Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Færeyingar létu þau boð út ganga í
vetur, að til stæði að loka helstu
ferðamannastöðum eyjanna eina
helgi í lok apríl og bjóða sjálfboða-
liðum að koma og hjálpa til við að
laga þar til og búa staðina undir sum-
arið. Það er óhætt
að segja að við-
brögðin hafi kom-
ið þægilega á
óvart.
„Umsóknirnar
streymdu að frá
öllum heims-
hornum: Evrópu,
Ástralíu, Kína,
Ameríku. Við
fengum um 3.500
fyrirspurnir en getum aðeins tekið á
móti 100 sjálfboðaliðum,“ segir Guð-
rið Højgaard, framkvæmdastjóri
færeysku ferðamálastofunnar. „Þetta
kom okkur mjög á óvart. Og þegar
fólk frétti að búið væri að fylla hópinn
nú spurði það hvort hægt væri að
skrá sig á næstu árum. Við gætum
verið fullbókuð til ársins 2050.“
Sjálfboðaliðarnir greiða sjálfir fyr-
ir ferð sína til Færeyja en þar er
þeim séð fyrir fæði og gistingu
helgina 26. til 28. apríl. Guðrið segir,
að umsóknir hafi borist frá fólki á öll-
um aldri en oftast er það ungt fólk,
sem ferðast til landa til að vinna sjálf-
boðaliðastörf af þessu tagi. Greinilegt
sé, að margir hafi áhuga á að heim-
sækja eyjarnar.
Erlendum ferðamönnum hefur far-
ið fjölgandi í Færeyjum á undan-
förnum árum eða um 10% á ári að
jafnaði og voru í fyrra um 100 þúsund
talsins, samkvæmt upplýsingum frá
færeysku ferðamálastofnunni. Guð-
rið segir, að þótt eyjaskeggjar vilji
taka vel á móti ferðamönnum kæri
þeir sig samt ekki um að þeim fjölgi
um of og ljóst sé, að fjölförnustu stað-
irnir hafi látið nokkuð á sjá. Þess
vegna hafi vaknað þessi hugmynd, að
fá sjálfboðaliða til að hjálpa heima-
mönnum, að halda þeim við.
Verðlaunaherferðir
En hvort sem heimamönnum líkar
betur eða verr hefur áhugi á Fær-
eyjum aukist mikið á síðustu árum,
ekki síst vegna óvenjulegra markaðs-
herferða Guðrið og hennar fólks, sem
hafa vakið athygli fjölmiðla víða um
heim. Skemmst er að minnast
„kindavélanna“ svonefndu, Sheep
View 360, vorið 2016 þegar vef-
myndavélum var komið fyrir á fimm
ám, sem gengu um í náttúrunni og
bitu gras og hægt var að fylgjast með
gegnum netið. Færeyingar sögðu þá,
að með þessu væri bæði verið að
kynna Færeyjar og þrýsta á tækni-
fyrirtækið Google, að setja eyjarnar
inn í Street View.
Og þeim tókst hvort tveggja því
síðar sama ár komu útsendarar
Google til Færeyja með 360 gráðu
myndavélar sem hafa síðan staðið
heimamönnum og ferðamönnum til
boða við að kortleggja götur og stíga í
eyjunum. Árið eftir fengu kindavél-
arnar gullna ljónið á auglýsingahátíð
í Cannes fyrir bestu ferðamálamark-
aðsherferðina. Kostnaðurinn við her-
ferðina var um það bil 20 milljónir ís-
lenskra króna, en sérfræðingar
áætluðu að verðmæti átaksins væri
jafnvirði um 5 milljarða króna.
Í fyrra fékk svo önnur færeysk
auglýsingaherferð, Faroe Islands
Translate, bronsljónið á sömu hátíð
þar sem snúið var upp á þýðingavél
Google. Þá gat fólk sent setningar á
eigin tungumáli með tölvupósti og
fékk til baka myndskeið þar sem
Færeyingar þýddu þessar setningar
á færeysku. Alls bárust 1,3 milljónir
slíkra óska frá 181 landi og nærri
helmingur Færeyinga tók þátt í þýð-
ingunum. Sérfræðingar áætluðu, að
verðmæti þessarar markaðs-
herferðar næmi um 26 milljónum
evra, nærri 3,6 milljarða króna. Hægt
er að skoða þessi myndskeið á vef-
slóðinni www.faroeislandstrans-
late.com.
Það hefur heldur ekki dregið úr
áhuga á Færeyjum, að nú í febrúar
fékk veitingastaðurinn Koks, við
Leynavatn á Straumey, aðra Michel-
instjörnu.
Myndir/visitfaroeislands.com
Lokað Snyrt verður í kringum Gjógv á Austurey í lok apríl.
Þúsundir vildu taka til í Færeyjum
Fólk frá öllum heimshornum bauðst til að aðstoða Færeyinga við að laga til á ferðamannastöðum
Morgunblaðið/Einar Falur
Ferðamenn Kirkjubær á Straumey, skammt frá Þórshöfn er einn mest sótti ferðamannastaður á Færeyjunum.
Guðrið Højgaard
Myndakind Ær að störfum fyrir Sheep View herferðina. Þýðing Fjöldi Færeyinga tók þátt í að þýða á færeysku.
búðin | 1. hæð Kringlunni
RAAMI stellið er komið í
iittala-búðina