Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Íslensku tónlistarverðlaunin voru
veitt í Silfurbergi í Hörpu í gær-
kvöld og voru það GDRN, Víkingur
Heiðar, Auður, Karl Olgeirsson,
Valdimar, Jónas Sig. og JóiPé og
Króli sem hlutu flest verðlaun fyrir
tónlistarárið 2018 en Jón Ásgeirsson
hlaut sérstök heiðursverðlaun.
Alls voru veitt 38 verðlaun en ein
þeirra voru afhent í fyrradag, verð-
laun fyrir plötuumslag ársins, í
þættinum Menningunni á RÚV og
hlaut þau Ámundi Sigurðsson hönn-
uður og Jónatan Grétarsson ljós-
myndari fyrir umslag plötu Jónasar
Sig., Milda hjartað.
Frábær byrjun
GDRN er listamannsnafn tónlist-
arkonunnar Guðrúnar Ýrar Eyfjörð
Jóhannesdóttur sem kvað sér hljóðs
í fyrra með plötunni Hvað ef. GDRN
kom, sá og sigraði í gærkvöldi. Hún
hlaut verðlaun fyrir poppplötu árs-
ins, popplag ársins („Lætur mig“
sem hún syngur með rapparanum
Flóna og samdi með ra:tio), verðlaun
sem söngkona ársins í flokki popp-,
rokk-, raf- og hiphoptónlistar og fyr-
ir myndband ársins, við fyrrnefnt
„Lætur mig“ sem Ágúst Elí Ásgeirs-
son leikstýrði.
Vinur Guðrúnar og samstarfs-
maður, Auðunn Lúthersson, sem
gengur undir listamannsnafninu
Auður, hlaut tvenn verðlaun en hann
hlaut flestar tilnefningar í ár eða
átta alls. Breiðskífa hans Afsakanir
var valin plata ársins í raftónlistar-
flokki og Auður var svo valinn laga-
höfundur ársins 2018. Í rappinu var
það tvíeykið JóiPé & Króli sem hlaut
verðlaun fyrir plötu ársins, Afsakið
hlé og einnig fyrir rapplag ársins, „Í
átt að tunglinu“.
Víkingur og Valdimar með
tvenn verðlaun
Í flokki sígildrar og samtíma-
tónlistar hlaut píanóleikarinn Vík-
ingur Heiðar Ólafsson verðlaun fyrir
plötu ársins, hljóðritanir á píanó-
verkum eftir J.S. Bach og hann var
einnig valinn tónlistarflytjandi árs-
ins, Oddur Arnþór Jónsson söngvari
ársins og söngkona ársins Hallveig
Rúnarsdóttir. Þótti óperan Brothers
eftir Daníel Bjarnason, í uppsetn-
ingu Íslensku óperunnar, vera tón-
listarviðburður ársins í sama flokki.
Af öðrum verðlaunum má nefna
að í flokki popp- og rokktónlistar átti
hljómsveitin Valdimar rokkplötu
ársins, Sitt sýnist hverjum og Valdi-
mar Guðmundsson var valinn söngv-
ari ársins. Gyða Valtýsdóttir átti
plötu ársins í opnum flokki, Evolut-
ion og Ómar Guðjónsson hlaut verð-
laun fyrir bestu upptökustjórn á
plötunni Milda hjartað.
Í flokki djass- og blústónlistar var
það Karl Olgeirsson sem hlaut tvenn
verðlaun, fyrir djassplötu ársins,
Mitt bláa hjarta, og sem lagahöfund-
ur ársins. Tónleikaraðir Jazzklúbbs-
ins Múlans voru kosnar tónlistar-
viðburðir ársins 2018 . Það var svo
mennta- og menningarmálaráð-
herra, Lilja Alfreðsdóttir, sem af-
henti Jóni Ásgeirssyni heiðursverð-
laun Samtóns, samtakanna sem
standa að verðlaununum.
Eftirfarandi er listi yfir alla verð-
launahafa Íslensku tónlistarverð-
launanna fyrir árið 2018.
Rokk, popp, raftónlist, rapp
og hiphopp
Plata ársins – Popp
GDRN – Hvað ef
Plata ársins – Rokk
Valdimar – Sitt sýnist hverjum
Plata ársins – Rapp/Hiphop
JóiPé & Króli – Afsakið hlé
Plata ársins – Raftónlist
Auður – Afsakanir
Lag ársins – Popp
GDRN – „Lætur mig“
Lag ársins – Rokk
Benny Crespo’s Gang – „Another
Little Storm“
Lag ársins – Rapp/Hiphop
JóiPé & Króli – „Í átt að tunglinu“
Lagahöfundur ársins
Auðunn Lúthersson (Auður)
Textahöfundur ársins
Svavar Pétur Eysteinsson
(Prins Póló)
Söngkona ársins
Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
(GDRN)
Söngvari ársins
Valdimar Guðmundsson
Tónlistarviðburður ársins
Aldrei fór ég suður
Tónlistarflytjandi ársins
Hatari
Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku
tónlistarverðlaunanna
Bríet
Tónlistarmyndband ársins 2018 –
Albumm.is og Íslensku tónlistar-
verðlaunin
GDRN – „Lætur mig“ með Flóna og
ra:tio. Leikstjóri: Ágúst Elí
Opinn Flokkur / Þjóðlagatónlist
/ Kvikmynda- og leikhústónlist
Útgáfa ársins – Kvikmynda- og
leikhústónlist
Davíð Þór Jónsson – Kona fer í stríð
Plata ársins – Opinn flokkur
Gyða Valtýsdóttir – Evolution
Plata ársins – Þjóðlagatónlist
Umbra – Sólhvörf
Lag/tónverk ársins
Arnór Dan, „Stone by stone“
Plötuumslag ársins
Jónas Sig. – Milda hjartað
Hönnun: Ámundi Sigurðsson
Ljósmyndir: Jónatan Grétarsson
Upptökustjórn ársins
Ómar Guðjónsson fyrir Milda
hjartað – Jónas Sig.
Sígild og samtímatónlist
Plata ársins
Johann Sebastian Bach – Víkingur
Heiðar Ólafsson
Tónverk ársins
Spectra – Anna Þorvalds
Tónlistarflytjandi ársins –
einstaklingar
Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónlistarflytjandi ársins – hópar
Strokkvartettinn Siggi
Söngvari ársins
Oddur Arnþór Jónsson
Söngkona ársins
Hallveig Rúnarsdóttir
Tónlistarviðburður ársins –
Tónleikar
Brothers eftir Daníel Bjarnason –
Íslenska óperan, Sinfóníuhljómsveit
Íslands ásamt einsöngvurum og kór
Íslensku óperunnar
Tónlistarhátíð ársins – hátíðir
Óperudagar í Reykjavík
Bjartasta vonin
Björk Níelsdóttir
Djass og blús
Plata ársins
Karl Olgeirsson – Mitt bláa hjarta
Tónverk ársins
Bugða – Agnar Már Magnússon
Lagahöfundur ársins
Karl Olgeirsson
Tónlistarflytjandi ársins –
Einstaklingar
Kjartan Valdemarsson
Tónlistarflytjandi ársins – Hópar
Stórsveit Reykjavíkur
Tónlistarviðburðir ársins
Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans
Bjartasta vonin
Daníel Helgason
Heiðursverðlaun og sérstök
verðlaun Samtóns og Ístóns
Jón Ásgeirsson.
GDRN hlaut flest verðlaun
Morgunblaðið/Eggert
Fengsæl GDRN sést hér taka við einum af fernum verðlaunum, sem söngkona ársins, í Hörpu í gærkvöldi.
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gær 38 verðlaun Hatari og Víkingur Heiðar
tónlistarflytjendur ársins 2018 Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, GDRN, hlaut fern verðlaun
Heiðursverðlaunahafi Íslensku tón-
listarverðlaunanna 2018 er tón-
skáldið Jón Ásgeirsson. Þótt Jón
hafi á langri ævi verið afkastamikið
tónskáld og sé einna þekktastur
fyrir söngtónlist sína; sönglög, kór-
verk og óperur, var hann jafnframt
kennari og höfundur kennslubóka í
tónlist. Hann hefur komið víða við í
íslensku tónlistarlífi, án hans fram-
lags væri það án efa snauðara.
Spurður hvort heiðursverðlaunin
hafi komið honum á óvart segist
hann einfaldlega ekkert hafa verið
að spekúlera í hvort hann, níræður
maðurinn, fengi þau eða einhver
annar – eða yfirhöfuð þessum verð-
launum.
„Ég tek heiðursverðlaununum
með þökkum og gleðst yfir því að
einhver njóti þess sem maður hefur
verið að gera. Það tel ég einhvers
virði, ekkert annað,“ segir Jón.
Fjölbreyttar tónsmíðar
Í kynningu á heiðursverðlauna-
hafanum á verðlaunaafhending-
unni í gær var farið yfir feril Jóns
og talin upp helstu verk hans;
kammerverk fyrir mismunandi
hljóðfæraleikara, sex konsertar
fyrir ýmis hljóðfæri, síðast flautu-
konsert, sem var frumfluttur á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í ársbyrjun. Óperur hans voru
upptaldar, t.d. Þrymskviða, fyrsta
óperan sem sett var á svið eftir ís-
lenskt tónskáld og frumflutt í Þjóð-
leikhúsinu árið 1974. „Galdra-
Loftur var frumsýndur í Íslensku
óperunni árið 1996 og tvær aðrar
óperur bíða flutnings. Þá samdi Jón
ballettinn Blindisleik sem sýndur
var í Þjóðleikhúsinu árið 1979,“
kom fram í kynningu og jafnframt
að Jón væri manna kunnastur ís-
lenskum þjóðlögum, sem hann hefði
gert sér mat úr í fjölmörgum verka
sinna.
Sjálfur minnist Jón á Blindisleik
þegar hann er beðinn um að nefna
nokkur verka sinna, sem honum
finnst helst standa upp úr. „Heils-
kvölds-ballett,“ segir hann af því að
verkið er svo langt í flutningi. „Það
tók mig tíu ár að semja og útsetja
ný lög við alla fimmtíu Passíusálm-
ana, eitt og eitt lag í einu,“ rifjar
Jón upp.
Í kynningunni eru m.a. eftirfar-
andi upplýsingar um lífsstarf Jóns:
„Einsöngslög Jóns eru um 90 tals-
ins. Hæst ber lög hans við ljóð Hall-
dórs Laxness: „Maístjörnuna“, „Hjá
lygnri móðu“ og „Vor hinsti dag-
ur“, þá má nefna sönglagaflokkinn
„Svartálfadans“ við ljóð Stefáns
Harðar Grímssonar og hvert
mannsbarn á Íslandi þekkir kórlag
hans við vísur Vatnsenda-Rósu:
„Augun mín og augun þín“. Á með-
al stærri kórverka Jóns eru „Tím-
inn og vatnið“ við ljóð Steins Stein-
ars og „Á þessari rímlausu
skeggöld“ við samnefnt kvæði Jó-
hannesar úr Kötlum.“
Hlustar mikið á tónlist
Jón segist hvorki semja tónlist
lengur né spila á píanó. „Ég hlusta
mikið á tónlist í sjónvarpinu, en út-
varpinu þó aðallega, því eftir að ég
missti sjónina pirrar það mig að sjá
ekki neitt á skjánum. Síðan hef ég
ekki snert píanóið því ég ákvað að
vera ekkert að fikta til þess að
valda sjálfum mér ekki vonbrigðum
yfir að geta ekki spilað þetta eða
hitt,“ segir Jón. Í og með vegna
sjónleysisins segist hann ekki hafa
treyst sér til að halda ræðu um leið
og hann þakkaði fyrir heiðurs-
verðlaunin í gær. vjon@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Heiðursverðlaunahafi Jón Ásgeirsson tónskáld tekur hér við verðlaununum úr hendi Lilju Alfreðsdóttur.
„Gleðst yfir því
að einhver njóti“
Jón Ásgeirsson hlaut heiðursverðlaun