í þeim árgöngum sem þau eru lögð fyrir, því skólar leggi mikið upp úr því að koma vel út í samanburði við aðra skóla. Spurður hvort prófin geri yfirhöfuð nokkurt gagn segist Sverrir vera sannfærður um að þau séu góð aðferð til að meta stöðu hvers og eins. „Við vitum að krakk- arnir eru mjög upptekin af þessum prófum og vilja standa sig vel. En það er okkar tilfinning að það hefur dregið úr því að kennslan miði alfar- ið við þessi próf. Þessi próf eru bara púsl í stórri mynd sem er skólaganga nemandans.“ Krakkarnir voru yfirvegaðir Ásdís Hrönn Viðarsdóttir, skóla- stjóri Grunnskólans á Þórshöfn, seg- ir að þeir 8 nemendur, sem sátu við og tóku samræmt enskupróf í gær- morgun hafi tekið því með yfirvegun þegar netsamband og rafmagn fór af þorpinu. „Við fullorðna fólkið stress- uðumst meira yfir þessu en krakk- arnir,“ segir Ásdís. Hún segir að þegar þetta gerðist hafi um hálftími verið liðinn af próf- tökutímanum. Þau svör, sem nem- endur voru búnir að skrifa í próf sín vistuðust, þannig að ekkert glataðist við uppákomuna. „Þetta var búið að ganga of vel, það hlaut eitthvað að koma upp á,“ segir Ásdís og hlær. Þau samræmdu gengu „glimrandi vel“  3.500 í 149 skólum  Net- og raf- magnslaust á Þórshöfn í miðju prófi Í prófi Fyrirlögn samræmdra prófa í 9. bekk gekk með ágætum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.