Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 49

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 ✝ Arnór Sveins-son fæddist í Reykjavík 1. nóvember 1943. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 6. mars 2019. Hann var sonur hjónanna Sveins V. Ólafssonar hljóð- færaleikara frá Bíldudal, f. 1913, d. 1987, og Hönnu Sigurbjörns- dóttur bókasafnsfræðings frá Reykjavík, f. 1915, d. 2007. Bræður Arnórs: Ólafur Sveins- son véltæknifræðingur, f. 1942, d. 2012, m. Ingibjörg Jónsdóttir, Sveinn Ólafur, f. 1967, maki Sandra Berg Cepero, börn þeirra eru Númi, f. 1997, og Tara, f. 2002. 3) Hanna María, f. 1969, maki Jón Örn Kristinsson, börn þeirra eru Kristlaug Vera, f. 1996, Markús Hávarr, f. 1998, og Bessi Thor, f. 2005. 4) Ingunn Ásta, f. 1974, dóttir hennar er Hrafnhildur Vera, f. 1996. 5) Arnar Arnórsson, f. 1979. 6) Pétur Arnórsson, f. 1979, maki Fríða Bogadóttir, börn þeirra eru Bogi Hrafn, f. 2013, og Petra Björk, f. 2015. Arnór lauk prófi sem bifvéla- virki frá Iðnskólanum í Reykja- vík og vann alla tíð við störf tengd sínu fagi hjá Velti og síð- ar Brimborg. Útför Arnórs fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 14. mars 2019, klukkan 13. f. 1943, og Sigur- björn Sveinsson læknir, f. 1950, m. Elín Á. Hallgríms- son kennari, f. 1952. Arnór var ættaður úr Kjósinni og Arnarfirði. Hinn 4. júní 1965 kvæntist Arnór Hrafnhildi V. Rod- gers, f. 16. apríl 1944, d. 8. sept- ember 2009. Börn Arnórs og Hrafnhildar eru: 1) Kristín Björk, f. 1964, maki Sveinbjörn Hrafnsson. Þau skildu. Börn þeirra eru Arnór Finnur, f. 1994, og Hrafndís, f. 1996. 2) Traustir vinir eru ekki sjálfgefnir, þeir eru Guðs gjöf. Englar sem létta undir og geta skipt sköpum um líðan fólks. Einkum í hremmingum, þegar heilsan svíkur eða á efri árum þegar fjaðrirnar taka að reytast af hver af annarri. Þá fyrst kemur í ljós hverjir eru vinir í raun. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þannig frændi og vinur var Addó. Við vorum systkinasynir og bjuggu foreldrar okkar í sama húsi í yfir 40 ár. Ég hafði því nokkuð af Addó frænda að segja í mínum uppvexti þótt um 22 ár væru á milli okkar og á ég bara góðar og hlýjar minningar um hann. Fyrir langa löngu keyrði hann út ís fyrir Kjörís og fékk ég stundum að fara með honum í slíkar ævintýraferðir sem end- uðu jafnvel á því að hann dró fram svalandi íspinna og færði mér í lok ferðar með orðunum: „Takk fyrir hjálpina, frændi.“ Oft var mér boðið á heimili þeirra Hrafnhildar til að leika við eldri börnin þeirra sem voru á svipuðu reki og ég. Minnist ég þeirra tíma með virðingu og þakklæti. Addó á stóran þátt í því að ég ákvað um sex ára gamall að ger- ast Framari, þvert á það sem vænta mátti. Hann varð nefni- lega Íslandsmeistari í fótbolta með Fram 1962 og var því fyrir- mynd og goðsögn í mínum huga. Annars var Addó bifvélavirki af Guðs náð með sérhæfingu í Volvo enda starfaði hann lengst af sem slíkur hjá umboðsaðilum Volvo á Íslandi og lengi vel sem verkstjóri. Var hann gjarnan bóngóður og fljótur til ef veita þurfti ráðgjöf í stórri fjölskyldu varðandi hikstandi vélar og munaði oft ekki um að koma og gera við bíla ættingja sinna, jafnvel í kulda og trekki á myrkum vetrarkvöldum. Hann Addó var einstakt ljúf- menni, hjartahlýr, afar traustur og góður drengur sem ekkert aumt mátti sjá. Þótt við hitt- umst kannski ekki oft í seinni tíð hafði hann reglulega sam- band við mig til að spyrja hvernig ég hefði það eða til að rifja upp sögur og segja einhver falleg uppörvunarorð og þakka fyrir eitthvað sem ég átti að hafa haft fram að færa og honum fannst hjartastyrkjandi. Fyrir fáeinum vikum kom hann óvænt í heimsókn til mín og færði mér fallegan kross með frelsaranum hangandi á. Hann sagðist hafa keypt krossinn með mig í huga á Tenerife á afmæl- isdaginn sinn þegar hann varð 75 ára 1. nóvember sl. Hefur krossinum nú verið komið fyrir á áberandi stað á heimili okkar hjóna og mun ég hér eftir ætíð minnast Addós þegar ég lít í augu okkar særða en lífgefandi frelsara á krossinum. Svona var Addó. Hugulsamur, umhyggjusamur og kærleiks- ríkur. Svo einlæglega fallega trúaður þótt hann ræddi það kannski ekki við hvern sem var, hvenær sem var. Þér var aldrei lofuð auðveld ævi. Það eina sem öruggt var þegar þú fékkst dagsbirtuna í augun var að fyrr eða síðar myndu augu þín bresta og hjarta þitt hætta að slá. Það eina sem þér var lofað var eilíf samfylgd af höfundi og fullkomnara lífsins. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kæri Addó! Guð kærleikans og lífsins gefi þér nú sinn him- neska frið í ljósinu hans bjarta. Hann blessi minningu þína og þau öll sem þú unnir heitast. Sigurbjörn Þorkelsson. Arnór Sveinsson góður vinur og frændi er látinn langt um ald- ur fram. Brottför hans kom okk- ur í opna skjöldu því Addó var einhvern veginn alltaf ungur, vel klæddur sjarmör, og vel á sig kominn þó að árin færðust yfir. Hann var sami unglingurinn og við munum hann fyrst. Í æsku mátti þegar sjá þá persónutöfra sem einkenndu hann, góðhjart- aður, hlýr og göfuglyndur en kappi á sínum sviðum. Þegar litlir bræður frændur hans vestan úr Bolungarvík komu í heimsókn í Sigtún 29 þar sem Addó bjó ásamt bræðrum og foreldrum fengu þeir að kynnast þessum eiginleikum hans. Addó unglingurinn fór salibunur með þá á skellinöðr- unni sinni og gaf sér tíma til að spila fótbolta við þessa smá- sveina þó að sjálfur væri hann orðinn mikill fótboltakappi í Fram. Og vináttu og drengskap- ar nutu þeir bræður þegar Addó dvaldi um tíma nokkra gleðiríka æskudaga á hjá foreldrum þeirra, móðurbróður Addó, Friðriki Sigurbjörnssyni, lög- reglustjóra í Bolungarvík, og konu hans, Halldóru Helga- dóttur. Lífið færir okkur bæði gleði og sorgir. Flestir fá sinn skerf af hvorutveggja. Þegar erfiðleik- arnir dynja yfir og áföllin þá skiptir mestu máli hvernig menn bregðast við og takast á við hol- skeflur og brotsjói. Addó þurfti að takast á við gríðarlegt áfall og sorgir þegar Hrafnhildur eiginkona hans var í einni svipan svipt heilsu. Skyndileg óútskýrð veikindi leiddu til algerrar fötlunar og dauða. Í þessari miklu raun stóð Addó eins og klettur, höggið var mikið en hann brotnaði ekki. Or- sakir þessa mikla harmleiks taldi hann vera læknamistök. Hann bar harm sinn í hljóði og hélt áfram lífinu af æðruleysi þess sem á meiri sálarstyrk og hugarró en margir aðrir. Á síðustu árum voru hugljú- fastar stundir í þegar Addo kom í vináttuheimsóknir á Fjölnisveg 2 og upp í sumarbústaðinn á Kiðafelli í Kjós. Þá voru málin rædd þar sem afstaða Addó til allra mála markaðist af réttlæt- iskennd. Hann gagnrýndi græðgina og misréttið og var boðberi réttlátrar skiptingar auðsins, auðlindanna og allra gæða. Hann var sósíalisti eins og verið hafði pabbi hans Svenni, Sveinn Ólafsson og Holger Nil- sen vinur Svenna og mágur. Djassmúsík átti stóran þátt í lífi Addós. Á góðum stundum hlust- aði hann á stórmenni sveiflunn- ar. Þann arf fékk hann með móð- urmjólkinni þar sem pabbi hans, Sveinn Ólafsson, var einn af fyrstu og fremstu saxófónleikur- um á Íslandi. Einu sinni kom Addó með Holger Nilsen, sem var í síðustu Íslandsferð sinni, til okkar á Fjölnisveg 2. Við sátum uppi heila nótt og drukkum heima- gert reyniberjavín. Rætt var um baráttu fyrir jafnrétti og Holger sagði frá brautryðjendastarfi í fyrstu hljómsveitunum í Reykja- vík þar sem hann hafði spilað. Frásagan var tekin upp á band og notuð í tónlistarútvarpsþátt- um Vernharðs Linnet, eins besta vinar Addó. Með þakklæti fyrir einstaka vináttu kveðjum við Addó með hans eigin orðum sem hann við- hafði hvort sem rætt var um hið alvarlega eða skondna. „Svona er lífið.“ Þorvaldur Friðriksson og Elísabet Brekkan. Arnór Sveinsson ✝ Þórunn Júlíus-dóttir fæddist á Garðskaga í Garð- inum 3. október 1928. Hún lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 22. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Helgadóttir (f. 1899, d. 1989) og Júlíus R. Guðlaugsson (f. 1902, d. 1973). Bróðir hennar var Kristján Júlíusson (f. 1933, d. 2017). Börn Þórunnar eru 1) Róbert Magnússon (f. 1948), barn hans og Sigrúnar Erlu Ólafsdóttur (f. 1962) er Bryndís Júlía (f. 1983), 2) Kristín Magnúsdóttir (f. 1950), með Kolbeini Bjarnasyni (f. 1958) á hún Jóhann Bjarna (f. 1980), kona hans er Eyrún Björk eru Baldur Rafn (f. 1976) og Katja (f. 1977), kona hans er Fjóla Guðmundsdóttir (f. 1956), dóttir hennar er Eva (f. 1977) og barnabörn Birta (f. 2000) og Breki (f. 2010). Þórunn ólst upp á Garðskaga sín fyrstu æviár og fluttist síðan á Grund í Garði við fimm ára aldur eftir að Júlíus faðir henn- ar hafði byggt það hús. Þar ólst hún upp ásamt bróður sínum Kristjáni. Hún gekk í barna- og unglingaskóla í Garðinum. Ung að aldri var hún í vist í Ölfusi í fáein ár. Við 19 ára aldur kynnt- ist hún fyrri barnsföður sínum, Magnúsi Halldórssyni, og eign- aðist með honum þau Róbert og Kristínu. Seinni barnsfaðir Þór- unnar var Hjalti Þorgeirsson og eignaðist hún með honum þá Þorgeir og Kristin (Didda). Hún fluttist til Reykjavíkur og bjó lengst af í Vesturbænum. Hún vann í Bæjarútgerðinni um tíma en fór svo að vinna á Pósthúsinu í miðbæ Reykjavíkur sem varð hennar ævistarf. Útför Þórunnar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhannsdóttir (f. 1981) og börn þeirra eru Bene- dikt Ari (f. 2010) og Lóa Kristín (f. 2014), með Hannesi Lárussyni á hún Sunnu Kristínu (f. 1989), 3) Þorgeir Daníel Hjaltason (f. 1954), börn hans og Guðrúnar Val- garðsdóttur (f. 1953) eru Kolbeinn Daníel (f. 1981), með Vilborgu Guðlaugs- dóttur (f. 1984) á hann Guðlaug Daníel (f. 2015), Tómas Freyr (f. 1985) og Þórunn Elva (f. 1989) maki hennar er Daníel Ólafsson (f. 1990), sonur þeirra er Hektor Rafn (f. 2018), barn Þorgeirs og Lauru Hjaltason (f. 1964) er Thorina Gabriela Luisa Hjalta- son (f. 2006), 4) Kristinn Rafn Hjaltason (f. 1955), börn hans Amma var algjörlega einstök. Hún var strangheiðarleg, afskap- lega ósérhlífin, hafði sterka rétt- lætiskennd og vildi allt fyrir alla gera. Veröldin væri án nokkurs vafa betri, ef fleiri væru eins og elsku amma. Samband okkar var alltaf náið og gott. Einhverjar fyrstu minn- ingar mínar af ömmu tengjast heimsóknum heim til hennar á Meistaravellina. Þar fékk ég oft að gista um helgar upp úr 1990, horfa á vídeó og borða Cocoa Puffs, sem ég fékk hvergi annars staðar að gera. Daginn eftir eld- aði amma svo oft kjúkling eða steiktan fisk handa mér í hádegismat, og sendi mig svo heim eða á fótboltaæfingu í þrist- inum. Amma var listræn og músík- ölsk. Hún spilaði á gítar og söng mikið í gamla daga, þegar vin- konurnar komu saman. Þá var hún mikill náttúruunnandi og hafði unun af því að ferðast um landið. Hún safnaði skeljum og steinum og bjó til ýmsa listmuni úr þeim. Samhliða því var hún alltaf sérstaklega meðvituð um umhverfisvernd, og var einhver fyrsta manneskjan sem ég heyrði tala um skaðsemi plasts og plast- poka í umhverfinu. Amma elsk- aði ber, og að tína þau var eitt- hvað það skemmtilegasta sem hún gerði. Hún bauð okkur fjöl- skyldu sinni með sér í sumarbú- stað í Munaðarnesi á hverju hausti í hartnær 40 ár, þar sem ber voru tínd í massavís. Amma var einstaklega góður kokkur þótt aðalsmerki hennar hafi alla tíð verið baksturinn. Hennar sérgrein var pönnukök- ur og flatkökur, sem nutu mikilla vinsælda langt út fyrir fjölskyld- una. Amma heklaði og prjónaði mikið alla ævi, og lopapeysan sem hún prjónaði á mig fyrir margt löngu hefur haldið á mér hita á fjölmörgum mikilvægum augnablikum. Amma var greind og sérlega minnisgóð allt fram á síðasta dag. Hún leysti krossgátur, lagði kapla og hafði sérstaka unun af náttúrulífsmyndum, þá sérstak- lega þeim sem komu úr smiðju Davids Attenboroughs. Þær tók hún upp á myndbandsspólur sem hún geymdi, og hafði svo unun af að sýna börnum sínum, barna- börnum og undir það síðasta barnabarnabörnum. Húmorinn var aldrei langt undan hjá ömmu. Daginn áður en hún kvaddi var ég í heimsókn hjá henni. Hún svaf dágóðan hluta heimsóknarinnar, en þegar hún vaknaði leit hún á mig og spurði í léttum dúr: „Hva, drapst ég og kom svo aftur?“ Ég mun svo aldrei gleyma því þegar við kvöddumst þennan dag, hvernig amma horfði í augun á mér og sagði ákveðið „bless“, nánast eins og hún vissi hvað væri í vændum. Ég ætla að enda þetta á broti úr texta sem ég veit að þér þótti svo vænt um, elsku amma mín. Ég vona að það sé eitthvað til í því að við eigum eftir að hittast á öðrum og betri stað síðar. Því ég sakna þín alveg óskaplega. Takk fyrir allt, elsku amma, og þá sérstaklega fyrir að gera mig að betri manni. Líkt og ástarljóð sem enginn fékk að njóta, eins og gulnað blað sem geymir óræð orð, eins og gömul hefð sem búið er að brjóta, þar er ég, þar ert þú, þar er allt það sem ástin okkur gaf. Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við. (Bjartmar Guðlaugsson) Þinn Jói. Jóhann Bjarni Kolbeinsson. Elsku mamma, amma og langamma. Takk fyrir allar samveru- stundirnar og umhyggjuna. Takk fyrir að vera gleðigjafi í tilvist- inni. Þú varst skemmtileg, rausn- arleg, hreinskilin og mikill húm- oristi. Þú fórst með okkur í berjamó, tókst okkur alltaf opnum örmum í kaffi og pönnukökur. Þú tókst þátt í heilsu okkar, lífi og varst alltaf til staðar þegar á bjátaði. Takk fyrir að vera alveg eins og þú varst. Takk fyrir lífið, ást- ina og umhyggjuna! Við munum alltaf hugsa til þín með ást og hlýju og vitum að þú færð nú loks að hvíla í friði. Þín ástkæra fjölskylda, Þorgeir Daníel, Kolbeinn Daníel, Tómas Freyr, Þórunn Elva, Thorina Gabriela, Guðlaugur Daníel og Hektor Rafn. Elsku Þórunn amma mín. Þegar ég hugsa til þín vakna margar tilfinningar en efst í huga mér er einlægt þakklæti fyrir okkar einstaka samband. Þú varst ekki bara súperamma af bestu gerð heldur vorum við svo góðar vinkonur. Mér fannst þú skilja mig svo vel, jafnvel of vel því þú gast lesið mig eins og opna bók, meira að segja milli landa! Mér fannst ég geta sagt þér frá öllum smáatriðum í fjölbreyti- legu lífi ungrar konu. Varðandi hin ýmsu álitamál og leyndarmál gat ég verið viss um að fá góðar og blátt áfram ráðleggingar. Blátt áfram, það varstu sko, amma mín. Þú varst ekki að skafa af hlutunum heldur sagðir mér alltaf það sem ég þurfti að heyra, umbúðalaust. Oft var það svo nákvæm nálgun við kjarna málsins að mig grunaði að þú hefðir tengingar við vitringa að handan. Þú áttir það til að taka löng og innileg hlátursköst, sérstaklega þegar Róbert sagði sniðugan brandara eins og hann kann best. Þá svoleiðis skellihlóst þú og við hin líka en það fyndnasta var að þú ætlaðir aldrei að hætta að hlæja. Þá héldum við hin áfram að hlæja að því að þú værir enn að hlæja þangað til við vorum máttlaus af öllum hlátrinum. Þú varst einn sá mesti dugn- aðarforkur sem Suðurnesin hafa alið af sér. Mínar fyrstu minn- ingar af þér eru þegar þú komst labbandi af Meistaravöllum á Skólavörðustíg færandi hendi með ýmist nýbakaðar flatkökur, fiskibollur, skonsur, nú eða súkkulaðibitakökur sem þú hafð- ir pakkað inn í endurnýtta mjólk- urfernu (enda langt á undan þinni samtíð í umhverfisvernd). Þú þreifst húsið hátt og lágt og varst farin þegar við heimilis- fólkið komum heim úr skóla og vinnu. Þér fannst þetta svo sjálf- sagt. Þú varst mjög örlát við þína nánustu. Það var ekkert betra en að fara í mat til þín og fá lamba- læri eða steiktan fisk. Þú bakaðir bestu pönnukökur í heimi og steiktir laufabrauð handa stór- fjölskyldunni fyrir hver jól. Þú prjónaðir lopapeysur og lopa- sokka á hersinguna í löngum bunum. Þú varst dásamlegur karakt- er. Þú varst svo hreinskilin og einlæg. Þú hafðir yndislega góða nærveru, yfir þér ríkti kyrrð eins og þú hefðir hvíta áru. Maður þurfti aldrei að setja upp grímu í kringum þig enda hefði það ekki þýtt þar sem þú sást í gegnum allar grímur. Þú eyddir ekki orku í að flækja hlutina, þú vissir alltaf hvað þyrfti að segja eða gera. Þú hafðir mikil og góð áhrif á mig. Þú stappaðir í mig stálinu þegar ég fór út af sporinu. Þú hvattir mig áfram í læknanáminu og lést mig finna hvað þú værir stolt af mér. Það var ómetanlegt. Ég vildi að ég hefði fengið að kyssa þig bless en ég var stödd í Ungverjalandi. Nóttina áður en þú fórst komstu til mín í draumi og sagðir blíðlega „Bless elskan“. Kvöldið eftir talaði ég við þig í símann í síðasta sinn og þá kvaddirðu mig með sömu orðun- um: „Bless elskan.“ Ég mun alltaf sakna þín og hugsa til þín, amma mín. Ég veit þú vakir yfir mér. Ég veit að þú hefur það gott hinum megin og við sjáumst þar. Þangað til tölum við saman eins og okkur einum er lagið. Bless, elsku amma mín. Sunna Kristín Hannesdóttir. Þórunn Júlíusdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.