Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 ✝ Sigríður MaríaJónsdóttir fæddist að Sól- vangi í Hafnarfirði 8. janúar 1958. Hún lést á heimili sínu 7. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Jón Stef- ánsson prent- myndasmiður, f. 11.4. 1925, d. 17.4. 1977, og Guðrún Álfsdóttir húsmóðir, f. 6.3. 1926, d. 11.12. 2010. Systkini Sigríðar eru: Ragnhildur Anna Jónsdóttir, f. 1954, Stefán Börkur Jónsson, f. 1955, Sig- hvatur Sturla Þorlákur Jóns- 1968. Eiginkona hans er Linda Sóley Halldórsdóttir og synir þeirra eru Friðrik Snær, f. 1993, Hilmar Daði f. 1995 og Bergur Páll f. 2006. Margrét Árnadóttir, f. 17.7.1973, börn hennar eru Erla Mist, f. 1997, Helgi Þór, f. 2004, og Aron Freyr, f. 2005. Eyþór Árnason, f. 24.3.1981. Eiginkona hans er Ása Óðinsdóttir. Börn þeirra eru Emma, f. 2002, Ari Ævar, f. 2008, Erna Óðný, f. 2015, og Guðrún Árný, f. 2015. Sigríður ólst að mestu leyti upp í Garðabæ. Hún var menntuð sem prentsmiður og starfaði við fagið mesta starfsævina, m.a. í Leturvali, Steindórsprenti- Gutenberg, Íslandsprenti og síðustu 13 árin í Seðlabanka Íslands. Útför Sigríðar Maríu fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 14. mars 2019, klukkan 13. son, f. 1956, Álf- hildur Agnes Jónsdóttir, f. 1959, og Guðrún Elísa- bet Jónsdóttir, f. 1960. Eftirlifandi eiginmaður Sigríð- ar er Árni Ander- sen prentsmiður, f. 29.12. 1949. Sonur hennar er Pétur Már Ólafsson, f. 10.10. 1979. Sam- býliskona hans er Nína Sif Pét- ursdóttir og dætur þeirra eru Agnes Embla, f. 2005, Elísa Ásta, f. 2007, og Dagný Día, f. 2015. Stjúpbörn Sigríðar eru: Karvel Halldór Árnason f. 9.4. Elsku mamma mín er nú fallin frá, í blóma lífsins. Þú hvarfst allt of fljótt úr lífi mínu, við sem áttum eftir að gera svo mikið saman. Þín verður sárt saknað. Þegar svo er komið þá gleðst ég samt yfir öllum þeim minning- um af þér sem ég geymi í hjarta mínu. Þú varst virki mitt í æsku, skjól mitt í erfiðleikum og hjá þér fann ég fyrir öryggi í óöryggi mínu. Þú varst alltaf til staðar, tilbú- in að taka á móti mér þegar ég þurfti á þér að halda og ég man vel hvað ég þurfti á þér að halda á fyrstu árum lífsins. Þú varst móð- ir mín og gekkst mér einnig í föð- urstað, hlutverk sem þér tókst með prýði. Síðar meir eignaðist þú lífs- förunaut sem hjálpaði þér í gegn- um lífið. Ég átti erfitt með að að- lagast breyttum aðstæðum á viðkvæmum uppvaxtarárum en hef komist að því að sterkara virki finnst varla. Árni er nú til staðar fyrir mig og mína eins og hann var fyrir okkur tvö og þakka ég fyrir það. Margar minningar skilur þú eftir hjá mér og hinum sem voru það heppin að hafa þig í lífi okkar. Utanlands- og innanlandsferð- irnar með þér eru ljós í lífi mínu sem ég ylja mér við þegar ég hugsa til þín. Allar sumarbú- staðarferðirnar í æsku með þér og fjölskyldu okkar og svo síðar með fjölskyldu minni eru ljúf- sárar, þær koma ekki aftur en lifa áfram í huga okkar. Allur tíminn sem þú eyddir á bekkjum þar sem þú fylgdist með mér í hinum ýmsu íþróttum og síðar þegar við sátum saman og fylgdumst með stelpunum mín- um vinna sína sigra er mér og stelpunum mjög dýrmætt. Alltaf varstu með opið heimili og faðm fyrir þína nánustu og barnabörnin voru ávallt velkom- in, sama hvernig stóð á. Gráttu ekki yfir góðum liðnum tíma. Njóttu þess heldur að ylja þér við minningarnar, gleðjast yfir þeim og þakka fyrir þær með tár í augum, en hlýju í hjarta og brosi á vör. Því brosið færir birtu bjarta, og minningarnar geyma fegurð og yl þakklætis í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Orð fá ekki lýst hversu mjög ég sakna þín. Ég vildi að ég hefði getað gert eitthvað meira fyrir þig á þínum síðustu vikum. Þú varst svo hörð við sjálfa þig, þú kveinkaðir þér aldrei. Þú elskaðir að vera í góðra vina hópi og í gegnum dans fékkst þú útrás. Þú varst afskaplega góð við aðra, lést aldrei út úr þér slæm orð um náungann, sama hversu mikið fólk talaði illa um aðra varst þú tilbúin að verja það. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig, þínu fordæmi fylgi ég. Þinn sonur, Pétur Már. Elsku Sigga. Nú er komið að kveðjustund og ég veit ekki hvernig í ósköp- unum ég á að fara að því að kveðja. Það er svo óraunverulegt og ósanngjarnt að sitja hér og hugsa til þess að ég muni ekki hitta þig eða heyra aftur í þér. Við áttum svo mörg ár eftir en mér líður eins og þeim hafi verið stolið frá okkur. Það er svo stutt síðan fram- tíðin var svo björt en síðan eins og hendi væri veifað ert þú tekin svona snögglega frá okkur. Þú varst ein mín besta vinkona og ég get ekki þakkað þér nóg fyrir alla aðstoðina, stuðninginn og um- hyggjuna í gegnum árin. Vita máttu að þú varst ómetanleg og að hafa þig í lífi mínu var eitt það dýrmætasta sem ég átti. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vísum stað engu gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir í Ferjunesi) Elsku Sigga, ég mun gera allt sem ég get til að halda minningu þinni á lofti og sjá til þess að stelpurnar muni vel eftir frábæru og góðu ömmunni sem þær áttu. Sofðu rótt, elsku vinkona. Þín Nína Sif. Elsku amma. Okkur finnst svo óraunveru- legt að þegar við komum í heim- sókn í Krókavaðið muni engin amma koma, faðma og heilsa okkur. Þú varst manneskja full af ást og umhyggju. Allar litlu minningarnar, eins og hvernig þú hlóst, hvernig þú talaðir. Líka stærri minningar eins og öll matarboðin, heimsókn- irnar, gistingarnar og Kanarí- ferðirnar. Hver og ein minning með þér er dýrmæt. Þegar þú fórst frá okkur fött- uðum við hvað við elskuðum þig mikið. Að ein manneskja af sjö milljörðum gæti verið svona mikilvæg. Ef að við hefðum vitað að þetta hefði verið í síðasta sinn sem við hefðum knúsað þig hefð- um við aldrei sleppt. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Núna verðum við að kveðja þó að það sé eitt af því erfiðasta sem við höfum gert. Takk, amma, fyr- ir allar æðislegu stundirnar, takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar þegar við þurftum þig, takk fyrir að hafa gefið okkur þessar góðu og dýrmætu minningar. Vonandi mun þér líða vel hvar sem þú ert. Hvíldu í friði. Þínar ömmustelpur Agnes Embla, Elísa Ásta og Dagný Día. Elsku Sigga, nú ertu farin í sumarlandið. Hvern hefði grunað þegar við hittumst í bústað fyrir jólin að það yrði í síðasta skiptið sem allur Skeifuhópurinn kæmi saman. Þessi hópur varð upphaf- lega til í kringum sameiginlegan áhuga á hestamennsku. Minning- arnar hrannast upp, reiðtúrar, kaffispjall, ferðalögin okkar innanlands og utan. Hnyttin til- svör frá þér, söngurinn, dansinn, glensið og grínið. Sumarbústaðarferðirnar okk- ar þar sem gjarnan var stungið upp á ákveðnu þema og þú sagðir stundum „æi stelpur eigum við nokkuð að hafa þema núna“. Þú varst samt alltaf tilbúin að taka þátt í því. Eftirminnilegt er þegar við vorum í Captain’s House í Suður- Englandi með kisuþema, að drekka kaffi úr bleiku stelli og horfðum á The Sound of Music. Þú varst að prjóna svo fallegt teppi fyrir barnabarnið að þú smitaðir okkur hinar, svo að dag- inn eftir vorum við búnar að kaupa garn og byrjaðar að prjóna. Þetta er aðeins lítið brot af mörgum góðum minningum sem við eigum með þér. Við vitum að þú munt fylgjast með okkur, og verður alltaf með okkur í anda. Orð Í allri ást er sorg og öllum kossum sár. Og öllum sporum heim er gleði og tár. Og öllum börnum ljóð og öllum ljóðum þrá. Eins og vængirnir sem aldrei flugi ná. (Stefán Finnsson.) Elsku Árni, Pétur og fjöl- skyldur, innilegar samúðar- kveðjur. Ása, Bryndís, Lilja, Vala og makar. Elsku Sigga! Eða Sigga Red eins og þú ert alltaf kölluð í minni fjölskyldu. Eða síðan pabbi sá þig smástelpu með þitt fallega þykka rauða hár. Við erum búnar að þekkjast í 55 ár eða síðan við vorum í 1. bekk hjá Árna Dunn í Garðahreppi eins og hann hét þá. En urðum við þá bestu vinkonur þremur árum seinna er ég flutti í Goðatún 8 og þú bjóst á Goðatúni 11. Margt var brallað, skemmt sér og hlegið. Ég flutti til Reykjavíkur 12 ára og þú nokkr- um árum seinna og tókum við gagnfræðapróf saman í Vörðu- skóla. Fjölskylda mín flutti mikið á þessum tíma, en einhvern veg- inn gerði þín það líka og vorum við alltaf nærri hvor annarri. Studdum hvor aðra. Ekki skemmdi það fyrir að við vorum í prentfaginu, báðar setjarar. Ógleymanlegir eru danstímarnir hjá Heiðari Ástvalds, böllin í Hollywood og Þórscafé og allt það sem ungar stúlkur tóku sér fyrir hendur. Já, það voru skemmtilegir tímar. Svo eignað- ist þú einkason þinn, Pétur Má, aðeins 21 árs og tókst það hlut- verk mjög alvarlega og varst frá- bær móðir. En þig dreymdi alltaf um að eiga fullt af börnum. En það fór ekki svo, en þú varst mjög stolt af Pétri og ömmu- stelpunum þínum og elskaðir þær óendanlega mikið. Gleymi því aldrei er þú komst til mín, þá nýorðin amma og augun ljóm- uðu, er þú sagðir mér að þetta væri svo yndisleg tilfinning og engu lík. Árni, maðurinn þinn, kom inn í líf þitt fyrir um 30 árum og veit ég að hann var stoð þín og stytta alla tíð. Elsku Sigga mín, nú er komið að leiðarlokum og erfitt finnst mér að trúa því að þú sért látin, langt fyrir aldur fram og geta ekki heimsótt þig eða hringt í þig til að spjalla. En nú hefur þú fengið hvíldina eftir erf- iða baráttu við illvígan sjúkdóm. Þú kvartaðir aldrei, þó þú værir fárveik og sýndir þvílíkt æðru- leysi að aðdáunarvert er. Að lok- um vil ég senda mínar innileg- ustu samúðarkveðjur til Árna, Péturs, ömmustelpnanna og allra ástvina Siggu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku vinkona, Sigurlaug. Sigríður María Jónsdóttir sá ásamt fleirum um það meðal ann- ars að búa skýrslur og rit Seðla- banka Íslands til prentunar. Í hálfan annan áratug sinnti hún því starfi og þótt ýmsir aðrir gerðust stundum seinvirkir og síðan fullóþolinmóðir þegar nálg- aðist útgáfudaginn sinnti hún starfi sínu áfram af sama jafnað- argeði og vandvirkni og ætíð ein- kenndi störf hennar. Okkur sam- starfsfélögum hennar þótti ávallt gott að geta leitað til hennar þeg- ar á þurfti að halda. Mestallan starfstíma sinn hér í bankanum var Sigríður einnig fulltrúi starfsmanna í jafnréttis- nefnd bankans og tók þar virkan þátt í mótun jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlana sem skilað hafa góðum árangri. Með glaðlegu fasi sínu lagði hún jafnan gott til mál- anna og hún var viðkunnanleg í allri umgengni. Það var sorglegt og erfitt að fylgjast með baráttu Sigríðar við illvígan sjúkdóm en hún tókst á við það verkefni af miklu æðru- leysi. Hennar er nú sárt saknað. Fyrir mína hönd og margra sam- starfsfélaga votta ég Árna og öðrum aðstandendum innileg- ustu samúð okkar. Stefán Jóhann Stefánsson Í dag kveðjum við góðan vinnufélaga og kæra vinkonu, dugnaðarforkinn hana Siggu okkar. Undanfarin ár höfum við unnið saman í Seðlabankanum og milli okkar myndaðist dýrmæt vinátta. Daglegt kaffispjall um daginn og veginn varð að föstum lið, við deildum sögum úr daglega lífinu, skiptumst á skoðunum og höfðum það skemmtilegt saman. Sigga var glaðlynd og hress, lá ekki á skoðunum sínum og sagði skemmtilega frá. Við fengum að njóta frásagna úr Fjárborg, af hestum og mönnum og ekki síst barnabörnunum öllum sem hún var svo stolt af. Vorið 2017 fórum við saman í ógleymanlega helgarferð til Berl- ínar, þar voru vinaböndin styrkt enn frekar og við nutum fé- lagsskaparins í þessari skemmti- legu borg. Nú er komið að kveðjustund, alltof fljótt, við munum sakna Siggu sárt en eftir lifa minningar um dásamlega konu sem ylja okkur um hjarta- rætur. Við sendum Árna og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi sem kveikti ást og yndi, með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Guðbjörg Þórarinsdóttir, Guðrún Sigmarsdóttir, Rut Helgadóttir, Sigurborg Brynja Ólafsdóttir, Sigurborg Steingrímsdóttir. Í dag kveðjum við Siggu. Þökkum þér Sigga mín fyrir allar þær stundir sem við áttum sam- an. Þær voru ófáar hestaferðirn- ar sem við fórum saman sem og utanlandsferðirnar. Þú varst frá- bær ferðafélagi hvort sem við vorum fjögur saman eða í stærri hóp. Síðasta ferðin í sumar þegar við fórum í kringum Borgarfjörð eystri var virkilega skemmtileg þó að ferðin væri erfiðari en við áttum von á, en þú stóðst þig frá- bærlega. Okkur tekur það ákaf- lega sárt að þú skyldir kveðja svona snemma. Við vorum ekki búin að fara allt sem við ætluðum að fara saman. Elsku Árni, Pétur og ykkar fjölskyldur. Við vottum ykkur innilega samúð á erfiðum tímum sem þessum. Það okkur er til rauna hve ógjarnt var að launa, við könnumst við það klökk. En fyrir allt sem ertu um eilífð blessuð vertu! Og haf þú okkar hjartans þökk. (G.J.G.) Edda Björk Karlsdóttir og Sigurður Reynisson. Sigríður María Jónsdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARÍU GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Tjarnarási 12, síðast til heimilis á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi. Guðrún Gunnlaugsdóttir Jónas Steinþórsson Kristján Gunnlaugsson Dallilja Inga Steinarsdóttir Guðmundur Gunnlaugsson Dagbjört I. Bæringsdóttir Þröstur Gunnlaugsson Helga Guðmundsdóttir Jóhann Gunnlaugsson Vaka Helga Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN J. HELENA GREEN, KIDDÝ, áður Hraunbæ 102, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 2. mars. Útförin fer fram frá kapellunni í Fossvogi föstudaginn 15. mars klukkan 15. Ragnar Leó Kr. Jusic Alma S. Guðmundsdóttir Þorbjörg Kristín Þorgrímsd. Ragnar Axel Gunanrsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR, áður Melhaga 8, Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Grund föstudaginn 22. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir kærleiksríka umönnun. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á dvalarheimilið Grund. Þorkell Magnússon Magnús, Ásta María og Sigríður Margrét, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.