Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Karlakór Hreppamanna stendur fyrir
hagyrðingakvöldi í félagsheimili
Hrunamanna á Flúðum nú á laugar-
dagskvöldið, 16. mars, kl. 20. Þar
mætir landslið íslenskra hagyrðinga
og reyna menn þá að kveða hver ann-
an í kútinn. Lið Sunnlendinga skipa
Sigurjón Jónsson, Magnús Halldórs-
son og Gylfi Þorkelsson sem er hirð-
skáld Karlakórs Hreppamanna. Lið
Norðanmanna skipa þeir Pétur Pét-
ursson, Jóhannes Sigfússon og Reyn-
ir Hjartarson. Með þeim kemur svo
Birgir Sveinbjörnsson sem stýrir
samkomunni. Sérstakir gestir eru fé-
lagar úr Karlakór Kjalnesinga.
„Það verður skemmtilegt að fá
skáld í heimsókn. Við Hreppamenn
hlökkum til að fá þessa góðu gesti,“
segir Aðalsteinn Þorgeirsson, bóndi á
Hrafnkelsstöðum. Hann hefur verið
einn liðsmanna karlakórsins góða frá
stofnun hans, árið 1997, og er for-
maður skemmtinefndar. Starfið í
kórnum segir hann vera öflugt og
skemmtilegt. Nú séu framundan hag-
yrðingakvöld, vortónleikar og Fær-
eyjaferð í apríl.
Hagyrðingakvöld á Flúðum á laugardagskvöld
Gylfi
Þorkelsson
Jóhannes
Sigfússon
Landsliðið kveður í kútinn
Von er á um 250 söngglöðum krökkum
víða af landinu á Landsmót barna- og
unglingakóra sem haldið verður á
Akranesi um helgina. Mótið er á vegum
Tónmenntakennarafélags Íslands og
KórÍs – Landssamtaka barna- og ung-
dómskóra á Íslandi og nú er komið að
Akranesi sem mótsstað. Það er eldri
hópur Skólakórs Grundaskóla sem er
gestgjafakór í ár og stjórnandi kórsins,
Valgerður Jónsdóttir, heldur utan um
skipulag og framkvæmd mótsins.
Um helgina munu krakkarnir sem
eru frá 5. bekk grunnskóla og uppúr
vinna saman í söngsmiðjum og halda
svo lokatónleika í Grundaskóla á
sunnudaginn og hefjast þeir kl. 13.30.
Flestir eru kórarnir af Suður- og Vest-
urlandi en nokkrir þeirra koma lengra
að, til að mynda frá Akureyri. Áhersla
er lögð á að tengja mótið við bæjarlífið
á Skaganum og munu kórar meðal
annars syngja Dvalarheimilinu Höfða
og í Akraneskirkju. Þá eru lokatón-
leikarnir öllum opnir.
Tónlistin sem unnið verður með er
að hluta til eftir Skagafólk en leitað var
til tónlistarfólks og kennara á Akranesi
um tillegg. Á mótinu æfa kórarnir sam-
an nýtt tónverk eftir Elínu Gunnlaugs-
dóttur, verkið heitir Fögnuður og var
samið serstaklega fyrir mótið.
Landsmót barna- og unglingakóra á Akranesi um helgina
Skaginn ómar af fallegum söng
Mislingar er mjög smit-andi veirusjúkdómursem einkennist af hitaog útbrotum um allan
líkamann. Alla jafna eru mislingar
mildur sjúkdómur hjá börnum en
allt að 1% þeirra sem sýkjast fær
alvarlega fylgikvilla svo sem heila-
bólgu eða lungnabólgu og það getur
jafnvel valdið dauða.
Mislingar voru algengur sjúk-
dómur á meðal barna hér á árum
áður. Eftir að farið var að bólusetja
gegn honum hefur dregið mjög úr
algengi hans í hinum vestræna
heimi. Þrátt fyrir að bóluefni við
mislingum sé bæði öruggt og ódýrt
drógu mislingar yfir 110.000 manns
til dauða í heiminum árið 2017, að
stærstum hluta börn yngri en fimm
ára. Árið 2000 fengu um það bil
72% barna í heiminum bólusetningu
við mislingum við eins árs aldur en
árið 2017 var hlutfallið komið í 85%.
Smitleiðir og meðgöngutími
Mislingaveiran er mjög smitandi
og berst milli manna með úða frá
öndunarfærum (til dæmis hósta og
hnerra). Veiran getur lifað og valdið
smiti í allt að tvær klukkustundir
eftir að hún berst út í andrúms-
loftið. Einstaklingur sem smitast af
mislingum getur smitað aðra 6 dög-
um eftir að hann smitast og í allt að
21 dag frá því hann smitast. Ein-
staklingur sem hefur hugsanlega
smitast af mislingum þarf því að
vera í sóttkví á þessum tíma.
Ef einhver er í hættu á að smit-
ast eftir návígi við veikan ein-
stakling er möguleiki á að koma í
veg fyrir sjúkdóminn, eða gera
sjúkdóminn vægari, ef bólusetning
fer fram innan 72 klukkustunda frá
mögulegu smiti.
Einkenni sjúkdómsins
Einkenni mislinga koma fram um
10-12 dögum eftir smit og geta ver-
ið mismikil eftir einstaklingum. Þau
byrja oft með flensulíkum einkenn-
um það er hita, nefrennsli, sviða í
augum, hósta, bólgnum eitlum og
höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi
veikindanna koma fram útbrot sem
ná yfir allan líkamann og standa í
3-4 daga eða þar til sjúkdómurinn
fer að réna.
Mislingaveiran getur verið
hættuleg og jafnvel valdið dauða.
Alvarlegir sjúkdómar eins og
eyrna- eða lungnabólga, kviðverkir,
uppköst, niðurgangur og einnig
heilabólga geta verið afleiðing misl-
inga.
Alvarlegar heilaskemmdir af
völdum mislinga geta einnig komið
fram mörgum mánuðum eftir sýk-
inguna.
Hringja á heilsugæsluna
Einkenni mislinga geta verið lík
ýmsum öðrum sjúkdómum, rétt er
að hafa samband við heilsugæsluna
til að fá ráðgjöf og staðfestingu á að
um mislinga sé að ræða. Ekki er
ráðlagt að koma á heilsugæsluna,
heldur hringja á viðkomandi heilsu-
gæslustöð eða í símann 1700 sem er
alltaf opinn.
Engin sérstök lyf eru til við misl-
ingum. Hitalækkandi lyf geta hjálp-
að sjúklingnum að líða betur. Mikil-
vægt að tryggja hvíld, vökvainntöku
og næringu. Sýklalyf gagnast lítið
gegn mislingum, þó getur verið
nauðsynlegt að meðhöndla sýkingar
sem eru afleiðingar af sjálfum sjúk-
dómnum með sýklalyfjum.
Halda sjúkdómi frá landinu
Bólusetning gegn mislingum gef-
ur um 95% vörn. Þátttaka á Íslandi
í bólusetningu gegn mislingum hef-
ur verið með ágætum á und-
anförnum árum eða tæplega 95%.
Foreldrar eru hvattir til að halda
áfram góðri þátttöku í bólusetn-
ingum því aðeins á þann hátt má
halda þessum alvarlega smit-
sjúkdómi frá landinu. Börn eru
bólusett 18 mánaða og rétt er að
fara varlega í ferðalög með óbólu-
sett börn til landa þar sem hætta er
á smiti. En hvernig veit fólk hvort
það hefur fengið bólusetningu. Þeir
sem eru fæddir eftir 1975 eru lík-
legast bólusettir nema foreldrar
þeirra hafi hafnað bólusetningu.
Allir fengu bólusetningarskírteini
sem oft eru til í fórum foreldra
þeirra. Ef bólusetning er skráð í
kringum 12 ára aldur er það líkleg-
ast mislingabólusetning.
Hægt er að sjá bólusetningar
sem gefnar voru eftir að farið var
að skrá bólusetningar í rafrænan
bólusetningargrunn, um það bil í
kringum árið 2000, inn á mínum síð-
um á heilsuvera.is eða á island.is
Getið þið athugað hvort ég hafi
fengið bólsetningu við mislingum?
Og hvort ég sé með eina eða tvær
bólusetningar? Þetta eru algeng-
ustu spurningarnar sem berast til
heilsugæslunnar þessa dagana og
stutta svarið er nei. Eldri bólusetn-
ingarskrár eru ekki aðgengilegar á
heilsugæslustöðvum þar sem þær
eru í geymslum og skjalasöfnum.
Einnig er dýrt og seinlegt að mæla
mótefni. Þess skal getið að fólk með
eina bólusetningu er varið í 93% til-
fella en fólk með tvær bólusetn-
ingar er varið í 97% tilfella.
Allir eru velkomnir í bólusetn-
ingu á heilsugæslustöð. Þeir sem
sérstaklega er höfðað til:
Öll börn á aldrinum 6 mán-
aða-18 mánaða.
Óbólusettir fullorðnir ein-
staklingar fæddir 1970 og síðar.
Þeir sem eiga ekki bólusetn-
ingarkort, minnast hvorki mislinga
né bólusetninga í æsku og eru
fæddir 1970 eða síðar.
Það er skaðlaust að fá bólusetn-
ingu aftur og það er einfaldasta,
ódýrasta og öruggasta leiðin. Ekki
má bólsetja þungaðar konur og fólk
á líftæknilyfjum. Ávallt velkomið að
hringja á þína heilsugæslustöð –
eða símann 1700 – eða netspjall og
fyrirspurnir á heilsuvera.is
Morgunblaðið/Hari
Bólusetning Þúsundir hafa mætt á heilsugæslustöðvar að undanförnu til að fá mislingasprautu sem ætti að varna
því að fólk fái þennan skæða smitsjúkdóm, sem getur haft alvarleg eftirköst sé ekki farið með gát.
Bólusetning gegn mis-
lingum er sterk vörn
Heilsuráð
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar,
og Sigríður Dóra Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri lækninga,
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir
Engin sérstök lyf eru
til við mislingum. Hita-
lækkandi lyf geta
hjálpað sjúklingnum
að líða betur. Mikil-
vægt að tryggja hvíld,
vökvainntöku og nær-
ingu.
Bremsuviðgerðir
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Gran Canaria
Einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga
19. mars í 9 nætur
Frá kr.
99.995
19. mars í 14 nætur
Frá kr.
129.995