Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 21

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Karlarkórinn Heimir í Skagafirði er á leiðinni suður yfir heiðar um komandi helgi í sína árlegu vor- ferð. Að þessu sinni verða þrennir tónleikar haldnir; fyrst í Reykjavík á föstudagskvöldið og síðan verða tvennir tónleikar á Suðurlandi á laugardag. Tónleikarnir í Reykjavík verða í Langholtskirkju kl. 20.30. Þar verður Elmar Gilbertsson söngvari sérstakur gestur Heimismanna og tekur með þeim nokkur lög. Stjórn- andi kórsins er sem fyrr Stefán R. Gíslason og undirleikari Thomas R. Higgerson á píanóið. Forsala á þessa tónleika er á tix.is, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Heimi. Á laugardag verður haldið aust- ur fyrir fjall og byrjað á tónleikum í Skálholtskirkju kl. 13 og síðan verða tónleikar í Selfosskirkju kl. 17. Á þessum tónleikum munu ung- liðar kórsins stíga fram en töluverð kynslóðaskipti eru að eiga sér stað hjá Heimi um þessar mundir. Um fimmtungur kórmanna er undir þrítugu og meðalaldur um 50 ár. Heimir með þrenna tónleika sunnan heiða Ljósmynd/Heimir Heimismenn Mikil endurnýjun hefur verið í karlakórnum. Aldursmunur á yngsta og elsta kórfélaga er 73 ár. Allur akstur með fólk með fatlanir verður sjálfkrafa undanþeginn verkfalls- aðgerðum stétt- arfélagsins Efl- ingar. Bílstjórum sem starfa við slíkan akstur er því heimilt að sinna störfum sínum með óbreyttum hætti. Fyrir- hugað er verkfall bílstjóra hóp- bifreiðafyrirtækja 22., 28. og 29. mars. Fram kemur í tilkynningu frá Eflingu, að undanþágunefnd vegna verkfallsaðgerða Eflingar hafi tek- ið til starfa og muni afgreiða beiðn- ir um undanþágur frá boðuðum verkfallsaðgerðum. Beiðnir þurfi að vera vel rökstuddar með hliðsjón af neyð, mannúðarsjónarmiðum eða stöðu sérstaklega viðkvæmra hópa. Í tilkynningu frá Strætó bs. í gær kom fram, að fyrirhugað verkfall mundi hafa áhrif á fjölmargar akst- ursleiðir Strætó á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Akstur með fatlað fólk verður undan- þeginn verkfalli Ferðaþjónusta fatl- aðra skerðist ekki. Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður haldin um næstu helgi frá kl. 11–18 á laugardag og sunnudag í Veiðisafninu að Eyrar- braut 49 á Stokkseyri. Sýningin er í samvinnu við versl- unina Hlað sem sýnir úrval nýrra skotvopna ásamt sjónaukum, auka- búnaði, hljóðdeyfum og vörum til endurhleðslu skothylkja. Fjölbreytt úrval af haglabyssum, rifflum, skammbyssum, herrifflum og fleiru tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum, er til sýnis. Hartmut Liedtke verður á staðnum með sér- staka kynningu á sjónaukum frá Blaser í Þýskalandi. Þá munu Skotvís og Bogveiðifélag Íslands kynna starfsemi sína. Óskar Elías Sigurðsson uppstoppari er gestur sýningarinnar í ár. gudni@mbl.is Byssusýning 2019 í Veiðisafninu Ljósmynd/Páll Reynisson Veiðisafnið Fjölbreytt sýning um helgina. Friðrik og Guðlaugssundið Rangt var farið með nafn upphafs- manns Guðlaugssundsins svonefnda í blaðinu í gær. Hið rétta er að Frið- rik Ásmundsson átti frumkvæðið að því að minnast afreks Guðlaugs Friðþórssonar sjómanns, ekki Ás- mundur Friðriksson. Beðist er vel- virðingar á þessu. LEIÐRÉTT • B A K A Ð A R • BAKAÐAR OSTAKÖKUR Bökuðu ostakökurnar munu slá í gegn við öll tækifæri. Sem eftirréttur eða í stjörnuhlutverki í kaffiboði eða saumaklúbb. Góðar einar sér og himneskar með berjum og þeyttum rjóma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.