Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019
Ferðir mínarhingað tilLundúna í
gegnum árin eru
orðnar margar,
enda á borgin í mér
hvert bein. Hér er
margt spennandi að
sjá og skoða og allt-
af áhugaverðir við-
burðir í menning-
unni. Núna erum við
hjónin nýkomin af
söngleik um Tinu
Turner, söngkonuna
sem ég sá einu sinni
á tónleikum hér.
Þessi borg hefur
verið uppspretta svo
óendanlega margs
skemmtilegs í mínu
lífi,“ segir Sigríður
Dóra Sverrisdóttir á
Vopnafirði sem er
60 í dag. „Í þessum
töluðum orðum er-
um við á leið til Tis-
bury sem er hér suð-
vestan við borgina.
Þar ætlum við að
heilsa upp á góðan vin, sir. Simon Rasch, breskan aðalsmann sem í
áratugi kom til laxveiða á Íslandi. Honum kynntist ég á þeim góðu
tímum þegar ég sá um matseld og fleira í veiðihúsunum í Vopna-
firði.“
Sigríður Dóra er Akureyringur að uppruna en fluttist um ferm-
ingaraldur á Vopnfirði með foreldrum sínum. „Ég festi hér rætur og
vil ekki annars staðar vera, litla þorpið heldur vel utan um fólkið
sitt. Ég hef sinnt mörgu á staðnum en í dag vinn ég á leikskólanum,“
segir Sigríður Dóra sem fyrr á árum var driffjöður í menningar-
málum á Vopnafirði. Kom þá að undirbúningi og skipulagningu ým-
issa áhugaverðra viðburða, svo sem tónleika, sýninga, skemmti-
kvölda og annars slíks ágætis sem efnt var til í byggðarlaginu. Barst
glaður ómur af þessum menningarvökum víða um land, enda komu
þær Vopnafirði á kortið.
„Við verðum hér í London fram að helgi, fljúgum þá heim og för-
um austur. Leiðin liggur svo aftur hingað til Bretlands 12. maí en þá
keppa mínir menn í Liverpool við Wolves á Anfield Road – og el ég
þá von í brjósti að þar muni þeir ná meistaratitli,“ segir Sigríður
Dóra sem er gift Svavari Halldórssyni og eiga þau tvö uppkomin
börn og önnur tvö barnabörn. sbs@mbl.is
Vopnfirðingur Sigríður Dóra á heimavelli.
Ljúft líf í Lundúnum
Sigríður Dóra Sverrisdóttir er sextug í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
G
rímur Þór Valdimarsson
fæddist 20. mars 1949 í
Reykjavík og sleit
barnskónum í Laugar-
nes- og Vogahverfi inn-
an um þéttbýlisbændur og hesta-
menn. „Þá var listasetur Ásmundar
Sveinssonar við Sigtún mikilvægur
leikvöllur þar sem börnin í hverfinu
voru aufúsugestir. Í Laugarnesskól-
anum voru fyrstu skrefin á mennta-
brautinni tekin með daglegum
skammti af lýsistöflum og morgun-
söng undir handleiðslu Ingólfs Guð-
brandssonar. Eftir það lá leiðin í
Langholts- og Vogaskóla þar sem 33
nemenda bekkir þóttu eðlileg stærð.
Eins og við átti um flesta nýbúa höf-
uðborgarinnar á þeim tíma voru mik-
il tengsl við sveitina, við afa, ömmu
og frændfólkið. Í hvorugri sveitinni
var rafmagn og notast við steinolíu-
lampa, en afi í Hvammi hafði byggt
vatnsaflsstöð sem nægði til að lýs-
ingar með fimm ljósaperum. Sem
auðvitað varð að slökkva á þegar
mjaltavélin var ræst!“
Eftir landspróf í Vogaskóla lá leið-
in í Menntaskólann í Reykjavík sem
lauk með stúdentsprófi árið 1969.
„Líffræði var uppáhaldsgrein í MR
enda Örnólfur Thorlacius betri en
enginn í að kveikja áhuga. Við Há-
skóla Íslands var nýstofnuð líf-
fræðiskor með frábæru fólki, enda
varð námsdvölin þar á bæ afar
ánægjulegur tími sem lauk með BS-
prófi árið 1973. Líffræðistúdentinn
var heppinn með að hafa fengið sum-
arvinnu á gerlarannsóknastofu í Út-
varpshúsinu að Skúlagötu 4, eins og
það var kallað, en þar var til húsa auk
útvarpsins Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins og Hafrannsóknastofnun.
Örveruheimurinn heillaði strax,
enda undirstaðan að heilnæmi mat-
væla og geymsluþoli. Þótt húsamygla
hafi ekki verið orðin stórmál á þeim
tíma á Íslandi þá var þurrafúi í eikar-
skipum það svo sannanlega, en þau
mál heyrðu undir dr. Sigurð Péturs-
sonar sem stýrði rannsóknarstof-
unni.“ Að loknu BS-prófi við HÍ var
haldið til Glasgow í Skotlandi, til að
rannsaka bakteríur og aðrar örverur
sem áhrif gætu haft á eldisþorsk í
sjókvíum. Lauk þeirri vinnu með
doktorsprófi árið 1977. „Á Skotlands-
árunum hafði fjölskyldan stækkað og
Grímur Þ. Valdimarsson örverufræðingur – 70 ára
Fjölskyldan Grímur og Kristín ásamt afkomendum sínum heima í Árbænum í Reykjavík.
Var forstjóri hjá SÞ
Hjónin Kristín og Grímur á
blómahátíð í Genzano á Ítalíu.
Guðrún Ársælsdóttir á 80 ára af-
mæli í dag. Hún býr í Hafnarfirði
ásamt eiginmanni sínum, Stein-
móði Einarssyni. Þau eiga fjögur
börn, sex barnabörn og fimm
barnabarnabörn. Eitt barnabarna
hennar, Aldís Guðrún Ársælsdóttir,
á 30 ára afmæli í dag, sjá hér til
hliðar.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.