Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 24

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á ársþingi Knattspyrnusam- bandsins í síðasta mánuði var talað um að árið 2019 yrði eðlilegt ár. Hvorki landslið kvenna né karla tækju þátt í stór- móti þetta árið og tekjustreymið yrði í samræmi við það. Klara Bjart- marz, fram- kvæmdastjóri KSÍ, segir að verkefnin séu eigi að síður ærin og rekstraráætlun sé upp á 1.481 millj- ónir króna. Aðhalds hafi verið gætt í útgjaldaáætlun, en nú ætti að gefast betra tóm til að sinna ýmsum mikil- vægum verkefnum. Hún nefnir sem dæmi að nú verði rafrænt miða- sölukerfi tekið í notkun í Pepsi Max og Inkasso-deildum, en KSÍ tekur þátt í því verkefni. Sterk staða KSÍ Til marks um sterka stöðu Knatt- spyrnusaanmbandsins má nefna að óráðstafað eigið fé KSÍ nam um síð- ustu áramót tæplega 750 milljónum króna. Á síðasta stjórnarfundi fyrir ársþing KSÍ í byrjun febrúar var samþykkt að skipa sérstakan starfs- hóp. Verkefni hans verður að gera tillögu til stjórnar um hvert skuli vera markmið KSÍ varðandi óráð- stafað eigið fé og sjóðsstöðu, og hvort rétt sé að lækka eigið fé sam- bandsins út frá niðurstöðum árs- reiknings 2018. Starfshópurinn á einnig að leggja fram tillögur um leiðir ef niður- staðan verður að lækka eigið fé sam- bandsins og hvernig best megi nýta það fjármagn. Hópurinn á að taka til sérstakrar skoðunar sjóðsstöðu og greiðsluflæði sambandsins og verk- efni. Klara segir að það sé tímabært að móta stefnu um það hversu mikið eigið fé sambandið eigi að vera hverju sinni. Hins vegar verði að gæta að því á hvaða tíma ársins tekjur komi frá UEFA og FIFA, en þær eru veigamiklar í rekstri sam- bandsins, og koma oft síðla árs. Sjálfboðaliða vantar víða Aðspurð segir Klara að á ársþingi KSÍ hafi verið talsverð umræða um starf sjálfboðaliða. Meðal skilaboða frá ársþinginu hafi verið ósk um að reynt verði að auka þetta starf og jafnframt að halda í þá sem fyrir eru með því að gera þessi störf meira spennandi. „Þetta er talsverð áskorun á sama tíma og sjálfboðaliða vantar á flest- um sviðum og öll íþróttahreyfingin er að kljást við þetta,“ segir Klara. „Þjóðfélagsbreytingar eru líklegasta skýringin á þessari stöðu og flestir hafa meira en nóg að gera. Við vilj- um þó gjarnan reyna að efla þetta mikilvæga starf og höfum þegar brugðist við með námskeiði fyrir nýtt stjórnarfólk í stjórnum aðild- arfélaga í knattspyrnuhreyfingunni. Það tókst vel og við munum halda þessu áfram til að styrkja fólk í starfi og gera sambandið sýnilegra.“ Allan ársins hring Nefna má að nýlega voru haldnir vinnufundir í höfuðstöðvum KSÍ þar sem m.a. var fjallað um markaðs- og kynningarmál, samfélagsmiðla, framkvæmd og umgjörð leikja. Á fundina mættu 67 fulltrúar frá 23 að- ildarfélögum. Það er liðin tíð að knattspyrnu- vertíðin hefjist með fyrstu leikjum Reykjavíkurmótsins eða sambæri- legum mótum í aprílmánuði. Nú eru einhver mót í gangi innanlands stór- an hluta ársins og landslið eru á ferðinni í flestum mánuðum. Nú þegar er lokið þátttöku kvenna- landsliðsins í Algarve-mótinu og sömuleiðis hafa stúlkurnar í U-19 ára landsliðinu reimað á sig skóna nokkrum sinnum á móti í La Manga á Spáni. Þá lék U-17 karla í Minsk Hvíta Rússlandi. Karlalandsliðið, að mestu skipað leikmönnum sem eru á mála hjá fé- lögum á Íslandi og í Skandinavíu, lék tvo vináttuleiki í Katar í janúar. 22. og 25. mars kemur röðin að karla- landsliðinu í leikjum í undankeppni EM gegn Andorra og Frakklandi. Íslandsmótið hefst síðan í lok apríl- mánaðar. Á skrifstofu KSÍ er leikj- um raðað niður í öllum flokkum landsmótanna, og reyndar fleiri mótum, alls rúmlega 7.600 leikjum. „Eðlilegt ár“ framundan hjá KSÍ  Eigið fé Knattspyrnusambandsins 750 milljónir  Talsverð áskorun að fjölga sjálfboðaliðum Alls er um tugur landsliðsþjálf- ara og aðstoðarþjálfara í fullu starfi hjá KSÍ og eru verkefnin frá A-landsliðunum niður í 15 ára landslið og hæfi leikamótun. Í fyrra léku landslið Íslands alls 89 leiki, karlaliðin 53 og kvenna- liðin 36 leiki. Árangur yngstu stúlkna- liðanna var einstaklega glæsilegur. Boltinn rúllar ... 26.000 knattspyrnuiðk-endur eru skráðir á Íslandi og eru konur um þriðjungur iðkenda. 937 dómarar voru virkir á síð-asta ári og hefur virkum dómurum fækkað á síðustu árum. Útgjöld KSÍ vegna dómgæslu og eftirlits 2018 námu 170 milljónum. 138 beinar sjónvarpsútsendingar voruí fyrra frá leikjum í knattspyrnu- mótum ársins, auk útsendinga frá landsleikj- um og leikjum félagsliða í Evrópumótunum. 390 mörk voru skoruð í Pepsi-deild karla síðastliðiðsumar í leikjunum 132 eða rétt tæplega þrjú mörk í leik. Árið 2018 var skorað 291 mark í leikjunum 90 í Pepsi-deild kvenna, að meðaltali 3,2 mörk í leik. 3 3,2 5.333 var heildarfjöldi KSÍ-leikja í útimótum íknattspyrnu á síðasta ári og sér skrifstofa KSÍ um niðurröðun allra þessara leikja. Leikjum fækkaði um 342 milli ára, einkum vegna fækkunar liða í 5. fl okki drengja. Rekstrartekjur KSÍ námu 2.431 milljón króna í fyrra og rekstrar- kostnaður 1.929 milljónum. Óráðstafað eigið fé KSÍ nam um síðustu áramót tæplega 750 milljónum króna. Í fyrra fékk KSÍ hátt í 1,1 milljarð frá Alþjóða knattspyrnusambandinu, en stór hluti var vegna þátttöku karlalandsliðsins í HM í Rússlandi. Áætlað er að í ár verði framlag FIFA 280 milljónir. Frá Knattspyrnusambandi Evrópu er reiknað með rúmlega 460 milljónum, um 70 milljónum lægri upphæð en í fyrra. Margvíslegar aðrar erlendar tekjur koma inn í íslenskt efnahagslíf í gegn- um íslenska knattspyrnu. Nefna má greiðslur vegna þátttöku félaga í mótum, sjónvarpstekjur landsliða og félagsliða, sölu á leikmönnum og greiðslur til umboðsmanna. Þátttaka karlalandsliðsins í úrslitakeppni Evrópumótsins árið 2016 gjörbreytti efnahag KSÍ. Veltan fór þá úr rúmum milljarði króna í um þrjá milljarða og rekstrarhagnaður var um 861 milljón króna. 907 keppnislið tóku þátt í mótum ávegum KSÍ í fyrra, 609 lið karla og 298 lið kvenna. Liðum kvenna fjölgaði um eitt á milli ára. KSÍ sér einnig um niðurröðun leikja í mót-um Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og í Faxafl óamóti samkvæmt sérstöku samkomulagi. Alls voru þetta 2.280 leikir í fyrra. 114.000 áhorfendur komu á leiki Pepsi-deildar karla í fyrra, að meðaltali 862 á hvern leik. Flestir komu á heimaleiki Breiðabliks og Vals, yfir 1.200 manns að meðaltali. Meðalfjöldi áhorfenda á leiki í Pepsi-deild kvenna í fyrra var 186. Í leikjum í Íslandsmóti meistarafl okks karla í lands- deildum í fyrra voru veitt 4,44 gul spjöld að meðaltali í leik, en 0,28 rauð. 4,44 1,49 0,28 0,08 18 starfsmenn eru nú í föstustarfi hjá KSÍ. Í ársbyrjun var Víðir Reynisson ráðinn í fullt starf við landsliðsver- kefni, meðal annars sem öryggis- fulltrúi, en hann starfaði áður sem verkefnastjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Í leikjum í Íslandsmóti meistarafl okks kvenna voru veitt 1,49 gul spjöld að meðaltali í leik en 0,08 rauð. KARLAR KARLAR KARLARKONUR KONUR KONUR Klara Bjartmarz

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.