Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Það er uppi ágrein-
ingur. Ágreiningurinn
um það hvort Kristján
Loftsson megi stunda
veiði og vinnslu á hval.
Eða hvort rétt sé að
banna það til að nokkr-
ir bátar fái frið og
óheft rými til að sigla
með útlendinga út á sjó
til að skoða hval. Þetta
er mikil mótsögn og
um leið einföldun. Það hefur sýnt sig
að þetta fer ágætlega saman. Og
hvort Kristjáni Loftssyni tekst að
selja skepnuna kemur okkur ekkert
við.
En það eru fleiri hliðar á málinu.
Hinir ýmsu fiskstofnar við landið
eru í hættu. Nú er nánast engin
loðna við landið og vitað er að hval-
urinn étur loðnu stóran hluta ársins,
og hann þarf mikið. Það
er meira í húfi. Flestar
fisktegundir við landið
lifa meira og minna á loðnu. Allt er
þetta undir samkeppni okkar við
hvalinn um loðnuna komið. Kristján
Loftsson á hrós skilið fyrir að veiða
hval. Veiði hann sem mest. Sjómenn,
útgerðarmenn og aðrir sem gera sér
grein fyrir alvöru málsins verða hon-
um þakklátir.
Hvalurinn –
skoða eða skjóta
Eftir Magna
Kristjánsson
Magni Kristjánsson
»Kristján
Loftsson
á hrós skilið
fyrir að veiða
hval. Veiði
hann sem
mest.
Höfundur var skipstjóri á Berki.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Plaggið „Spurningar
og svör um þriðja orku-
pakka ESB“ sem At-
vinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið hefur
enn á vef sínum er
ótrúleg lesning, sem
bendir til að þar á bæ
skilji menn ekki þá
gagnrýni sem beint er
að þriðja orkupakk-
anum. Til dæmis er í
spurningunni „Eykur
þriðji orkupakkinn líkur á orkuskorti
og hærra orkuverði?“ blandað saman
tveim atriðum sem gagnrýnd hafa
verið og rökstudd sitt í hvoru lagi.
Ráðuneytið kýs að fjalla um þau út
frá aðstæðum í Evrópu, þar sem tak-
markað framboð orku veldur strax
hærra orkuverði og hvetur þannig til
fjárfestinga. Við íslenskar aðstæður
þarf þetta ekki að gerast, það verður
háð duttlungum náttúrunnar þannig
að hér getur verið nægt framboð þar
til skyndilega, að óvenju sein vor-
koma veldur skorti. Þetta virðist
ráðuneytið ekki hafa á hreinu.
Reglur ESB virka öfugt hér
Reglugerðir Evrópusambandsins
virka einfaldlega ekki hér og á
grundvelli þeirra verður vel virkur
frjáls markaður með rafmagn ekki
settur upp hér á landi. Eins og rakið
er í ritgerð minni „Rafmagn til heim-
ila og útflutnings“ á síðunni http://
hhi.hi.is/vinnupappírar þá er orku-
auðlindinni dreift á marga staði víðs
vegar um landið og misjafnlega dýrt
að nýta hana á hverjum stað. Við
þær aðstæður getur samkeppnin
ekki tryggt eðlilega verðmyndun
sem hvetur til nýframkvæmda þegar
jafnvægi ríkir milli
framboðs og eftir-
spurnar, heldur mynd-
ast hvati til að taka of
mikla áhættu á kostnað
notenda. Reglur ESB
tryggja því ekki orku-
öryggi á Íslandi og ör-
yggið minnkar enn með
tilkomu sæstrengs.
Orkuöryggi
er að minnka
Ótti vegna skorts á
orkuöryggi kom óvænt
fram á síðasta ársfundi Landsvirkj-
unar þegar forstjórinn hvatti til þess,
að komið yrði á fót framleiðanda til
þrautavara. Landsvirkjun hafði
þetta hlutverk áður, en það þótti ekki
samrýmast reglum ESB um við-
skipti með rafmagn þegar þær voru
fyrst innleiddar með nýjum orkulög-
um árið 2003. Þetta hlutverk er
óþarft í Evrópu við þær aðstæður og
þær reglur sem þar ríkja, en hér
geta þessar sömu reglur ekki tryggt
orkuöryggið nægjanlega. Við þurf-
um því að taka orð forstjóra Lands-
virkjunar alvarlega.
Stefna ESB í orkumálum
Evrópusambandið leggur í reglum
sínum mikla áherslu á að hindra
mengun andrúmslofts og er í far-
arbroddi ríkja heims á því sviði.
Sambandið er þó ekki á þeim stað að
ástæðulausu, því við blasir sú ógn
innan fárra áratuga, að eldsneytis-
birgðir heims fara þverrandi. ESB
er í þeirri stöðu eitt stórvelda heims-
ins að þurfa að flytja inn helming
þeirrar orku sem það notar og fljóti
það sofandi að feigðarósi í þeim efn-
um mun stórveldisdraumum banda-
lagsins ljúka verði það enn háð svo
miklum innflutningi þegar eldsneyt-
isbirgðir þverra. ESB vill bæta úr
þessari stöðu með því að auka hlut
vindorku í bandalaginu, en sú orka
er ótrygg og hefur þegar náð því
marki, að bæta þarf við jafn miklu
gasafli og bætt er við af vindafli héð-
an í frá til að tryggja öryggið. ESB
stefnir samt á, að tvöfalda vægi vind-
orku í raforkuvinnslu sinni. Við þess-
ar aðstæður er það knýjandi nauð-
syn fyrir bandalagið að komast yfir
hina hreinu og sveigjanlegu orku
Noregs og Íslands og nota hana til að
keyra á lognið í Evrópu. Sæstrengur
mun því koma í kjölfar þriðja orku-
pakkans og tengdra nýrri reglu-
gerða. Þegar orkumálaráðherra full-
yrðir að sæstrengur muni ekki koma
er hún bæði að vanmeta ákveðni
Bandalagsins í málinu og lofa upp í
ermina á öðrum stjórnmálaöflum
sem munu samþykkja sæstreng
orðalaust.
Sæstrengur
En það er ekki sæstrengurinn sem
er aðalmálið í bili, það er að segja ef
stjórnvöld eru farin að átta sig á því,
að þurfi hann að koma í anda sam-
Eftir Elías Elíasson » Sú röksemd, að ekki
megi hafna þriðja
orkupakkanum af ótta
við áhrifin á EES samn-
inginn táknar, að of
miklu hefur þegar verið
afsalað af fullveldi okkar
til að við getum talist
fullkomlega sjálfstæð
þjóð.Elías Elíasson
Raforkuöryggi á Íslandi