Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 64
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LJÓSADÖGUM
AF ÖLLUM LJÓSUM
30% AF PERUM
LÝKUR Á MÁNUDAG
20-50%
Á bókmenntakvöldi sem hefst kl.
20 í Hannesarholti í kvöld verður
dagskrá helguð höfundarverki Álf-
rúnar Gunnlaugsdóttur rithöfundar.
Gestir fá að kynnast verkum hennar
og þá „verður stillt upp rennibraut
um Álfrúnu og verk hennar sem rit-
höfundar, fræðimenn og leikarar
renna sér niður á leifturhraða og
bjóða upp á örfyrirlestra, upplestur
og óvæntar uppákomur.“
Dagskrá helguð höf-
undarverki Álfrúnar
FIMMTUDAGUR 14. MARS 73. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Undanfarin þrjú ár hafa bókstaf-
lega farið í undirbúning að því að
verða atvinnumaður í handbolta.
Og nú hef ég verið heppin og upp-
skorið laun erfiðis. Ég geri mér hins
vegar grein fyrir að nú tekur meiri
alvara við,“ segir Mariam Eradze,
landsliðskona í handknattleik, sem
er komin á atvinnusamning í
Frakklandi. » 1
Meiri alvara hjá
Mariam í Frakklandi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kiwanishreyfingin hefur starfað á
Íslandi í rúm 55 ár og 24.-26. maí
verður Evrópuþing í Reykjavík, en
þar er ráðgert að afhenda afrakstur
af sölu K-lykilsins til styrktar geð-
sjúkum fyrr í sama mánuði.
Óskar Guðjónsson tók við sem
forseti Kiwanis í Evrópu í október
sl. eftir að hafa verið kjörinn í emb-
ættið á Evrópuþinginu á Ítalíu í vor
sem leið. Hann var kosinn varafor-
seti á þinginu í Austurríki 2016 og
kjörforseti 2017. „Íslendingar hafa
alla tíð verið mjög öflugir í Kiwanis-
hreyfingunni í Evrópu,“ segir Ósk-
ar, sem er sjöundi Íslendingurinn til
að gegna forsetaembættinu.
Um 600.000 eru í Kiwanisfjöl-
skyldunni á heimsvísu. Mest hafa
verið um 1.350 manns í hreyfing-
unni á Íslandi en félagsmenn eru nú
rúmlega 800. „Á heimsvísu erum við
samt fjölmennust miðað við höfða-
töluna frægu,“ segir forsetinn, en
hreyfingin var stofnuð í Bandaríkj-
unum 1915 og var lengi vel einungis
þar og í Kanada.
Þjónusta börn heimsins
Kiwanis er alþjóðleg þjónustu-
hreyfing með það helst að markmiði
að þjónusta börn heimsins undir
kjörorðinu Serving the Children of
the World. Óskar segir að sam-
vinnuverkefni með Unicef um bar-
áttu gegn stífkrampa hafi lokið fyrir
tveimur árum en samt sé enn unnið
að því. „Íslenska K-dags verkefnið
okkar verður í 15. sinn í maí, en
þriðja hvert ár söfnum við fram-
lögum til styrktar geðsjúkum.“
Hann bætir við að ráðgert sé að af-
henda afrakstur af sölunni á Evr-
ópuþinginu síðar í sama mánuði.
Óskar byrjaði í Kiwanis fyrir um
30 árum, þegar hann varð félagi í
klúbbnum Brú á Keflavíkurflugvelli
1989. Það var sameiginlegur klúbb-
ur íslenskra starfsmanna á vell-
inum, bandarískra hermanna og
annarra útlendinga sem störfuðu
þar í alþjóðasamstarfinu. Þegar
starfsemi Bandaríkjanna á vellinum
var hætt missti Óskar starfið, fékk
vinnu í Reykjavík og gekk í Kiw-
anisklúbbinn Eldey í Kópavogi, þar
sem hann býr. Hann var umdæmis-
stjóri umdæmisins Ísland-Færeyjar
2009 til 2011. „Sá sem átti að taka
við af mér forfallaðist á síðustu
stundu þannig að ég hélt áfram ann-
að ár og varð þar með sá fyrsti til
þess að vera umdæmisstjóri í tvö
ár.“
Árið 2012 var Óskar kjörinn í
heimsstjórn Kiwanis, en þar hafði
Eyjólfur Sigurðsson áður setið og
var m.a. heimsforseti. Eftir þrjú ár í
stjórninni ákvað Óskar að snúa sér
að Evrópuhreyfingunni og fékk þar
góða kosningu í forsetaembættið.
Von er á um 200 erlendum fulltrú-
um auk um 100 íslenskra á Evrópu-
þingið í vor. „Gunnsteinn Björnsson
frá Sauðárkróki verður í framboði í
heimsstjórnina og við gerum okkur
góðar vonir enda þingið haldið á
heimavelli,“ segir Óskar.
Forystumenn Bernhard Jóhannesson, fráfarandi forseti Kiwanisklúbbsins Jörfa í Reykjavík, Guðmundur H. Guð-
jónsson, núverandi forseti, og Óskar Guðjónsson, forseti Kiwanis í Evrópu.
Evrópuþing í Reykjavík
Óskar Guðjónsson sjöundi Íslendingurinn í starfi forseta
Kiwanis í Evrópu Íslenska K-dags verkefnið í 15. sinn
Gítarleikarinn Hilmar Jensson kemur
fram á tónleikum í menningarhúsinu
Mengi við Óðinsgötu í kvöld klukkan
21. Hilmar hyggst leika jöfnum hönd-
um eigin lög og annarra, eftir því
sem andinn blæs honum í brjóst.
Hilmar er fjölmenntaður gítarleikari
og hefur hljóðritað og leikið tónlist
víða, m.a. í einum 35 löndum með
tríói sínu TYFT og fleir-
um en hann hefur
leikið með ólíku
tónlistarfólki
gegnum árin. Þá
hefur Hilmar
komið fram á yfir
50 hljómplötum.
Hilmar glímir við gítar-
inn í Mengi í kvöld