Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 50

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 T I M E O U t H æ g i n d a S t ó l l + S k e m i l l TILBOÐSverð Frá kr. 268.560 fullt verð frá kr . 335 .700 T i l b o ð Í dag, þegar maður hefur látið af störfum, finnst mér vænt um aðhitta fólk sem maður hefur kynnst og man mína þjónustu ogsamskipti frá fyrri tíð. Það segir mér að kannski hafi þokkalega tekist til í prestsstarfinu sem sannarlega er gefandi þótt krefjandi sé. Ég lít sáttur til baka,“ segir sr. Svavar Stefánsson sem er sjötugur í dag. Svavar er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann vígðist til prests árið 1975, strax eftir guðfræðinám, og þjónaði þá vetrarlangt í Búðardal. Tók svo árið eftir við þjónustu í Neskaupstað og gegndi henni næstu fimmtán árin. „Árin í Neskaupstað voru góð og gefandi. Fólk þar var og er samstillt og því stóð það saman í blíðu og stríðu. Þetta var einstaklega gott samfélag sem við hjónin höldum enn sterk- um tengslum við,“ segir Svavar sem seinna var sóknarprestur um sjö ára skeið í Þorlákshöfn og frá 2003 til 2016 við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti í Reykjavík. Auk prestsstarfsins hefur Svavar starfað sem ökukennari í frí- stundum og hefur komið mörgum ungum bílstjórum á beinu brautina, ef svo má segja. „Stúlka austur í Þorlákshöfn sagði við mig að ég fylgdi þeim krökkunum alla leið; skírði, fermdi, kenndi á bíl og gifti þau svo. Þetta starf hentaði mér því nokkuð vel með prestsskap sem þó hefur alltaf verið mitt aðalstarf,“ segir Svavar sem vann í fjölda ára mikið með samtökunum Nýrri dögun og leiddi þar starf stuðn- ingshópa ástvina fólks sem hafði fallið fyrir eigin hendi. „En okkur hjónum hefur alltaf fundist gaman að ferðast, bæði inn- anlands og utan og erum núna reyndar á leiðinni utan,“ segir Svavar sem er kvæntur Auði B. Kristinsdóttur sérkennara sem starfrækir lestrarmiðstöðina í Mjódd. Þau eiga þrjú uppkomin börn og barna- börnin eru sex. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Prestur Fólk stóð saman í blíðu og stríðu, segir sr. Svavar Stefánsson. Lít sáttur til baka Svavar Stefánsson er sjötugur í dag Á rni Hermannsson fædd- ist 14. mars 1969 á Fæð- ingarheimilinu í Reykja- vík. Hann bjó í Reykjavík fyrstu tvö ár ævi sinnar en flutti þá með foreldrum sínum og eldri bróður til Akureyrar þar sem hann ólst upp. Árni gekk í Barnaskóla Akureyrar, Gagnfræðaskóla Akureyrar og Menntaskólann á Akureyri þaðan sem hann útskrifaðist 1989. Eftir menntaskóla fór Árni í þýskunám til Freiburg og lagði síðar stund á hag- verkfræði við Technische Hochschule í Darmstadt. Hann útskrifaðist síðar sem viðskiptafræðingur, cand.oecon., frá Háskóla Íslands. Árni var markaðsstjóri og síðar fjármálastjóri hjá tölvufyrirtækj- unum Áliti og síðar Anza sem varð til við sameiningu fjögurra fyrirtækja árið 2001. Frá árinu 2002 hefur Árni starfað hjá Loftleiðum Icelandic, fyrst sem fjármálastjóri og síðar sem fram- kvæmdastjóri frá ársbyrjun 2018. „Loftleiðir Icelandic er leiguflug- félag í eigu Icelandair Group og var stofnað 2002. Við ákváðum að nota gamla nafnið og það er gaman að geta þess að Loftleiðir var stofnað fyrir rétt rúmum 75 árum, 10. mars 1944. Við leigjum farþegavélar úti um allan heim og stærsti viðskiptavinurinn okkar er ríkisflugfélagið í Papúa Nýju-Gíneu, en við erum með fjórar flugvélar þar. Svo erum við að sinna lúxusflugi fyrir ferðaskrifstofur, erum með eina 757- vél sem er innréttuð 50 sæta, og á næsta ári verðum með aðra 757-vél, 80 sæta, sem verður eingöngu í flugi fyrir National Geopraphic.“ Dótturfélag Loftleiða Icelandic keypti 1. mars sl. meirihluta í ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja, Capo Verde Airlines, en Loftleiðir Icelandic hefur verið með starfsemi í öllum sjö heimsálf- unum. Árni hefur setið í fjölmörgum stjórnum, þar m á meðal í nokkrum flugfélögum, Latcharter, síðar Smart- Árni Hermannsson viðskiptafræðingur – 50 ára Fjölskyldan Árni, Hrafnhildur, Hermann, Auður og Hildigunnur þegar Hermann varð stúdent 2014. Stýrir Loftleiðum Hjónin Árni og Hildigunnur með kóalabjörn í Brisbane í Ástralíu. Saga Ljós Sigurðardóttir kom færandi hendi í Rauða krossinn um miðjan febr- úar og styrkti Rauða krossinn um 703 kr. Hún aðstoðar gjarnan fjölskyldu sína við vinnu á veitingastaðnum Burgers í Hafnarfirði og útbjó söfnunarbauk merkt- an Rauða krossinum þar sem viðskiptavinir gátu skilið eftir klink. Hlutavelta Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.