Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Síðustu vikur eru neikvæðir at-
burðir nánast komnir á biblískan
skala um plágurnar sjö. Eitt af
klassísku fréttagildunum er þegar
eitthvað fer úrskeiðis eða er nei-
kvætt,“ segir Birgir Guðmundsson,
dósent við Háskólann á Akureyri.
Hann segir að eðli máls samkvæmt
sé sagt frá því þegar mislingar komi
upp, loðnubrestur verði, dómskerfið
hrynji eða flugfélög lendi í vanda.
Slík mál tikki í box hinna klassíku
fréttagilda og það sé oft sagt að góð-
ar fréttir séu engar fréttir. Birgir
segir að sjálfsögðu tikki inn í frétta-
boxin þegar eitthvað jákvætt sé í
gangi en það sé sjaldgæfara í veru-
leikanum.
„Það hefur verið mikið af stórum
og neikvæðum fréttum á síðustu
vikum og mánuðum til viðbótar því
sem gerst hefur í lággróðrinum,
skvaldrinu á samfélagsmiðlunum,“
segir Birgir sem bendir á að hefð-
bundin fréttagildi ríki ekki á sam-
félagsmiðlunum heldur sé meira
sagt frá hlutum sem snerta fólk,
persónulegar harmsögur eða ein-
hver mál sem veki tilfinningaleg við-
brögð. Það skipti meira máli að fara
af stað og dreifa einhverju sem
hugsanlega kalli á hneykslun og
reiði heldur en það sem skipti al-
menning máli.
Hampa því góða
„Það er mikilvægt og áhugavert
að fjalla um hvernig neikvæðar
fréttir fanga frekar athygli okkar en
jákvæðar og hvaða áhrif þær hafa.
Það er erfitt að segja hvað veldur
því að neikvæðar fréttir hafa verið
viðvarandi í lengri tíma. Erfiðleikar
í atvinnu- og efnahagslífi eru hluti af
skýringunni en það er margt annað í
gangi,“ segir Erla Björnsdóttir, sál-
fræðingur og doktor í líf- og lækna-
vísindum, sem bendir á að jákvæð
eða neikvæð umræða geti haft áhrif
á líðan okkar. Neikvæð umræða út
um allt þjóðfélag hafi áhrif og fólk
þurfi að hafa meira fyrir því að vera
jákvætt.
Erla segir mikilvægt að ein-
staklingar taki eftir því sem vel sé
gert og hampi því í stað þess að ein-
blína á hið neikvæða.
Meira um tilfinningar
á samfélagsmiðlum
Birgir segir að á samfélags-
miðlum skipti meira máli að setja
fram mál sem snerti tilfinningar
fólks frekar en heyskaparhorfur,
aflabrögð eða vísitölufréttir sem
hafi verið helstu fréttir fyrir 20 ár-
um.
„Fréttir fjölmiðla um það sem
helst fer úrskeiðis vekja tilfinningar,
hneykslun og reiði og eru algengur
hvati fyrir deilingu á samfélags-
miðlum. Í þessu umhverfi verður öll
umræða þrúguð af neikvæðni en
margir ungir notendur samfélags-
miðla vega þar upp á móti með því
að dreifa miklu af krúttlegum kisu-
myndum,“ segir Birgir, sem bendir
á að ábyrgð ritstýrðra fjölmiðla sé
meiri en áður og mikilvægari. Þrátt
fyrir allt þurfi alltaf að vera til botn
þar sem menn geta spyrnt niður
fæti í upplýsingaflórunni. Að það
séu einhvers staðar upplýsingar
sem hugsanlega sé hægt að treysta.
Í óritstýrða upplýsingaflæðinu, á
skvaldrinu og samfélagsmiðlum sé
aldrei hægt að vera viss um hvað sé
satt og rétt og þar séu allar upplýs-
ingar jafn gildar og auðvelt sé að
menga upplýsingaflæðið. Birgir seg-
ir neikvæða umræðu samspil
margra þátta. Auðvitað eigi fjöl-
miðlar sína sök og þar sé ansi oft
margt neikvætt í gangi. Heimurinn
sé oft grár og neikvæður en hann
geti líka verið skemmtilegur eins til
dæmis þegar vel gangi í handbolta
og fótbolta.
Áreitið orðið meira
„Áreitið er meira í dag en það var
fyrir nokkrum árum eða áratugum.
Áreitið er alls staðar og við fáum
hvergi frið. Umræðan er á sam-
félagsmiðlunum, í útvarpinu í bíln-
um, á kaffistofunni og víðar,“ segir
Erla sem bendir á að einstaklingar
verði að hefja breytingar á nei-
kvæðni hjá sjálfum sér og vera með-
vitaðir um hvernig þeir sjálfir tala
út á við í umræðunni.
Erla telur að margir séu ekki
meðvitaðir um það hvernig þeir
hugsi og hvort þeir hafi almennt nei-
kvætt eða jákvætt viðhorf. Það sé
því oft gott að skoða eigin orðræðu.
„Það eru að mörgu leyti forrétt-
indi að búa í íslensku samfélagi,
þrátt fyrir erfitt veðurfar og ýmis-
legt sem mætti betur fara. Við verð-
um að tala um þá hluti sem miður
fara í samfélagi okkar en megum
ekki láta umræðuna yfirtaka okkur
eða gleyma því hvaða áhrif við get-
um haft á hana,“ segir Erla sem tel-
ur eðlilegt að einstaklingar brynji
sig fyrir umræðunni og velji sér við-
horf. Erla segir að eintaklingur hafi
alltaf val. Hann geti valið hvort
hann horfi jákvætt eða neikvætt á
hlutina. Það sé ótrúlega mikið vald
sem gleymist stundum. Eintakling-
ur geti spurt sig hvort hann sjái
hlutina sem vandamál eða hvort
hann hugsi þá í lausnum.
„Það er nauðsynlegt að tileinka
sér jákvætt viðhorf og þakklæti og
innræta börnum það í uppvext-
inum,“ segir Erla og bætir við að
það sé hollt að einblína á það sem
einstaklingurinn hafi en ekki á það
sem hann hafi ekki eða vildi hafa.
Erla segir neikvæða orðræðu ekki
hafa góð áhrif á börn. Það þurfi að
gæta þess að hræða ekki börn með
hræðsluáróðri eða kasta því fram í
hálfkæringi að hér sé allt að fara til
fjandans.
Neikvæð umræða hefur áhrif
Mörg stór og erfið mál í helstu fréttum að undanförnu Fólk þarf að hafa meira fyrir því að vera
jákvætt Krúttlegar kisumyndir vega upp umræðu þrúgaða af neikvæðni á samfélagsmiðlum
Morgunblaðið/Eggert
Fjölmiðlar Helstu fréttamál síðustu vikna og mánaða hafa verið heldur neikvæð og af nógu hefur verið að taka.
Í fréttum er þetta helst
» Verkföll og vinnudeilur.
» Óvissa í ferðaþjónustu.
» WOW berst fyrir lífi sínu.
» Icelandair kyrrsetur Boeing-
flugvélar vegna galla.
» Réttaróvissa eftir úrskurð-
inn í Strassborg.
» Milljarðatap vegna loðnu-
brests, lítill kolmunni.
» Hælisleitendur mótmæla.
» Mislingasmit komið upp.
» Mygla í skólum.
» Braggamálið í borginni.
Héraðsdómur
Norðurlands
eystra hefur
dæmt karlmann í
þriggja mánaða
skilorðsbundið
fangelsi fyrir
þjófnað og fjár-
svik.
Í nóvember á
síðasta ári stal maðurinn veski úr
yfirhöfn í fatahengi og notaði síðan
greiðslukort, sem hann tók úr vesk-
inu, til að kaupa matvæli og vörur í
verslunum. En sama daginn og
maðurinn stal veskinu var hann
dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir þjófnað og
fjársvik sem hann hafði framið áð-
ur.
Segir í dómnum nú, að ekki hafi
verið bókað klukkan hvað fyrri
dómurinn var kveðinn upp. Verði
maðurinn að njóta vafans af því og
sé því miðað við að hann hafi fram-
ið brot sín áður en hinn fyrri dómur
var kveðinn upp. Verði honum því
dæmdur hegningarauki, sem sam-
svari þeirri þyngingu refsingar-
innar sem kynni að hafa orðið ef
dæmt hefði verið um öll brotin í
fyrra málinu. Var því bætt einum
skilorðsbundnum mánuði við fyrri
refsingu mannsins.
Stal veski og
var dæmdur
sama dag
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
La Mollla - ítölsk hönnun frá Tiziana Redavid
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum