Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 30
30 FRÉTTIRBílaíþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Keppni í formúlu-1 hefst að nýju
um helgina eftir fjögurra mánaða
hlé sem liðin hafa brúkað til að
smíða nýja keppnisbíla í samræmi
við tæknireglur íþróttarinnar sem
tekið hafa talsverðum breytingum
frá í fyrra. Samkvæmt venju fer
fyrsta mótið fram í Melbourne í
Ástralíu.
Aðeins Mercedes og bandaríska
liðið Haas, tvö lið af tíu, tefla fram
sömu ökumönnum og í fyrra. Mun
athyglin í þessu sambandi beinast
mjög að hinum unga Charles Lec-
lerc sem eftir aðeins nokkra mán-
uði á jómfrúrári sínu hjá Sauber
var ráðinn til Ferrari í ár. Helsta
breytingin auk hans er brottför
Daniels Ricciardo frá Red Bull til
Renault og Kimi Räikkönen frá
Ferrari til Sauber, sem nú heitir
reyndar Alfa Romeo.
Eiginlega er þó mál málanna að
pólski ökumaðurinn Robert Cubica
hefur keppni í formúlunni á ný eft-
ir átta ára fjarveru. Brotnaði
hægri handleggur hans í mask og
rifnaði næstum af í slysi í rallakstri
2011. Batt það óhapp enda á vax-
andi feril Kubica í formúlunni.
Hann gafst þó aldrei upp og eftir
margra ára endurhæfingu rætist
draumur hans um að keppa aftur í
formúlu-1 á sunndag. Keppir hann
fyrir hið gamla stórveldið Williams
en hann var reynslu- og þróuna-
rökumaður þess í fyrra. Ótrúleg
endurkoma frábærs ökumanns sem
brúkar vinstri höndina miklu meira
(70%) á stýrinu en þá hægri vegna
skertrar hreyfigetu.
Lýkur drottnun Mercedes?
Undanfarin ár hefur Mercedes-
liðið verið drottnandi í formúlunni,
eða allar götur frá 2014. Telja
spekingar að á því verði breytingar
nú og segir liðsstjórinn Toto Wolff
að liðið muni fá alvörukeppni.
Hann virðist undirbúinn að glata
þeirri drottnun sem lið hefur notið
undanfarin ár. Spáir hann „al-
mennilegri keppni“ um titlana og
segir lið sitt undirbúið undir það.
„Í fyrra urðum við að leggja allt í
sölurnar til að koma út sem sig-
urvegarar. Miðað við útkomu æf-
inganna í Barcelona verður keppn-
in í ár enn harðskeyttari. Allt
verður þanið til hins ýtrasta. Það
er spennandi tilhugsun,“ segir
hann í aðdraganda fyrsta móts.
Heimsmeistarinn Lewis Hamil-
ton hjá Mercedes sagði í lok
reynslu- og þróunaraksturs liðanna
í Barcelona í febrúar, að Ferrari-
fákurinn væri hraðskreiðari en
bílar annarra liða. Munaði hálfri
sekúndu á hring í forskoti Ferrari
á helstu keppinautana, eins og
Mercedes og Red Bull.
Markmið Hamiltons í ár er að
vinna titil ökumanna í sjötta sinn.
Segist hann vera betur í stakk bú-
inn til þeirrar keppni en nokkru
sinni áður. Af þeirri bjartsýni mun
ekki af veita ef mat hans á getu
Ferrari-bílsins reynist rétt þegar
keppnin hefst í Melbourne á
sunnudaginn kemur. „Það verður á
brattann að sækja en við vitum
hvernig á að fara að því,“ sagði
Hamilton.
Ferrariliðið heitt
Veðjað er á að Ferrari ráði ferð-
inni í opnunarmótinu í Melbourne.
Þar kemur í fyrsta sinn í ljós
hvernig ungi Mónakómaðurinn
Charles Leclerc, sprottinn úr öku-
mannaakademíu Ferrari, stendur
gagnvart liðsfélaga sínum Sebast-
ian Vettel, fjórföldum heimsmeist-
ara. Í þróunarakstrinum í Barce-
lona voru þeir jafngóðir. Vettel er
að hefja sitt fimmta starfsár hjá
Ferrari. Til að verða ekki undir
hjá stuðningsmönnum liðsins þarf
hann að bæta sig frá í fyrra er
óstöðug frammistaða varð honum
að falli. Michael Schumacher varð
á sínum tíma að þreyja fimm ár
hjá Ferrari áður en hann vann titil
ökumanna sem liðsmaður þess.
Ætli Vettel leiki það eftir?
Á grundvelli þróunarakstursins í
Barcelona álíta sérfræðingar að
Ferrari standi betur að vígi en um
árabil. Hefur liðið engan titil unnið
í áratug og á því ætla Ferrari-
menn nú að ráða bót. Í fyrra glutr-
aði liðið tækifærinu með mistökum
og bilunum. „Ökumönnum okkar
verður frjálst að keppa innbyrðis,“
segir liðsstjórinn Mattio Binotto,
en bætir við að Vettel muni njóta
forgangs á Leclerc kalli aðstæður á
liðsskipanir.
Norris fljótastur á McLaren
Fjórir ökumenn þreyta frum-
raun sína í formúlu-1 í ár; Bretinn
Lando Norris hjá McLaren, landi
hans George Russell hjá Williams,
bresk-taílenski ökumaðurinn Alex-
ander Albon hjá Toro Rosso og
Ítalinn Antonio Giovinazzi hjá Alfa
Romeo.
Norris verður yngsti ökumaður
íþróttarinnar í ár, aðeins 19 ára.
Hann var þróunar- og varaök-
umaður McLaren í fyrra. Hann á
sigursælan feril að baki í lægri
formúlum og hefur mikla reynslu
af keppni í návígi. Hann hóf keppni
aðeins sjö ára að aldri og naut
ríkulegs fjárstuðnings moldríks
föður við að koma sér áfram. Varð
hann heimsmeistari í körtukapp-
akstri 2013 og í fyrra varð hann
annar á eftir Russell í heimsmeist-
arakeppninni í formúlu-2.
Stærsta áskorun Norris verður
Breyttir bílar og nýir ökumenn
Keppnin í formúlu-1 hefst í Ástralíu um helgina Spáð er jafnari og tvísýnni keppni en
undanfarin ár hvað svo sem kemur í ljós þegar spólað verður af stað í Albertsgarði í Melbourne
Charles
Leclerc
Mónakó
Ferrari
23
ára
31
árs
34
ára
21
árs
Red Bull
Ho l l a nd
21
árs
Byrjaði vel hjá
Sauber árið 2018 og
landaði samningi
hjá Ferrari
Fimmta tímabilið.
Reynsla og hæfileikar
gætu tryggt„Mad Max“
heimsmeistaratitilinn
Vann fimmta heims-
meistaratitil sinn
árið 2018 og setur nú
stefnuna á met Michaels
Schumachers. Segist
ætla að sækja árið 2019.
Lærir hann af mis-
tökunum 2018 og
heldur ró sinni? Tekst
Ferrrari að gera það
sama?
Red Bull
F r a k k l a nd
Ferrari
Þý s k a l a nd
Mercedes
B re t l a nd
Pierre
Gasly
Max
Verstappen
Sebastian
Vettel
Lewis
Hamilton
Fimm til að fylgjast með 2019
Heimild : F1.com
7352
229
2198121 26
4 5
Fjórða sætið í Barein
árið 2018 hjá Toro
Rosso sýndi hvað
hann getur
Heims-
meistaratitlar
Sigrar
Keppnir
5
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært
úrval af
sundfötum
* Bikiní
* Tankiní
* Sundbolir
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf