Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 42

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Ég vissi lítið um þá mögnuðu og veganvænu hárliti sem ítalska hár- vörumerkið Davines býður upp á en nýverið voru ný hárskol frá merkinu kynnt til leiks sem nefn- ast View. Þegar ég sá hár fyrir- sætnanna á þessari kynningu, eft- ir að það var meðhöndlað með Davines-hárlitunum, þá vildi ég kynna mér málið betur. Hér fyrir neðan er því útskýring á þeim þremur gerðum af hárlitum sem boðið er upp á hér á landi frá Davines og taldar eru upp þær hárgreiðslustofur sem upp á þá bjóða. MASK WITH VIBRACHROM Hárlitir sem endast sérlega vel Mask with Vibrachrom eru var- anlegir hárlitir byggðir á krem- grunni og veita hárinu þannig mikla næringu og verður hárið mun gljámeira. Formúlan inni- heldur nú kínóaprótín í stað mjólkurprótíns því bæði er það umhverfisvænna og gerir hana veganvæna. Hárlitirnir eru án PPD og parabena. Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines Mask with Vibra- chrom:  101 Hárhönnun, Blondie, Dízó, Fjelagið, Greiðan, Hárátta, Hárbeitt, Hárkompan, Hárstofan María, Höf- uðlausnir, Járnsaxa, Kompaníið, Port- ið, Senter, Sléttuvegur og Upp á hár. A NEW COLOUR Hárlitir án ammóníaks A New Colour eru varanlegir hárlitir sem eru ammóníaklausir og búa því yfir mun minni lykt en hefðbundnir hárlitir. Formúlan inniheldur karótenóíð, litarefni unnin úr grænmeti, og melanín sem veitir góða andoxunarvirkni og fara þeir vel með hárið. Þessir hárlitir eru veganvænir og án parabena. Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines A New Colour:  Barbarella, Dízó, Hárfjelagið, Hárstofan María og Senter (Sigrún). VIEW Skol sem eykur gljáa View er skol sem fer ekki inn í hárið og veitir allt að 50% þekju og dofna fullkomlega. Allt að 93% formúlunnar eru unnin úr náttúru- legum efnum og er hún allt að 99% lífbrjótanleg. Þessi skol henta vel þeim sem vilja hressa upp á hárlitinn, eru með viðkvæmt eða skemmt hár og þeim sem vilja fela grá hár án þess að það sé of aug- ljóst og vilja ekki gráa rót. View- skolið dofnar að fullu á 6-8 vikum eða eftir 15-20 hárþvotta. Formúl- an er veganvæn og án parabena. Hárgreiðslustofur sem bjóða upp á Davines View:  101 Hárhönnun, Amber, Blondie, Bold, Dízó, Greiðan, Hárátta, Hárbeitt, Höfuðlausnir, Kompaníið, Portið, Senter og Upp á hár. Fylgstu með bakvið tjöldin: Instagram: @snyrtipenninn Facebook: Snyrtipenninn Veganvænir hárlitir sem endurlífga hárið Lilja Ósk Sigurðardóttir er hrifin af öllu sem er vegan og þess vegna varð hún að prófa ný hárskol frá Davines því þau eru ammóníaklaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.