Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 30

Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rapp er ekki áberandi í hinum tón- elsku Færeyjum þó fjölbreytni í tónlist sé þar annars mikil. Silvurdrongur, hip hop-sveit leidd af rapparanum og ljóðskáldinu Trygva Danielsen og upptökustjórnand- anum Per I., hefur þó notið mikilla vinsælda frá árinu 2017 enda einkar áhugaverð og líkleg til frekari af- reka. Silvurdrongur gaf út sína fyrstu breiðskífu, Silvurpláta (Silfurplata) í fyrra og hlaut fyrir tilnefningu til Færeysku tónlistarverðlaunanna, fyrir bestu plötu í flokki dægur- tónlistar. Hlaut verðlaunin að vísu ekki en tilnefningin hlýtur þó að teljast gæðastimpill. Rapparinn Trygvi, Silfurdrengurinn, er með skemmtilega letilegan stíl, hálf- gerður muldrari og rímur hans eru allar á færeysku. Og Trygvi er mik- ill rólyndispiltur eins og blaðamaður komst að þegar hann hitti hann yfir kaffibolla í Þórshöfn, degi eftir af- hendingu verðlaunanna. Myrkari textar Trygvi er spurður að því hvernig hann skilgreini sig sem tónlistar- mann, hvort hann sé rappari eða eitthvað annað? „Þú getur alla vega kallað þetta takt og kveðskap,“ svarar Trygvi kíminn og virðist lítt gefinn fyrir slíkar skilgreiningar. Silvurdrongur flutti með tilþrifum sinn stærsta smell á Færeysku tón- listarverðlaununum 9. mars, „Rógv ella ró“ og leikur blaðamanni for- vitni á að vita um hvað hann er að rappa í laginu. „Ég hef fengið nóg, ég er ekki eins og þú,“ svarar Trygvi og vísar með því í algengustu setningu lagsins sem hann segir fjalla um ergilegan mann sem finni hvergi hugarró. „Lagið fjallar um að hlusta ekki á raddir þeirra sem vilja að þú sért eitthvað sem þú vilt ekki vera,“ bætir hann við. Hefur hann reynslu af því? „Ja, allir heyra radd- ir sem segja þeim að vera svona eða hinsegin,“ svarar Trygvi sposkur. En um hvað er hann að rappa, svona almennt séð? „Aðallega hvernig sé að vera á lífi í Færeyjum árið 2019,“ svarar Trygvi. Á end- anum snúist textarnir um að tjá ólíkar tilfinningar, þeir nýjustu séu ansi myrkir og finna megi illsku í þeim. Eðlilegra að tjá sig á færeysku Trygvi er ekki aðeins tónlistar- maður heldur líka ljóðskáld og kvik- myndagerðarmaður. Hann hefur gefið út ljóðabækur á færeysku og segist vilja rappa á móðurmálinu. Það hafi hins vegar ekki verið með- vituð ákvörðun heldur gerst af sjálfu sér. Hann segir sér eðlilegra að tjá sig á móðurmálinu, honum þyki einfaldlega skrítið að rappa á ensku. En þegar kemur að söng þykir Trygva hins vegar auðveldara að syngja á ensku og hann segist van- ari því. „Nánast öll tónlist sem ég hlusta á og hef gaman af er á ensku og því syng ég meira á ensku,“ út- skýrir hann en segir Færeyinga þó búa yfir ríkulegri sönghefð og vera söngelsk þjóð. Trygvi var eini rapparinn í hópi þeirra sem tilnefndir voru til Fær- eysku tónlistarverðlaunanna sem kemur ekki á óvart því rapp er lítið áberandi í færeysku tónlistarlífi, öf- ugt við það íslenska. Trygvi segir engu að síður nokkra rappara að finna í eyjunum og hip hop-sveitir, t.d. Swangah sem orðin er nokkurra ára og hefur notið vinsælda. „Þetta er vaxandi tónlistargrein í Fær- eyjum,“ segir Trygvi um hip hop-ið. Silvurdrongur hefur ekki farið víða utan landsteinanna, aðeins leik- ið í Danmörku en framundan eru tónleikar á Grænlandi og í Finn- landi. Og spurður að því hvort hann vilji ekki koma til Íslands með Silv- urdrong segist hann gjarnan vilja það enda eigi tónlist sveitarinnar líklega best við Íslendinga af öllum þjóðum öðrum en Færeyingum. Hún mun eflaust þrífast vel þar, bæði út af líkindum með tungumál- unum og eðli tónlistarinnar. „Þannig að vonandi fáum við einhvern tíma tækifæri til að leika á Íslandi og heilla fólk þar,“ segir Trygvi að lok- um. Hlusta má á lög Silvurdrongs á Spotify og YouTube og kynna sér hann frekar á vef Tutls á slóðinni tutlrecords.com. Taktur og kveðskapur  Silvurdrongur nýtur mikilla vinsælda í Færeyjum þó rapp sé heldur lítið áberandi þar í landi  Hlaut tilnefningu til Færeysku tónlistaverðlaunanna fyrir fyrstu breiðskífu sína, Silvurpláta Ljósmynd/Sigmund V. P. Zachariassen Silfurplata Silfurdrengurinn Trygvi á kápu plötunnar Silvurpláta. Trygvi segist hafa verið að leita að jafnvægi karlmennsku og kvenleika. Morgunblaðið/Helgi Snær Huggulegt Trygvi á Paname Café í Þórshöfn þar sem hann ræddi við blaða- mann degi eftir afhendingu Færeysku tónlistarverðlaunanna . VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is Nýtt listasafn hefur verið opnað í New York og það all- sérstakt því það er helgað styttum og málverkum af hundum. Safnið nefnist American Kennel Club Museum og eru þessi hundaverk frá ólíkum tímabilum í lista- og mannkynssögunni. Safnið mun þó ekki vera nýtt af nál- inni heldur var það upphaflega opnað í New York árið 1982 og fjórum árum síðar flutt til St. Louis. Hundarnir hafa því snúið heim aftur. Fyrir þá sem hafa hug á að fara í safnið er það við 101 Park Avenue á Manhattan. Listasafn helgað hundum Hundurinn Zunky á gangi í New York

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.