Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 9

Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis hefur fjallað um skýrslu Rík- isendurskoðunar um starfsemi og eftirlit Fiskistofu. Í niðurstöðum nefndarinnar er meðal annars gagn- rýnt að ekki hafi verið settar reglu- gerðir um ákveðna þætti í starfsemi Fiskistofu. Þar koma einnig áhyggj- ur af að eftirlit með nýtingu sjáv- arauðlindarinnar sé ófullnægjandi. Skylt að setja reglugerð Í niðurstöðum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir að í skýrslu Ríkisendurskoðanda komi fram að á tveimur stöðum í lögum sé mælt fyrir um skyldu ráðherra til að setja reglugerð sem varði starfsemi Fiskistofu og eftirlit. Meðal annars segi í lögum um Fiskistofu að ráð- herra skuli með reglugerð kveða nánar á um skipulag og starfsemi Fiskistofu. Sú reglugerð hafi ekki verið sett þótt ákvæðið hafi staðið nær óbreytt frá því að lögin voru sett árið 1992. Í skýringum atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytisins segi að það telji fullnægjandi að fiskistofustjóri ákveði skipulag stofnunarinnar og að kveðið sé á um verkefni hennar í lögum og reglugerðum á sviði sjáv- arútvegs. Nefndin leggur hinsvegar áherslu á að ráðherra er samkvæmt lögunum skylt að setja slíka reglu- gerð. Nefndin telur ljóst að ráð- herra sé ekki heimilt að framselja ákvörðunarvald um skipulag stofn- unarinnar með öllu til fiskistofu- stjóra heldur beri honum að mæla fyrir um megindrætti og starfsemi Fiskistofu í reglugerð. Þá segi í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar að hafnir skuli uppfylla kröfur um aðstöðu til vigt- unar sjávarafla og eftirlit sem kveð- ið er á um í reglugerð og geti ráðu- neytið bannað löndun sjávarafla í einstökum höfnum sem ekki full- nægi kröfum reglugerðarinnar. Þessi reglugerð hafi ekki verið sett og megi því draga þá ályktun að efni ákvæðisins hafi ekki verið hrundið í framkvæmd, segir í niðurstöðum nefndarinnar. Ráðist verði í endurskoðun Því er beint til ráðuneytisins að gæta að ákvæðum laga um lægra sett stjórnvöld og ákvæðum um sjálfstæð stjórnvöld. Þá er því beint til atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytis að gæta að sjónarmiðum um framsal ákvörðunarvalds. Ráðuneytið er hvatt til að ráðast í endurskoðun á 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða. Í samantekt eftirlits og stjórnskipunarnefndar um skýrslu ríkisendurskoðanda seg- ir m.a.: „Í skýrslunni segir að at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti telji engin sérstök vandkvæði vera hjá Fiskistofu við að sinna eftirliti með samþjöppun skv. 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Hins vegar eru raktar tillögur til lagabreytinga og minnisblöð ráðuneytisins þar sem vandinn er a.m.k. viðurkenndur. Ríkisendurskoðandi hvetur til þess að ráðist verði í endurskoðun á 13. og 14. gr. laga um stjórn fisk- veiða og tekur nefndin undir það sjónarmið. Að mati nefndarinnar er ljóst að vandinn sé til staðar og hafi verið ljós um langa hríð.“ Viðurlög hafi áhrif Því er beint til ráðuneytisins við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar að hafa í huga að útfæra viðurlög þannig að þau hafi í senn fæling- armátt og varnaðaráhrif. Einnig eru atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneyti og Fiskistofa hvött til að skoða skilvirkari og hag- kvæmari úrlausnir við eftirlit og til að tryggja betur í sessi samstarf og samráð. Gagnrýna skort á reglugerðum um Fiskistofu  Áhyggjur vegna ófullnægjandi eftir- lits með nýtingu sjávarauðlindarinnar Morgunblaðið/Ómar Karfi Ýmis tilmæli til ráðuneytis er að finna í skýrslu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining á sótthitabreytist eftir aldri? Thermoscaneyrnahita- mælirinnminnveit það.“ Braun Thermoscan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 TILBOÐSDAGAR 15-20% afsláttur af öllum vörum. ÞV O TT AV ÉL A R KÆ LI SK Á PA R HELLUBORÐ ÞURRKARAR SMÁTÆKI U PPÞVO TTAVÉLA R OFNAR RYKSUGUR VIFTUR OG HÁFAR Skoðaðu úrvalið okkar á *FRí heImkeyRSLA í neTveRSLun LO K A D A G A R Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Þetta mjakast áfram,“ segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangár- þings ytra, um vegtengingu frá Odda á Rangárvöllum yfir á Bakkabæja- veg með brú yfir Þverá. Vegurinn, um 2 km spotti, er að uppistöðu kom- inn og nú um mánaðamótin mun verktakinn koma sér fyrir til að hefja smíði á stöplum og sökklum fyrir brúna sem verður 92 metra löng. Ágúst vonast til þess að fram- kvæmdin taki ekki langan tíma. Hann reiknar með að uppsteypu ljúki í apríl og síðan verði hægt að halda beint áfram með stálbita og brúargólfið. „Þetta verður gríðarleg samgöngubót og langþráð,“ segir hann, og auki ennfremur mjög ör- yggi íbúanna. Öryggisatriði að reisa brúna Svo háttar til að Þverá skilur nokkra bæi á Rangárvöllum, svokall- aða Bakkabæi, frá öðrum sveitum Rangárþings ytra. Íbúarnir þurfa að fara um Vestur-Landeyjar sem eru í öðru sveitarfélagi og í gegnum Hvolsvöll til að komast til stjórn- sýslumiðstöðvar sinnar á Hellu. Lengi hefur verið rætt um að fá brú á Þverá til að tengja þessa bæi við Odda en þaðan er greið leið að Hellu. Brúin væntanlega er öryggisatriði ef kemur til mikilla flóða vegna elds- umbrota í jöklum og rýma þarf skyndilega á þessu svæði en sú hætta er ávallt yfirvofandi. Hefur lögreglu- stjórinn á Suðurlandi eindregið stutt verkefnið sem og almannavarnir hér- aðsins. Þá er það nefnt að með brúnni skapist fjölbreyttari mögu- leikar fyrir ferðamenn í nágrenninu, en mikill vöxtur er í ferðaþjónustu á svæðinu. Brúin og vegagerðin eru sam- starfsverkefni Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins. Oddabrú yfir Þverá í sjónmáli  Samgöngubót og eykur öryggi íbúa Morgunblaðið/RAX Þverá Áin skilur Bakkabæina frá öðrum sveitum Rangárþings ytra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.