Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Færeyingar létu þau boð út ganga í vetur, að til stæði að loka helstu ferðamannastöðum eyjanna eina helgi í lok apríl og bjóða sjálfboða- liðum að koma og hjálpa til við að laga þar til og búa staðina undir sum- arið. Það er óhætt að segja að við- brögðin hafi kom- ið þægilega á óvart. „Umsóknirnar streymdu að frá öllum heims- hornum: Evrópu, Ástralíu, Kína, Ameríku. Við fengum um 3.500 fyrirspurnir en getum aðeins tekið á móti 100 sjálfboðaliðum,“ segir Guð- rið Højgaard, framkvæmdastjóri færeysku ferðamálastofunnar. „Þetta kom okkur mjög á óvart. Og þegar fólk frétti að búið væri að fylla hópinn nú spurði það hvort hægt væri að skrá sig á næstu árum. Við gætum verið fullbókuð til ársins 2050.“ Sjálfboðaliðarnir greiða sjálfir fyr- ir ferð sína til Færeyja en þar er þeim séð fyrir fæði og gistingu helgina 26. til 28. apríl. Guðrið segir, að umsóknir hafi borist frá fólki á öll- um aldri en oftast er það ungt fólk, sem ferðast til landa til að vinna sjálf- boðaliðastörf af þessu tagi. Greinilegt sé, að margir hafi áhuga á að heim- sækja eyjarnar. Erlendum ferðamönnum hefur far- ið fjölgandi í Færeyjum á undan- förnum árum eða um 10% á ári að jafnaði og voru í fyrra um 100 þúsund talsins, samkvæmt upplýsingum frá færeysku ferðamálastofnunni. Guð- rið segir, að þótt eyjaskeggjar vilji taka vel á móti ferðamönnum kæri þeir sig samt ekki um að þeim fjölgi um of og ljóst sé, að fjölförnustu stað- irnir hafi látið nokkuð á sjá. Þess vegna hafi vaknað þessi hugmynd, að fá sjálfboðaliða til að hjálpa heima- mönnum, að halda þeim við. Verðlaunaherferðir En hvort sem heimamönnum líkar betur eða verr hefur áhugi á Fær- eyjum aukist mikið á síðustu árum, ekki síst vegna óvenjulegra markaðs- herferða Guðrið og hennar fólks, sem hafa vakið athygli fjölmiðla víða um heim. Skemmst er að minnast „kindavélanna“ svonefndu, Sheep View 360, vorið 2016 þegar vef- myndavélum var komið fyrir á fimm ám, sem gengu um í náttúrunni og bitu gras og hægt var að fylgjast með gegnum netið. Færeyingar sögðu þá, að með þessu væri bæði verið að kynna Færeyjar og þrýsta á tækni- fyrirtækið Google, að setja eyjarnar inn í Street View. Og þeim tókst hvort tveggja því síðar sama ár komu útsendarar Google til Færeyja með 360 gráðu myndavélar sem hafa síðan staðið heimamönnum og ferðamönnum til boða við að kortleggja götur og stíga í eyjunum. Árið eftir fengu kindavél- arnar gullna ljónið á auglýsingahátíð í Cannes fyrir bestu ferðamálamark- aðsherferðina. Kostnaðurinn við her- ferðina var um það bil 20 milljónir ís- lenskra króna, en sérfræðingar áætluðu að verðmæti átaksins væri jafnvirði um 5 milljarða króna. Í fyrra fékk svo önnur færeysk auglýsingaherferð, Faroe Islands Translate, bronsljónið á sömu hátíð þar sem snúið var upp á þýðingavél Google. Þá gat fólk sent setningar á eigin tungumáli með tölvupósti og fékk til baka myndskeið þar sem Færeyingar þýddu þessar setningar á færeysku. Alls bárust 1,3 milljónir slíkra óska frá 181 landi og nærri helmingur Færeyinga tók þátt í þýð- ingunum. Sérfræðingar áætluðu, að verðmæti þessarar markaðs- herferðar næmi um 26 milljónum evra, nærri 3,6 milljarða króna. Hægt er að skoða þessi myndskeið á vef- slóðinni www.faroeislandstrans- late.com. Það hefur heldur ekki dregið úr áhuga á Færeyjum, að nú í febrúar fékk veitingastaðurinn Koks, við Leynavatn á Straumey, aðra Michel- instjörnu. Myndir/visitfaroeislands.com Lokað Snyrt verður í kringum Gjógv á Austurey í lok apríl. Þúsundir vildu taka til í Færeyjum  Fólk frá öllum heimshornum bauðst til að aðstoða Færeyinga við að laga til á ferðamannastöðum Morgunblaðið/Einar Falur Ferðamenn Kirkjubær á Straumey, skammt frá Þórshöfn er einn mest sótti ferðamannastaður á Færeyjunum. Guðrið Højgaard Myndakind Ær að störfum fyrir Sheep View herferðina. Þýðing Fjöldi Færeyinga tók þátt í að þýða á færeysku. búðin | 1. hæð Kringlunni RAAMI stellið er komið í iittala-búðina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.