Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Í staðinn fyrir að líta á málið sem
katalónskt vandamál, tel ég þetta
vera spænskt vandamál,“ segir Alf-
red Bosch, utanríkismálaráðherra
Katalóníuhéraðs, um stöðuna sem
komin er upp í sjálfstæðisdeilu
Katalóna við miðstjórnina á Spáni,
en hann mun flytja erindi á laug-
ardaginn næsta í Safnahúsinu undir
yfirskriftinni „Hvað er að gerast í
Katalóníu?“
Hann bætir við að vandamálið fel-
ist fyrst og fremst í skorti á getu og
vilja hjá spænska ríkinu að komast
að lýðræðislegri niðurstöðu í deil-
unni. „Spænska konungsríkið með
ríkisvaldi sínu hefur bælt niður
stjórnmálahreyfingu og varpað fólki
í fangelsi í staðinn fyrir að leita póli-
tískra lausna og sent fólk í útlegð.“
Vilja halda
samningaleið opinni
Aðspurður hvort lausn sé til í
stöðunni sem myndi halda Spáni
sameinuðum og Katalónum ánægð-
um segir Bosch það ekki hlutverk
sitt að tryggja einingu spænska rík-
isins. „Starf mitt er að halda fram
málstað lýðræðisins og mannrétt-
inda, það er grundvallaratriði sem
við verðum að krefjast áfram,“ segir
Bosch.
Hann bætir við að viðræðum um
framtíð Katalóníu innan Spánar hafi
verið hætt af hálfu spænska rík-
isins. „Við teljum að það ætti að
halda samningaleiðinni opinni,“ seg-
ir Bosch, en hann telur að íhalds-
söm stjórnmálaöfl yst á hægri væng
spænskra stjórnmála leggist gegn
því að Katalóníubúar hafi nokkuð að
segja um framtíð sína. „Í sönnu lýð-
ræði teljum við að fólk eigi að fá að
kjósa og ákveða hvernig það vilji
haga framtíð sinni.“
Spurður um áhrif þeirra dóms-
mála sem spænska ríkið hefur hafið
gegn forsprökkum atkvæðagreiðsl-
unnar um sjálfstæði 2017, sem
hæstiréttur Spánar dæmdi ólög-
lega, og sjálfstæðisyfirlýsinguna
sem fylgdi í kjölfarið, segir Bosch
að þau hafi haft mikil og neikvæð
áhrif á ímynd Spánar sem lýðræð-
isríkis.
„Það að fyrirrennarar mínir í
stjórn Katalóníu hafi verið settir í
fangelsi fyrir að skipuleggja at-
kvæðagreiðslu teljum við ganga
gegn rétti fólks til að kjósa. Það að
ekki megi ræða á þingi eða taka af-
stöðu til máls eins og mögulegs lýð-
veldis Katalóna teljum við vera
veikleika.“ Þá hafi það ekki síst
skaðað ímynd Spánar þegar lög-
regla Spánar beitti umtalsverðri
hörku gegn þeim sem ætluðu sér að
kjósa í atkvæðagreiðslunni.
Þá veki það upp grunsemdir að
fulltrúar spænska ríkisins telji sig
Snýst um
grundvall-
arréttindi
Alfred Bosch, utanríkisráðherra
Katalóníuhéraðs, á Íslandi um helgina
Aðrar upplýsingar
Aðalfundi Landsbankans hf., sem halda átti miðvikudaginn
20. mars 2019, hefur verið frestað til fimmtudagsins 4. apríl
2019 kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel
(fundarsalur: Gullteigur), Sigtúni 38, Reykjavík.
Landsbankinn • landsbankinn.is • 410 4000
Aðalfundur
Landsbankans 2019
Hluthafar eiga rétt á því að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram
ályktunartillögur. Tillögur og óskir um að koma máli á dagskrá aðalfundar þurfa að
vera skriflegar og berast bankanum fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 20. mars 2019.
Endanleg dagskrá fundarins, endanlegar tillögur og gögn er lögð verða fyrir
aðalfundinn verða aðgengileg á vefsíðu bankans á slóðinni https://bankinn.
landsbankinn.is/fjarfestar/adalfundir/ fimmtudaginn 21. mars 2019.
Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna skriflega um
framboð til bankaráðs skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Tilkynna skal
skriflega um framboð til bankaráðs fyrir kl. 16:00 föstudaginn 29. mars 2019 til
skrifstofu bankastjóra, Austurstræti 11, Reykjavík. Upplýsingar um frambjóðendur
til bankaráðs verða lagðar fram og birtar á vef bankans tveimur dögum fyrir
aðalfundinn.
Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í bankanum að frádregnum eigin
hlutum sem eru án atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30 á
fundardegi.
Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.
Reykjavík, 14. mars 2019
Bankaráð Landsbankans hf.
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður
fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu
reikningsári.
4. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðanda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
10. Önnur mál.
Drög að dagskrá
Lenda þurfti tveimur flugvélum frá
British Airways á Keflavíkurflug-
velli um síðustu helgi vegna reyks í
farþegarými. Önnur var á leið frá
London til New York með 167 far-
þega. Var rauðu óvissustigi lýst yfir,
að sögn lögreglu. Flugstjórinn upp-
lýsti svo að reykurinn hefði minnkað
og lenti hann vélinni heilu og höldnu.
Í hinu tilvikinu, sem varð fáeinum
mínútum síðar, var flugvél lent með
á annað hundrað farþega á leið frá
London til Newark. Reyndist reyk-
urinn sem komið hafði upp í farþega-
rými hennar stafa af rafmagnsbilun.
Þrír flugliðar kvörtuðu undan svima
og ógleði og voru þeir fluttir á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.
Vélinni var ekki flogið áfram held-
ur fengin önnur vél til að ferja far-
þegana á áfangastað.
Reykur í farþegarými
AFP
British Airways Tvær flugvélar
neyddust til að lenda í Keflavík.
Félagsmenn Verslunarmanna-
félags Suðurnesja samþykktu sam-
einingu við VR í rafrænni at-
kvæðagreiðslu sem lauk á hádegi í
gær.
VR mun taka fyrir tillögu um
sameiningu á aðalfundi félagsins
27. mars næstkomandi. Ef félags-
menn VR samþykkja ráðahaginn
mun sameining taka gildi 1. apríl.
Mun þá félagssvæði VR ná til
Keflavíkurflugvallar.
Á kjörskrá hjá Verslunarmanna-
félagi Suðurnesja voru 1.213 og
alls greiddu 315 atkvæði eða
25,97%. Já sögðu 260 eða 82,54%,
nei sögðu 54 eða 17,14% og 1 skil-
aði auðu.
Keflavíkurflugvöllur
mun heyra undir VR