Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú gætir uppgötvað alveg nýja tekjumöguleika í dag. Gerðu við þar sem þarf eða endurnýjaðu hluti sem eru að verða ónýtir. Þú færð góðar fréttir. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert með langan lista af því sem þig langar í. Ef þú kemst ekki út úr að- stæðum sem eru hundleiðinlegar gerðu þá eitthvað til að hressa upp á sálartetrið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er óþarfi að láta hugfallast þótt aðrir hafi ekki alltaf tíma fyrir þig. At- hugaðu hvort ástæða er til að fara aftur í nám. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú verður ekki lengur undan því vikist að taka til á skrifborðinu og koma reglu á hlutina. Sýndu samstarfsvilja, vertu með opinn huga og leyfðu öðrum að létta undir með þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hvern gagnrýnir þú annan en sjálfa/n þig? Vertu ekki svona dómhörð/harður. Þú ert með stjörnur í augum vegna manneskju sem þú nýverið kynntist. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú hrósar einhverjum ertu að brúa bil. Ástarsamband þitt gengur í gegn- um erfiða tíma en það birtir aftur til. Hafðu vaðið fyrir neðan þig í samningagerð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Tíma með góðum vinum er alltaf vel varið og þú átt að láta það eftir þér í ríkara mæli að hitta þá. Það verða vatnaskil í vissu máli fljótlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú gefur endalaust af þér í sambandi, meira en góðu hófi gegnir. Yf- irleitt ertu hrókur alls fagnaðar en það er einhver lægð yfir þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver mun koma þér til bjargar á elleftu stundu. Vertu ekkert að sýta vinskap sem bara olli þér vonbrigðum. Þér fer vel að klæðast rauðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Taktu það ekki illa upp þótt vinir þínir séu ekki sammála þér í öllu. Þú lendir á villigötum í verkefni en það mun fara vel. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Frelsið er dýrmætt en það kost- ar líka sitt því öllu frelsi fylgir ábyrgð sem ekki er hægt að horfa framhjá. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er óþarfi að taka allt persónu- lega sem sagt er í hita leiksins. Þú færð óvænt frí og ættir því að nýta það sem best. Farðu í ferðalag ef þú mögulega getur. Helgi R. Einarsson sá í blöð-unum á fimmtudag frétt um að Ólafur okkar Grímsson væri á förum til Rómar að spjalla við páf- ann um smávandamál. Því varð þetta til: „Global warming“ er vandi, sem verða mun oss að grandi. Þó e.t.v. eitt fær örlögum breytt, Óli og heilagur andi. Þetta gefur tilefni til að rifja upp gamla vísu, sem tvívegis hefur birst í Vísnahorni en með mismun- andi orðalagi. Og nú birtist hún í þriðja sinn og enn nokkur orða- munur. Pétur Jónsson í Reynihlíð hafði farið á fund páfa og Starri í Garði lagði honum þessi orð í munn: Í Vatíkaninu að Kristi ég gái og kvittun synda þar eftir bíð. – „Sæll og blessaður Píus Páfi! Ég er Pétur Jónsson í Reynihlíð! Síðar bætti Starri við: Fyrrum bendlaður Magnúsi Mái, mörstjóri KÞ í seinni tíð. Magnús Már Lárusson var prest- ur á Skútustöðum 1944-1949. Og Pétur í Reynihlíð vann í sláturhúsi KÞ á Húsavík. Í gær var hér í Vísnahorni „odd- hendukrans“, sem birst hafði á Leir. Og áfram má flétta hann. Ökumaður hafði orð á því við Frið- rik Steingrímsson að hann gerði aldrei vísu nema fá sér í staupinu. Sagði honum síðan frá Austfjarða- þokunni, hvernig hún hefði þést og þykknað á víxl og tafið fyrir sér. Í þeim svifum orti hann vísu, sem því miður er gleymd. Friðrik orti – og rétt að taka fram að „skrykk“ stendur fyrir „skrykk-dans“: Hjólabykkju brá á skrykk búinn drykk að hýsa; tafði stykkjótt þokan þykk þá var – hikk – til vísa „Í Íslenskum þjóðlögum“ er þessi oddhenda undir sérstöku lagi sem séra Bjarni Þorsteinsson lærði af þingeyskri konu, en vísan er lausavísa eftir óþekktan höfund: er orðaleikur í vísunni, þar sem orðin ljá og sá eru endurtekin í þremur merkingum. Með þeim ljá, sem mér vannst ljá, mikil ljá var slegin; aflinn sá komst ofan í sá, öll þar sáust heyin. Að lokum eftir Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum: Geyma áttu geðið kátt. Gættu að máttarlinum. Virtu smátt, en hyggðu hátt. Hafðu fátt af vinum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á fund með páfa „SKO! ENGIN SKRÍMSLI. ANNAÐ HVORT ÞAÐ EÐA ÉG ER OF SNEMMA Á FERÐINNI – ÞAU ERU SVO LÚMSK.” „VÆRI ÞÉR SAMA AÐ PÚA EKKI SVONA FRAMAN Í MIG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að elda kjúklingasúpu fyrir hana í veikindum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann BANK BANK BANK BAMM! BANK BANK BANK BAMM! ÁI! ÞUMALLINN! ÁI! ÞUMALLINN! ÉG ER HÆTTUR VIÐ AÐ HENGJA MYNDINA UPP BÚINN MEÐ ÞUMLANA? BARA ÞANNIG AÐ ÞÚ VITIR ÞAÐ, HELGA … ÞÁ HEF ÉG FALIÐ NÆGT FÉ FYRIR ÞIG TIL ÞESS AÐ TRYGGJA FRAMTÍÐ ÞÍNA ÁN MÍN! ÉG MEINA EFTIR AÐ EITTHVAÐ HEFUR GERST! Tvennt er öruggt í lífinu, dauðinnog skattar. Og skattar af dauð- anum eru þá líklega það öruggasta af öllu, en því miður ekki dauði skatt- anna. Víkverji hefur alla vegana setið og strokið sveittur á sér skallann vegna framtalsins þessa vikuna. Frá- dráttur, margföldun, samlagning og deiling og allt það rugl var aldrei sterkasta hlið Víkverja. Hann var sem sagt ekki frádráttarbær í skóla á sínum tíma. x x x Miðað við fyrstu útreikninga sýnistVíkverja sem að hann muni ekki fá mikinn frádrátt eða glaðninga frá skattinum í ár. Hann tekur eftir því að einhver hluti þess sem keisarinn tekur til sín fer í framkvæmdasjóð aldraðra. Víkverji væri alveg til í að halda þeim peningi eftir hjá sér, og setja hann í staðinn í framkvæmda- sjóð miðaldraðra Víkverja. Það er þó ólíklegt að Víkverji fái leyfi til þess. x x x Michael Jackson heitinn, sem eittsinn var titlaður poppprinsinn, hefur heldur betur fallið í verði síð- ustu vikur eftir að heimildarmynd um ódæði söngvarans ljóstraði upp um nokkuð, sem þó virðist hafa verið vit- að í fjölmörg ár. Víkverji minnist þess að talað hafi verið um sögusagnir um óeðli Jacksons í meira en tuttugu ár, auk þess sem hann var að sjálfsögðu kærður fyrir slík brot í tvígang. Það er þó ekki fyrr en núna að útvarps- stöðvar hafa hætt að spila lög manns- ins, sem sum hver eru þó meðal þekktustu verka vestrænnar popp- tónlistar. x x x Víkverji hefur í kjölfarið séð allskyns umfjallanir um hvar mörkin liggi þegar um list og listamenn er að ræða, hvenær ásakanir á hendur þeim verði svo ofboðslegar að nauð- synlegt sé að sniðganga verk þeirra. Víkverji hefur mikla samúð með þol- endum Jacksons, og sjálfur hefur hann aldrei verið meðal aðdáenda „poppgoðsins“. Hann veltir aftur á móti fyrir sér hvort allir sem nú fá þó spilun í útvarpi, eða hafa fengið verk sín sýnd í kvikmyndahúsum eða lista- söfnum, kæmust í gegnum nálar- augað. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús segir við hann: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig (Jóh: 14.6) TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Húsnæðið er áberandi og vel staðsett með tengingu við Sæbraut. Á lóðinni eru 279 bílastæði sem tilheyra öllu húsinu. Í húsnæðinu er meðal annars Málningavöruverslun Slippfélagsins og ÁTVR. Húsnæðið skiptist í verslunarrými um 1.200 m², lager um 500 m² en þar er um 4-5 metra lofthæð og skrifstofuhúsnæði á 2. hæð um 650 m² og 450 m². Húsnæðið er laust til afhendingar. Mögulegt að leigja hlut húsnæðisins, 1.200 m², 600 m² eða 300 m² skv. nánara samkomulagi. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Skútuvogur 2, 104 Rvk. Gerð: Verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði Stærð: 2.766 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Bergsveinn Ólafsson Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari og rekstrarfræðingur 863 5868 | 534 1028 bergsveinn@jofur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.