Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 36

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 36
Blásið í lúðra til undanhalds Á sínum tíma gerðu stjórnvöld áætlun um losun hafta sem gekk út á margþættar aðgerðir gagn- vart erlendum fjármagnseig- endum sem sátu hér inni í okkar örsmáa hagkerfi með gífurlegar kröfur. Þessi áætlun var vandlega unnin og tókst frá upp- hafi betur en nokkur þorði að vona. Einn vandinn voru svokallaðar aflandskrónueignir, sem samanstóðu af innlánum, ríkisverð- bréfum og ríkisbréfum í eigu erlendra aðila, sem aðallega voru nokkrir vogunarsjóðir sem höfðu keypt þessar eignir á hrakvirði eftir hrun. Aðgerðirnar gagnvart þessum aflands- krónueigendum voru fólgnar í að hleypa þeim út úr höftunum gegn greiðslu verulegs álags, m.a. í uppboðum á gjaldeyri og skuldabréfa- kaupum hér innanlands til langs tíma. Verðið sem þeir þurftu að sætta sig við var í raun þeirra framlag til end- urreisnar íslensks efnahagslífs eftir hrun. Aðgerðirnar skiluðu ótrúlegum árangri og má fullyrða að ekkert land hafi náð eins hröðum efnahagslegum viðsnúningi og Ís- land. Forsenda þess að þetta risavaxna verkefni tækist var auðvitað sú að aflandskrónueigendur sæju alvöruna sem að baki lá og það að stjórnvöld myndu ekki gefa eftir og klára verkefnið til síðasta skrefs. Ef þessir aðilar hefðu séð minnsta vott um hik á íslenskum stjórnvöldum hefðu þeir auðvitað ekki stokkið á vagninn í þeirri von að þeim yrði síðar veglega umbunað. Það er algerlega fyrir- sjáanlegt að ef gefið hefði verið í skyn við þessa aðila að þeir gætu losnað úr höftum með því að bíða hefði allt mistekist. Allt frá 2016 hafa stjórnvöld verið að beygja af fyrri stefnu í þessum málum og nú fyrir nokkrum dögum síðan var stigið síðasta skref- ið þar sem þingið samþykkti að leysa síðustu eftirlegukindurnar úr höftum, einmitt þá sem ekki höfðu tekið þátt í aðgerðum stjórnvalda og voru eigendur að yfir 80 milljörðum króna. Þessir aðilar voru leystir út með gjöfum og þurftu ekki að leggja neitt af mörkum til ís- lensks samfélags. Og af hverju? Skýringarnar voru helst þær að menn væru orðnir leiðir á þessu og að nú stæðum við svo vel að það væri best að klára þetta dæmi. Íslensk stjórnvöld gáfust þannig upp á loka- sprettinum og gáfu eftir 20-30 milljarða króna. Þessu mótmæltum við Miðflokksþingmenn harðlega á Alþingi. Við spyrntum á móti hreinni og skilyrð- islausri uppgjöf stjórnvalda fyrir þeim sem höfðu veðjað á þann hest sem síðar reyndist sá sem hraðast hljóp og skilaði eigendum sínum mestum hagnaði á kostnað þjóðarinnar. Þegar mál þetta var afgreitt í þinginu var einkennilegt að sjá að Viðreisn, Píratar, Samfylkingin og þeirra fylgi- tungl höfðu enga skoðun í þessu máli og fylgdu stjórnar- flokkunum eftir í þessari uppgjöf. Þeir sem hæst tala um fátækt og segjast beita sér í þágu þeirra sem minnst mega sín beruðu sig með því að hafa ekki kjark eða vilja til að spyrna við þegar stjórnvöld þeyttu lúðra til skipu- legs undanhalds fyrir fjármagnseigendum. Karl Gauti Hjaltason Pistill Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. 36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Forðum tíð,og sú erstutt und- an, voru stundum notuð orð sem lýstu vel meiningu manna, og sá al- menni talsmáti var nálægur eða jafnvel eins og fræðilega skilgreiningin. En þegar þeim fræðum fleygði fram, varð það tal sjálfkrafa villandi og óviðeigandi. Nú óar mönnum við hversu særandi og sakfellandi margt það var sem þá þótti sjálfsagt. Sum orðin lifa enn, en snúa nú annað og enginn fræðilegur grundvöllur felst í þeim lengur. Hversu oft heyrum við ekki rætt um Alþingi í hálfkæringi sem „vitleysingahæli“ í brúkun með eða í stað annars skens. Á Alþingi eru þingmenn sem telja sér rétt að krefjast af- sagnar ráðherra fyrir ákvarð- anir sem þingið sjálft lagði blessun sína yfir. Vitað er og viðurkennt að málefnalegar at- hafnir ráðherrans lutu að því að koma til móts við vilja þings- ins. Eins og þingið er nú skipað verður að ætla að fjöldi þing- manna viti ekki að Ísland er ekki bundið af niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evr- ópu. Sá dómstóll hefur breytt sér í afgreiðslustofnun fyrir smælki, en tekur ekki á himin- hrópandi mannréttindabrotum eins og þeim sem eiga sér stað á Spáni, í landi sem er þó bund- ið af ákvörðunum dómsins. Þeir þingmenn sem þó hafa frétt að Ísland er ekki bundið af þeim dómstól frekar en EFTA- dómstólnum leggja enga merk- ingu í það. Þeim er svo sem ekki bannað að skotra augum á úrlausnir dómstólsins ef þeir vilja. En ekkert umfram það. En jafnvel þing sem telur sig standa á traustari merg en okkar, þótt það sé að sönnu yngra, getur einnig misst sig illa. Það hefur verið ömurlegt að fylgjast með framgöngu bresks forsætisráðherra þar síðustu daga. Í hópi þingmanna sem eru á 7. hundrað, eru auðvitað allmargir vöntunarmenn og náðu sumir þeirra að slá ráð- herrann út. Sjálfsagt gæti ein- hverjum sem fylgdust með hafa orðið á að muldra í barm sinn: Hvaða fáráðar eru þetta? Forsætisráðherrann hafði borið upp við þingið samning um fyrirkomulag útgöngu úr ESB, en þjóðin hafði ákveðið hana í fágætri atkvæða- greiðslu. Misheiðarlegum stjórnmálamönnum, og ekki er lengur hægt að halda forsætis- ráðherranum utan við þann hóp, hafði tekist að gera skýr- ingarbækling um útgönguna í samningsformi að aðalmáli en ákvörðunina um útgöngu að ein- hvers konar við- auka við hann. Þingið hafi rass- skellt ráðherrann svo að heyrðist yfir fjöll og firnindi. Hún hafði margsagt að út- göngusamningurinn væri eini samningurinn sem völ væri á og jafnframt besti samningur sem völ væri á! (Hún nefndi ekki að samningurinn væri stysti samningur sem völ væri á og langlengsti samningur sem völ væri á, né að hann væri leiðinlegasti samningur sem völ væri á og skemmtilegasti samningur sem völ væri á). En svo gerðist það skrítna: Ráð- herrann sagðist mundu reyna að fá annan samning í stað þess eina sem völ væri á og leggja fyrir þingið. Hún kom til baka með sama samninginn en sagðist hafa fengið við hann skýringar frá kommissurum í Brussel og taldi að það breytti einhverju, þótt samningurinn sjálfur væri óbreyttur. May lagði óbreytta samninginn fyrir þingið og tók á ný fram að sá samningur væri eini samningurinn sem völ væri á og jafnframt besti samningur sem völ væri á. Þingið kolfelldi samninginn á ný enda ekki völ á öðru. For- sætisráðherrann harmaði þá niðurstöðu! En þá tók ekki betra við. Hún sagðist mundu leggja til við þingið daginn eftir tillögu sem stjórnarliðar gætu greitt atkvæði um óbundnir. Það var sagt til að tryggja að stjórnarandstaðan réði nið- urstöðunni. En í því fólst ósögð yfirlýsing um að forsætisráð- herrann hefði misst stjórn á þinginu og þar með landinu. Tillagan var um að þingið sam- þykkti að fara ekki úr ESB nema hafa áður samþykkt út- göngusamning. Þingið hefur nú tvisvar fellt með óþekktum yf- irburðum „eina samninginn sem völ er á“. En það hefur nú verið látið samþykkja að út- ganga verði ekki án útgöngu- samnings. Allir nema „vitleys- ingar“ myndu sjálfsagt telja að þá lægi fyrir að það hljóti að vera samningurinn eini og jafn- framt besti sem völ væri á en jafnframt sá sami sem þingið hefur hafnað tvívegis með þunga sem ekki hefur sést um aldir. Því mætti ætla að í það styttist að þingið segi upphátt sem margir hafa muldrað í hálfum hljóðum: Vertu sæl May. Nema þá að þingið telji að May sé algjörlega afleitur for- sætisráðherra, en þó sé hún að- eins næstversti forsætisráð- herra sem völ sé á og þar með sé hún eini forsætisráðherrann sem völ sé á. Fróðlegt hefur verið en ekki ánægjulegt að fylgjast með breska þinginu síðustu daga} Versti kostur bestur? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Einungis 16 mál fengumunnlega málsmeðferð íyfirdeild Mannréttinda-dómstóls Evrópu árið 2018. Í fyrra skilaði yfirdeildin niður- stöðum í 14 dómsmálum, er vörðuðu 26 málsaðila, og ógilti einungis 1 dóm. Alls var 120 dómum vísað til nefndar sem ákveður hvort dómar fara til yfirdeildarinnar í fyrra; 68 frá ríkjum og 48 frá kæranda og í 4 til- fellum af báðum málsaðilum. Þetta kemur fram í árskýrslu MDE fyrir árið 2018. Íslenska ríkið hefur nú þrjá mánuði til að komast að niðurstöðu um hvort vísa eigi dómi MDE er varðar skipun dómara í Landsrétt til yfirdeildarinnar. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í fyrradag að skipan dómara í Landsrétt væri ólög- mæt. Sigríður Á. Andersen, fráfar- andi dómsmálaráðherra, tók það fram á blaðamannafundi í gær að dóminum ætti að vísa til yfirdeildar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra, tók í sama streng. Líklegt að Ísland komist að „Það eru reglur um að það sé hægt að biðja um þetta innan þriggja mánaða. Þá er nefnd fimm dómara sem ákveður hvort málið sé nægjan- lega mikilvægt til þess að vera tekið til meðferðar í yfirdeildinni. Á meðan þetta ferli er í gangi þá verður dóm- urinn, sem var kveðinn upp í gær [Í fyrradag] ekki endanlegur. Þetta er semsagt ekki lokadómur,“ segir Dav- íð Þór Björgvinsson, varaforseti Landsréttar og fyrrverandi dómari við MDE. Hann segir að ef það gerist að málið verði tekið upp í yfirdeild- inni taki það heilt ár hið minnsta þangað til því ljúki. Davíð Þór segir að þau mál sem yfirdeildin tekur fyrir þurfi að vera mikilvæg í tengslum við túlkun á Mannréttindasáttmála Evrópu. Hann telur hins vegar líklegt að yfir- deildin muni samþykkja að taka upp Landsréttarmálið. „Ég hygg að mik- ilvægi þessa máls og að afleiðing- arnar af þessum dómi séu þess eðlis að það sé mjög sennilegt að þetta verði tekið til meðferðar. Án þess að maður geti fullyrt um það.“ Hann bætir við að það gerist oft að dómunum sé snúið við. „Það er svo álitamál hvað er staðfesting eða hvað er ekki staðfesting. Þeir [dómarnir] geta verið staðfestir að niðurstöðu til með allt öðrum rökstuðningi og ítar- legri. En það kemur líka oft fyrir að þeim er hrundið og það eru einmitt grunsemdir um að þetta sé kannski alveg nógu gott sem ýtir á að menn séu tilbúnir að samþykkja til með- ferðar í yfirdeildinni. Til dæmis ef það eru sérákvæði í málum sem telj- ast mikilvæg getur það verið eitt af því sem eykur líkurnar á að það verði samþykkt [að taka málið fyrir]. Þá er einhver ágreiningur um túlkun.“ Hann ítrekar að lokum að aðal- atriðið sé að dómur MDE um Lands- rétt taki ekki gildi fyrr en ferlinu hjá yfirdeildinni lýkur. „Annað hvort er málinu hafnað eða frestur líður án þess að ríkið biðji um að málinu sé vísað til yfirdeildar eða með dómi frá yfirdeildinni,“ segir Davíð Þór. Um 5% dóma komast að Sögulega séð hefur yfirdeildin tekið að sér afar fá mál. Frá því að yfirdeild MDE tók til starfa, 1. nóv- ember 1998 og til október 2011, hef- ur deildin einungis tekið fyrir 110 mál. Á því tímabili var alls vísað 2.129 málum til deildarinnar sem þýðir að yfirdeildin tekur fyrir um 5% þeirra mála sem vísað er til henn- ar. Af þeim 110 málum sem yfirdeild- in hefur tekið fyrir hefur 59 þeirra verið vísað þangað af ríkjum, en það samsvarar um 2,77% af heildarfjölda þeirra mála sem vísað hefur verið til deildarinnar. Einstök mál fá um- fjöllun yfirdeildar Strassborg Mannréttindadómstól Evrópu var komið á fót árið 1959 í Strassborg. Yfirdeild dómstólsins tók til starfa í nóvember 1998. Tveir dómarar Mannréttinda- dómstóls Evrópu skiluðu sér- áliti í Landsréttarmálinu svo- kallaða. Fóru þeir ekki fögrum orðum um niðurstöðu meirihlutans og sögðu hann með niðurstöðu sinni vera að opna öskju Pandóru. Samkvæmt grískri goða- fræði var Pandóra fyrsta konan á jörðinni. „Askja Pan- dóru, þegar hún er opnuð, þá er hún opnuð í von um að þarna séu góðar gjafir og annað slíkt. En því miður eru þar mikil vandræði sem fylgja í kjölfarið. Óvænt og ófyrirséð vandræði. Það er kjarninn í hugmyndinni um öskju Pandóru,“ segir Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Ís- lands, spurður um hvað dómaranir eigi við með þess- ari líkingu sinni. Orðið pan þýðir allur og dóra þýðir gjöf. Pandóru er því annað- hvort gefið allt eða hún er sú sem gefur allt, að sögn Svavars. Askja Pan- dóru opnuð SÉRÁLIT TVEGGJA DÓMARA Í DÓMI MDE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.