Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenskar gúrkur hafa undanfarna mánuði verið seldar sem sérstök gæðaafurð undir merkjum útflytj- andans, Pure Arc- tic, í stærstu vef- verslun Danmerk- ur fyrir matvæli. Hefur salan geng- ið ágætlega. Nú hefur íslenskt lambakjöt bæst við og er selt und- ir sama vöru- merki í vefversl- uninni. Það er einnig markaðssett sem hágæðaaf- urð. „Dansk-íslenska verslunarráð var með matvælakynningu í Danmörku fyrir þremur árum þar sem íslenskir framleiðendur kynntu afurðir sínar. Þá kom til tals að stofna sprotafyr- irtæki um innflutning og sölu á mat- vælum frá Íslandi,“ segir Sverrir Sverrisson, stjórnarformaður Pure Arctic. Hann stofnaði félagið með dönskum félaga sínum, Jørgen Peter Poulsen, og byrjuðu þeir að ræða við garðyrkjubændur um möguleika á út- flutningi afurða þeirra. Sölufélag garðyrkjumanna ehf. sem annast sölu afurða flestra garð- yrkjubænda kom inn í fyrirtækið ásamt Simply Cooking ApS sem rek- ur matarþjónustu og veitingastaði í Kaupmannahöfn og víðar. Hágæða gúrkur Fyrir valinu varð að byrja á út- flutningi á gúrkum vegna þess að ekki er næg framleiðsla á öðrum afurðum. Nokkuð var flutt út vorið 2018 og stöðugur útflutningur hefur verið frá áramótum, bæði til Danmerkur og Færeyja. Sverrir segir að hægt hefði verið að flytja út meira af gúrkum en framleiðslan ekki verið næg. Hann segir að miðað sé við að sinna þessum markaði á veturna og vorin en verðið falli svo mikið í Danmörku á sumrin að íslenska varan sé enn ekki samkeppnisfær á þeim tíma. Pure Arctic selur mest í gegnum Nemlig.com sem er stærsta vefversl- un Danmerkur í matvælum og er stöðugt að bæta við sig. „Þetta hefur gengið mjög vel. Nemlig.com eru á mikilli uppleið á markaðnum,“ segir Sverrir. Gúrkurnar eru kynntar sem sér- stök gæðaafurð með vísan til íslenskr- ar náttúru og vistvænnar framleiðslu. Sérstaklega er tekið fram að ekki er notað skordýraeitur við framleiðsl- una. Sverrir segir að gúrkurnar hafi komið vel út við bragð- og gæðapróf- anir. Þær haldi gæðum sínum til dæmis mun lengur en spænskar og danskar gúrkur. Þá sé kolefnisspor framleiðslunnar lítið sem ekkert. Meiri möguleikar Íslensku gúrkurnar eru seldar á 10 danskar krónur stykkið hjá Nemlig- .com, 2 krónum dýrari en lífrænt ræktaðar spænskar gúrkur. Lífrænt ræktaðar danskar gúrkur eru hins vegar mun dýrari. Pure Arctic hefur komið sér vel fyrir hjá Nemlig.com, meðal annars með því að vera með sérstakt vef- svæði fyrir vörur sína og Sverrir sér fyrir sér að hægt verði að auka vöru- úrvalið í framtíðinni. Það verði þó að- eins vörur sem standast kröfur fyrir- tækisins um gæði og að vel sé staðið að framleiðslunni, bæði gagnvart náttúru og starfsfólki. Sverrir telur góða möguleika á að selja aðrar tegundir íslensks græn- metis á danska markaðnum. Að ýmsu sé þó að huga. Nefnir hann að varan þurfi að geymast ákveðinn tíma, þoli það að vera flutt út með skipi. Þá sé framleiðsla á ýmsum vænlegum teg- undum takmörkuð hér og dugi ekki fyrir innlendan markað. Nefnir hann tómata í því efni. Einnig kæmi til greina að flytja út ýmsar tegundir af kryddi og salati. „Hér eru framleiddar miklu betri afurðir en við fáum erlendis frá. Það er í sjálfu sér athyglisvert, að það skuli vera hægt á svo norðlægum slóðum að framleiða hágæða matvör- ur, eins og gúrkurnar eru dæmi um. Menn ættu að huga betur að því að skapa garðyrkjubændum betri skil- yrði til framleiðslu á samkeppnishæfu verði fyrir erlenda markaði þar sem eftirspurn eftir okkar gæðavörum á aðeins eftir að aukast,“ segir Sverrir. Fá gott verð fyrir kjötið Ekki er komin mikil reynsla á sölu íslensks lambakjöts frá Kaupfélagi Skagfirðinga sem selt er undir merkj- um Pure Arctic á vef Nemlig.com en Sverrir segir að fyrstu fréttir séu já- kvæðar. „Við höfum lagt áherslu á að bjóða lambakjötið sem hágæða afurð og verðlagt það eftir því. Til að mynda er verðið á íslensku lambalæri um 70% hærra en á lambalæri frá Nýja- Sjálandi,“ segir Sverrir. Selja Danskinum gúrkur og lamb  Íslenskar afurðir markaðssettar sem hágæðaafurðir á Nemlig.com, stærstu vefverslun Danmerkur fyrir matvæli Ljósmynd/Sölufélag garðyrkjumanna Gúrkubændur Hildur Ósk Sigurðardóttir og Helgi Jakobsson í Gufuhlíð eru meðal þeirra garðyrkjubænda sem rækta gúrkur fyrir kröfuharða Dani. Íslenskar afurðir hafa sína hillu í stærstu vefverslun fyrir matvæli í Danmörku. Sverrir Sverrisson Maðurinn sem lést í hesthúsahverfi Hestamannafélagsins Sörla hinn 6. mars síðastliðinn hét Davíð Sigurðs- son. Hann var fæddur 16. mars 1962 og því tæp- lega 57 ára gam- all þegar hann slasaðist við út- reiðar og lést í kjölfarið af áverkum sínum. Davíð var bú- settur í Noregi um skeið ásamt fjölskyldu sinni en vann á Íslandi í vetur meðal ann- ars við tamningar. Davíð lætur eftir sig eiginkonu og fimm börn á aldrinum 17 til 30 ára. Fjölskyldan vill nýta tækifærið og þakka fyrir þann mikla stuðning og hlýhug sem þau hafa mætt í kjölfar þessa áfalls. Sérstakar þakkir fær Hestamannafélagið Sörli, þar sem Davíð var félagsmaður. Sörli sýndi það örlæti að ákveða að skráninga- gjöld mótsins 8. mars síðastliðinn mundu renna óskert til fjölskyld- unnar. Útför Davíðs fer fram frá Grafar- vogskirkju föstudaginn 15. mars kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamleg- ast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á söfnunarsjóð fjölskyldunnar sem ætlaður er til að reisa minnisvarða um Davíð 0130- 15-010650, kt. 220365-4929. Lést í kjölfar slyss við útreiðar í Hafnarfirði Davíð Sigurðsson Flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur að undanförnu þurft að hafa afskipti af nokkrum ferða- löngum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna ölvunar og óspekta. Þannig þurftu lögreglumenn að fjarlægja ölvaðan mann úr flugvél en hann hafði verið með læti og dólgs- hátt um borð. Lögregla tók manninn tali og brást hann þá við með því að kýla lögreglumann í andlitið svo hann datt aftur fyrir sig. Maðurinn var þá handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann reyndist vera eftirlýstur. Annan mann þurfti að taka úr vél, sem var að fara til Stokkhólms, vegna ölvunar. Maðurinn var með læti og hótanir við lögregluna. Í þriðja málinu var um að ræða flugfarþega sem hafði látið ófriðlega í flugi frá Varsjá. Hann hafði drukkið eigið áfengi um borð og ekki farið eft- ir fyrirmælum flugáhafnar, heldur verið ógnandi í tali. Lögregla fylgdi honum í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík og var hann þá orð- inn hinn rólegasti og fór sína leið. Þetta kom fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum en embættið annast löggæslu á Keflavíkurflugvelli. Flugfarþegi kýldi lögreglumann í andlitið Flugstöðin Lög- reglan er á vakt. www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi Margverðlaunuð baðvifta Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A) Innbyggður raka-, hita- og hreyfiskynjari. Vinnur sjálfvirkt 3W Grand Hótel Reykjavík 21.-22. mars Skráning fer fram á www.strandbunadur.is Fimmtudagurinn 21. mars Föstudagurinn 22. mars Heiti málstofa og námskeiðs: • Umhverfis- og öryggismál í sjókvíaeldi • Þróun í fiskeldi • Framfarir í laxeldi • Þörungarækt á Íslandi – Tækifæri í framtíðinni eða iðnaður dagsins í dag? • Salmon Farming in the North Atlantic • Algae Culture Extension Short-course Heiti málstofa: • Meginstraumar í strandbúnaði: Tækifæri til vaxtar • Vinnsla, flutningur og markaðssetning eldisfisks • Áskoranir og tækifæri í skeldýrarækt á Ísland • Tækniþróun – Landeldi • Tækniþróun – Hafeldi Stærsti árlegi vettvangur allra sem starfa í strandbúnaði Afhending gagna 09:00 www.strandbunadur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.