Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 8

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Stundum er gott að rifja upp, jafn-vel hluti, sem þegar hafa verið rifjaðir upp. Fyrir rúmu ári birtist frétt á mbl.is undir fyrirsögninni „Viðreisn stöðvaði lista dómnefnd- ar“. Þar er vitnað í orð Hönnu Katrínar Friðriksson, sem þá var þingflokks- formaður Við- reisnar, á opnum fundi þingflokksins í júní 2017: „Það vor- um við sem rákum hana til baka vegna þess að við hefðum ekki hleypt fyrri list- anum í gegn.“    Þarna var HannaKatrín að tala um lista dómnefndar yfir þá sem hún taldi hæfasta til að gegna embættum dómara við Landsrétt. Skipa þurfti 15 dómara og taldi nefndin 15 hæfa, 10 karla og fimm konur, og gaf því dómsmálaráðherra ekkert svigrúm. Sú afgreiðsla nefndarinnar og hugs- anleg misbeiting á umboði sem hratt í raun þeirri atburðarás af stað, sem í gær leiddi til þess að Sigríður And- ersen steig til hliðar, hefur merki- lega litla umfjöllun fengið.    Fleiri gagnrýndu listann á sínumtíma og ræddu við dómsmála- ráðherra, þar á meðal Benedikt Jó- hannesson, þáverandi formaður Við- reisnar og fjármálaráðherra, Óttar Proppé, þáverandi formaður Bjartr- ar framtíðar og heilbrigðisráðherra, og Þorsteinn Víglundsson, þingmað- ur Viðreisnar og þáverandi félags- og jafnréttismálaráðherra.    Það var sem sagt ástæða til aðgera hana afturreka með listann, en engin ástæða til að styðja hana þegar við því var orðið. Þess í stað var málið persónugert í henni. Tækifærismennska eða gullfiska- minni? Hanna Katrín Friðriksson „Við … rákum hana til baka“ STAKSTEINAR Þorsteinn Víglundsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Nettoline fær 5 stjörnur frá dönskum gagnrýnendum styrkur - ending - gæði Eldhúsinnréttingar hÁgÆÐa dansKar OpiÐ: Mán. - fim. kl. 09 til 18 Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15 úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag Sérstakt átak verður gert á sam- félagsmiðlum á Írlandi og í nálægum löndum um næstu helgi vegna leit- arinnar að Jóni Þresti Jónssyni. Hann hvarf sporlaust í Dublin 9. febrúar síðastliðinn og hefur leit engan árangur borið til þessa. „Það hefur ekkert komið enn fram sem hjálpar okkur mikið. Meðan svo er eru ekki forsendur fyrir stórri leit,“ sagði Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar. Hann kom heim frá Ír- landi í gær eftir samtals nærri mán- aðardvöl þar ytra. Móðir Jóns, unn- usta hans og bróðir eru enn á Írlandi. Búið er að útiloka að Jón Þröstur hafi farið upp í tiltekinn leigubíl. Ábending þess efnis hafði borist til lögreglunnar og þótti hún nokkuð áreiðanleg. Bíllinn fannst og reynd- ist ekki fótur fyrir ábendingunni. Lögreglan setti upp vegartálma um síðustu helgi og stöðvaði alla leigu- bíla sem óku um götuna þar sem Jón Þröstur sást síðast. Eftir skoðun á gögnum úr myndavélum og eftir- grennslan lögreglunnar á svæðinu eru taldar miklar líkur á að Jón Þröstur hafi farið upp í eitthvert ökutæki, leigubíl eða annað. Davíð sagði írsku lögregluna ekki hafa gefist upp á leitinni, hún legði mikla vinnu í hana. gudni@mbl.is Átak á írskum samfélagsmiðlum  Búið að útiloka að Jón Þröstur hafi farið upp í tiltekinn leigubíl í Dublin Ljósmynd/Aðsend Írland Jón Þröstur Jónsson hvarf sporlaust í Dublin 9. febrúar. Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram nýtt frumvarp á samráðsgátt stjórnvalda þar sem brugðist er við dómum Hæstaréttar sem féllu í desember og vörðuðu út- hlutun aflaheimilda í makríl á ár- unum 2011 til 2014. Með dómunum var viðurkennd skaðabótaábyrgð ís- lenska ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga, en talið var að skip- um þeirra hefði verið úthlutað minni aflaheimildum en skylt var sam- kvæmt lögum. Með frumvarpinu er lagt til að aflamarksstjórn verði tekin upp við veiðar á makríl en fram til þessa hef- ur stjórn veiða á stofninum lotið reglugerðum ráðherra og leyfum frá Fiskistofu, sem sett hafa verið til eins árs í senn. Einn af fjórum valkostum Eins og fjallað var um í Við- skiptaMogganum sl. fimmtudag benti starfshópur, sem fenginn var til að fara yfir þýðingu dómanna, á fjóra valkosti sem helst kæmu til greina að málavöxtum virtum. Einn þeirra var sá að ráðherra yrði veitt heimild til að miða veiðireynslu við lengra tímabil, við úthlutun afla- heimilda, en samkvæmt gildandi lög- um, á sama hátt og gert hafi verið við úthlutun aflaheimilda fyrir norsk-íslenska síldarstofninn. Athygli vekur að starfshópurinn nefndi í skýrslu sinni að segja mætti að rétt væri að horfa á heildarveiði- reynslu frá árinu 2005 eða 2006 til ársloka 2017, yrði þessi kostur fyrir valinu. Samkvæmt texta frumvarps- ins á Fiskistofa hins vegar að út- hluta einstökum skipum afla- hlutdeild í makríl á grundvelli tíu bestu aflareynsluára þeirra á ár- inum 2008-2018, að báðum árum meðtöldum. Ráðherra bregst við makríldómunum  Miðað við afla- reynslu 2008-2018  Mælt var með 2005/2006-2017 Morgunblaðið/Árni Sæberg Makríll Dómarnir féllu í desember.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.