Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 11

Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afsláttur kynningardagana NÁTTÚRULEGT ÚTLIT ALLAN DAGINN FYRIR HÚÐINA ÞÍNA NÝTT L’ESSENTIEL NÝI ANDLITSFARÐINN Kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 20.-22. mars Við kynnum til leiks nýjan farða frá Guerlain. Guerlain-sérfræðingur verður á staðnum og aðstoðar þig við að finna þinn fullkomna lit. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í gær að taka jákvætt í erindi félags- málaráðuneytisins um að taka á móti flóttafólki síðar á þessu ári. Um er að ræða allt að tíu ein- staklinga, hin- segin flóttafólk frá Úganda, sem er í flótta- mannabúðum í Kenía. Gunnar Ein- arsson bæjar- stjóri segir að þetta sé krefjandi verkefni og í því felist ákveðin sam- félagsleg ábyrgð sem sveitarfélögin þurfi að sýna. Hann segir að Garða- bær muni standa vel að þessu verk- efni en sveitarfélagið hefur ekki áð- ur tekið við hópi flóttafólks. Á fundi bæjarráðs í gærmorgun var bæjarstjóra falið að undirbúa málið sem m.a. felst í að gera samning milli Garðabæjar og fé- lagsmálaráðuneytisins um nauðsyn- lega þjónustu og aðstoð við flótta- fólkið. Verkefnastjóri ráðinn Einnig þarf að ráða verkefna- stjóra sem hefur umsjón með mót- töku flóttafólksins og er tengiliður við bæði ráðuneyti og Rauða kross Íslands sem aðstoðar með ýmis mál. Til að geta tekið á móti flótta- fólkinu þarf að útvega því húsnæði í bænum og verður það með fyrstu verkefnum sem þarf að leysa, segir í frétt frá bænum. Þar kemur fram að á síðasta ári hafi á fundi ríkisstjórnarinnar verið samþykkt að bjóða allt að 75 ein- staklingum, sem hafa stöðu flótta- fólks samkvæmt Flóttamannastofn- um Sameinuðu þjóðanna, til Íslands á árinu 2019. Ríkisstjórnin ákvað að taka annars vegar á móti hinsegin flóttafólki sem er í Kenía og hins vegar sýrlensku fólki sem er í Líb- anon. Erindi félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttafólks var einnig vísað til umfjöllunar fjölskylduráðs Garðabæjar þar sem einnig verður fjallað um nýlega skýrslu félags- málaráðuneytisins um samræmda móttöku flóttafólks. aij@mbl.is Hópur flóttamanna í Garðabæ síðar á árinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabær Sveitarfélagið tekur við hópi flóttafólks í fyrsta skipti og er undirbúningur hafinn.  Ákveðin samfélagsleg ábyrgð, segir bæjarstjórinn Gunnar Einarsson Guðrún Erlingsdóttir Hallur Már Hallsson Miðbæjarfélagið í Reykjavík boðaði til blaðamannafundar á Sólon við Bankastræti í hádeginu í gær. Á fundinum voru kynntar niðurstöður könnunar sem Miðbæjarfélagið lét gera og lagður var fram undir- skriftalisti verslunareigenda við Laugaveg, Bankastræti, Skóla- vörðustíg og næsta nágrenni. 239 rekstraraðilar hafa skrifað undir mótmæli vegna áforma borg- aryfirvalda að loka fyrir akstur bif- reiða á Laugavegi, Bankastræti og Skólavörðustíg. Ekki eru allir rekstraraðilar á sama máli. Átta hafa lýst sig hlynnta lokun, níu taka ekki afstöðu og ekki hefur náðst í 22. Í frétt mbl Sjónvarps sem birt var eftir fundinn í gær má sjá og heyra að mikill hiti var í fundarmönnum. Neikvæð umræða skemmir Auðunn Gísli Pálmason, sem rekið hefur Skartgripaverslunina Fríðu í fjögur ár og er fyrir ofan lokun sagð- ist ekki hafa mótað sér skoðun á því hvort lokanir fyrir bílaumferð væru góðar eða vondar. En taldi fram- kvæmd könnunarinnar ábótavant og niðurstöðurnar fengnar á persónu- legum nótum frekar en faglegum. Auðunn Gísli sagðist vera mjög ánægður með rekstur verslunar í miðbænum og svo væri um fleiri. Það væri mikilvægt að slíkt kæmi fram þar sem neikvæð umræða skemmdi fyrir verslun í miðbænum. Gunnar Gunnarsson íbúi í mið- bænum sagði í samtali við mbl Sjón- varp að mótmæli íbúa væru vegna væntumþykju og það þyrfti engin geimvísindi til að sjá að heft aðgengi drægi úr komum viðskiptavina. Í fréttatilkynningu sem Miðbæj- arfélagið í Reykjavík sendi frá sér kemur fram að ýmis rótgróin fyrir- tæki hafi horfið á braut úr miðbæn- um og fleiri séu að hugsa sér til hreyfings. 101 Optik, Herrahúsið, María Lovísa Design, Pipar og salt, Timberland, Bernhard Laxdal og Kúnígúnd eru meðal þeirra fyrir- tækja sem flutt hafa úr miðbænum. Tekið er fram í fréttatilkynningu að Gullkistan sé eitt af þeim fyrirtækj- um sem líði fyrir götulokanir en fyrirtækið eigi 147 ára samfellda verslunarsögu. Sama megi segja um Eymundsson með 140 ára sögu, Verslun Guðsteins Eyjólfssonar með 100 ára verslunarsögu og fjölda ann- arra fyrirtækja. Kaupmenn ráði lokunum Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi sem sat fundinn, sagði að tillaga um lausn á málinu hefði komið í lok fundar. Lausnin væri að taka málið úr pólitísku ferli og leyfa kaupmönn- um sjálfum að ráða hvenær verslun- argötur í miðbænum væru opnar fyrir bílaumferð og hvenær ekki. Bolli Ófeigsson gullsmíðameistari rekur tvær verslanir og gallerí í mið- bænum. Hann sér ekki fram á að rekstur þeirra gangi ef ekki verði hætt við götulokanirnar og lærir því rafvirkjun ef allt fer á versta veg. Hiti á fundi í Miðbæjarfélaginu  239 rekstraraðilar mótmæla lokun Laugavegar, Bankastrætis og Skólavörðustígs fyrir bílaumferð  Framkvæmd könnunar gagnrýnd  Gullkistan með 147 ára verslunarsögu og Brynja 100 ára sögu Morgunblaðið/Eggert Hiti Hörð skoðanaskipti um lokanir gatna fóru fram á blaðamannafundi Miðbæjarfélagins í Reykjavík á Sóloni í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.