Morgunblaðið - 20.03.2019, Side 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019
✝ Guðný LiljaJóhannsdóttir
fæddist í Hafnar-
firði 1. ágúst 1935.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 11. mars
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhann
Vilhjálmsson, f.
14.7. 1907, d. 30.3.
1980, og Guðrún
Halldóra Guðjónsdóttir, f.
6.11. 1909, d. 17.12. 1996.
Systkini hennar eru Björgvin
Þór og Guðrún Þóra.
Guðný giftist 26.12. 1953
Hauki Jónssyni, f. 3.7. 1931, d.
31.7. 2001. Börn þeirra eru 1)
Jóhann, f. 18.10. 1953. Maki
hans er Ingibjörg Lára
Harðardóttir. Þeirra börn eru
Vilhjálmur Ingi, Hrafnkell
Ingi, Ólafur Ingi og Guðný
Lilja og barnabörn eru sjö. 2)
Halldóra, f. 14.8. 1957. Maki
hennar er Ófeigur Ófeigsson
og þeirra synir eru Hjalti og
Geir. 3) Steinunn, f. 30.11.
1960. Maki hennar er Sig-
urður Einar Sig-
urðsson og þeirra
börn eru Haukur,
Valur og Erla
Sigríður. 4) Sig-
rún, f. 2.5. 1964.
Maki hennar er
Gunnar Erling
Vagnsson og
þeirra börn eru
Sonja, Karen, Ell-
en og Axel og
barnabörn eru
þrjú.
Guðný ólst upp í vestur-
bænum í Hafnarfirði. Hún
gekk í Flensborg en fór síðan
að vinna í Prentsmiðju
Hafnarfjarðar þar sem hún
kynntist Hauki. Meðfram
barnauppeldi og húsmóður-
störfum vann hún í þvotta-
húsum spítalanna í Hafnar-
firði. Síðast á Hrafnistu og
lauk starfsævi sinni við að-
hlynningu þar og að lokum í
borðsal.
Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í
dag, 20. mars 2019, klukkan
13.
Elsku besta Gullý frænka er
dáin. Það er svo margt sem
kemur upp í hugann. Sérstak-
lega eru það allar sögurnar og
frásagnirnar. Gullý hafði alveg
einstakan hæfileika að segja
skemmtilega frá. Ekki vantaði
leikræna tjáningu og alltaf var
stutt í húmorinn. Já, Gullý var
alveg einstaklega fyndin og já-
kvæð manneskja. Ég sótti alla
tíð í að heyra hana segja frá.
Þegar hún kom t.d. við heima á
Vesturvanginum kom ég alltaf
fram til að heyra hvað hún
hafði að segja. Seinna fór ég
svo að heimsækja hana á Boða-
hleinina og stundum kom Gullý
upp í skógrækt með Rúnu eða
Jóa.
Gullý kom til dyranna eins
og hún var klædd. Snobb eða
yfirborðsmennska var bara
ekki til í henni. Hún var nægju-
söm en gjafmild. Hún hafði
áhuga á mörgu eins og and-
legum málum, hannyrðum og
jarðfræði og þá alveg sérstak-
lega jarðskjálftum.
Fyrstu æskuminningar mín-
ar eru frá því á Hringbrautinni
þar sem mamma og pabbi
leigðu uppi hjá Gullý og Hauki.
Ég þreyttist víst ekki að spyrja
hvers vegna Gullý ætti tvo eig-
inmenn en mér var gjörsam-
lega fyrirmunað að skilja að Jói
væri sonur hennar en ekki ann-
ar eiginmaður. Það var gaman
að leika sér í holtinu á bak við
Hringbrautina með Sigrúnu
frænku.
Ég fékk að fara á barnsaldri
með Gullý í þvottahúsið á St.
Jósefsspítala. Gullý elskaði
vinnuna sína í þvottahúsinu
þótt þetta væri erfitt starf. Svo
fékk ég tímaritið Dýravernd-
arann frá Gullý en hún fékk
það hjá samstarfskonu og kom
því til mín. Við grétum öll við
lesturinn enda var Gullý mikil
tilfinningamanneskja og mátti
ekkert aumt sjá. Gullý ræktaði
um tíma kartöflur í stórum stíl.
Hún sinnti ræktuninni af vís-
indalegri nákvæmni. Var með
margar sortir sem þýddi mikla
vinnu hvað varðar allt utan-
umhald. Gullý og fjölskylda
voru líka lengi með ketti sem
ég passaði stundum.
Ég minnist ánægjulegra
ferða með Gullý og Hauki upp í
Næfurholt. Einnig heimsókna
til Gullýjar og Hauks upp í
Sléttuhlíð þar sem Gullý kenndi
mér að drekka kaffi í fyrsta
skipti. Einnig fékk ég að fara
með þeim og Höllu ömmu suð-
ur í Garð þegar ég var barn að
heimsækja ættingja okkar þar.
Gullý var vinsæl enda jafnan
hrókur alls fagnaðar. Hún var
samt alla tíð bindindismann-
eskja. Eftir að Haukur féll frá
eignaðist Gullý nýja vini sem
kíktu í kaffi. Suma hitta ég hjá
henni. Já, það voru fleiri en ég
sem sóttu í Gullý. Maður kom
einhvern veginn hressari út frá
henni. Þegar ég hitti Gullý síð-
ast var hún komin á spítala.
Útlitið var ekki gott. Samt sló
hún á létta strengi og við áttum
saman góða stund.
Söknuðurinn er mikill en
minningin lifir um einstaklega
lífsglaða, jákvæða og brosmilda
frænku. Innilegar samúðar-
kveðjur til Jóa, Halldóru,
Steinunnar, Sigrúnar og ann-
arra ættingja og vina.
Steinar Björgvinsson.
Guðný Lilja
Jóhannsdóttir
Ég varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að
þekkja Dóru í hart-
nær 30 ár, allt frá því ég og
Maggi sonur hennar urðum góð-
ir vinir. Dóra tók alltaf vel á
móti okkur strákunum þegar við
Dóra
Hafsteinsdóttir
✝ Dóra Haf-steinsdóttir
fæddist 17. sept-
ember 1954. Hún
lést 26. febrúar
2019.
Dóra var jarð-
sungin 8. mars
2019.
komum í heimsókn
á Fossagötuna og
man ég bara eftir
glaðværð hennar,
brosi og hlátri þeg-
ar ég rifja upp liðn-
ar stundir þar á
bæ.
Ég er þakklátur
fyrir að hafa kynnst
þessari yndislegu
konu sem á eftir að
verða sárt saknað.
Ég sendi Sigga, Hadda,
Magga og Stebba mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Gunnlaugur Úlfsson.
Hann var korn-
ungur deildarfor-
setinn sem bauð
okkur nýstúdent-
ana velkomna í
kapellu Háskóla Íslands í upp-
hafi náms okkar við Guðfræði-
deildina haustið 1981. Engu að
síður var hann talsvert eldri en
flest í okkar hópi, enda við flest
nýskriðin út úr menntaskóla.
Þetta var vingjarnlegur maður
sem á sinn einlæga og hæg-
verska máta talaði til okkar,
lágstemmdri röddu, og við
fundum strax að við vorum vel-
komin í þessa virðulegu
menntastofnun, þangað sem við
Einar
Sigurbjörnsson
✝ Einar Sigur-björnsson
fæddist 6. maí
1944. Hann lést 20.
febrúar 2019.
Útför hans fór
fram 6. mars 2019.
vorum komin til að
tileinka okkur
fræðin um Guð.
Einar Sigur-
björnsson var
mikilvægur hlekk-
ur í starfi Guð-
fræðideildar Há-
skóla Íslands þau
tæplega 40 ár sem
hann starfaði þar.
Hann hóf störf
skömmu eftir að
hann kom heim úr doktorsnámi
sínu í Lundi, rétt þrítugur,
varð prófessor í byrjun árs
1978 og deildarforseti árið
1981, eða sama ár og leiðir okk-
ar Einars lágu fyrst saman.
Síðan þá hef ég átt því láni að
fagna að þekkja Einar, fyrst
sem kennara og síðar sem sam-
starfsmann, en fyrst og fremst
sem traustan vin, allt til síðasta
dags. Einar og Guðrún Edda,
sem var einnig í nýnemahópn-
um haustið 1981, hafa verið í
nánir vinir okkar Gunnars í
næstum fjóra áratugi. Það hef-
ur verið ómetanlegt að eiga þau
að og fá að fylgjast með ein-
staklega vel gerðum börnum
þeirra og barnabörnum vaxa úr
grasi. Þá hafa börnin okkar
kunnað vel að meta þá um-
hyggju og þann áhuga sem þau
hjónin hafa sýnt þeim og því
sem þau hafa verið að fást við.
Fræðimaðurinn Einar
Sigurbjörnsson var bæði vand-
virkur og afkastamikill. Fræðin
voru hans hjartans mál og þá
helst allt sem viðkom helgihald-
inu, sálmahefðinni og trúararf-
inum. Eftir Einar liggja mik-
ilvæg verk um fjölmörg
viðfangsefni en hann átti margt
eftir óskrifað. Þekking hans var
yfirgripsmikil og ekki takmörk-
uð við hans eigin rannsóknar-
svið. Hann hafði límminni og
var í raun og veru eins og
gangandi uppflettirit. Einar var
líka ráðagóður og tilbúinn að
ræða málin sem reyndist dýr-
mætt í farsælu samstarfi okkar
í háskólanum í nærri tvo ára-
tugi
Skýrri hugsun og sterku
minni hélt Einar allt til enda,
að ógleymdum húmornum. Í
síðasta skipti sem ég heimsótti
Einar á Vífilsstöðum var hann
búinn að missa getuna til að tjá
sig með orðum en hann gat
ennþá brosað sínu hlýja brosi
og líka hlegið með okkur Guð-
rúnu Eddu. Það er eftirminni-
leg stund. Eftir löng og ströng
veikindi hefur Einar fengið
hvíldina. Allan tímann stóð
Guðrún Edda þétt við hlið
manns síns og gerði honum
kleift að dvelja eins lengi heima
og raun bar vitni. Börn og
barnabörn hafa misst mikið, en
Guðrún Edda hefur misst sinn
lífsförunaut og helsta sam-
starfsmann til fimmtíu ára. Þau
voru með eindæmum samhent
hjón og tóku virkan þátt í verk-
efnum hvort annars þegar svo
bar undir. Við Gunnar og börn-
in okkar sendum Guðrúnu
Eddu og fjölskyldu hennar okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Góður Guð gefi þeim huggun
og styrk á sorgartímum. Vinur
okkar og velgjörðarmaður, Ein-
ar Sigurbjörnsson, hvíli í friði
Guðs.
Arnfríður Guðmundsdóttir.
Elsku Sigríður
María er fallin frá,
alltof snemma, að-
eins 61 árs.
Sigga vann með
okkur í Leturvali í þó nokkurn
tíma. Einstaklega hlý, falleg og
skemmtileg. Við minnumst henn-
Sigríður María
Jónsdóttir
✝ Sigríður MaríaJónsdóttir
fæddist 8. janúar
1958. Hún lést 7.
mars 2019. Útför
Sigríðar Maríu fór
fram 14. mars 2019.
ar af hlýhug og
þökkum henni fyrir
yndislegt samstarf.
Við vorum vinkonur
á Facebook og þar
fylgdumst við með
þegar hún og Árni
hennar voru í hesta-
ferðum, nú eða
hjólaferðum, um all-
an heim, ásamt að
sjá hve börnin stóðu
sig vel.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar allrar.
Auðbjörg og Halldór.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Elskuleg systir okkar og mágkona,
GUÐRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Norður-Reykjum,
Hálsasveit,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi laugardaginn 9. mars.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju föstudaginn 22. mars
klukkan 15.
Þorvaldur Stefánsson
Sigríður Stefánsdóttir
Þórður Stefánsson Þórunn Reykdal
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR,
Einilundi 6e, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð miðvikudaginn
13. mars.
Jarðarför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 22. mars
klukkan 13.30.
Oddný Rósa Eiríkssdóttir Finn Roar Berg
Jón Eiríksson Jónína H. Hafliðadóttir
Gunnar Viðar Eiríksson Karen Malmquist
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÆUNN GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eyri,
Ísafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri laugardaginn
9. mars. Útför fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 23. mars klukkan 14.
Kristín Vignisdóttir Þorkell Sigurlaugsson
Aðalheiður Björk Vignisd. Gunnar Gunnarsson
Ragnar Bjarnason Gyða Kr. Aðalsteinsdóttir
Magnús Bjarnason Hrefna R. Magnúsdóttir
Oddur Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐNÝ LILJA JÓHANNSDÓTTIR
Boðahlein 9,
andaðist mánudaginn 11. mars.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 20. mars klukan 13.
Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim er vildu minnast hennar
er bent á Rauða krossinn.
Jóhann Hauksson Ingibjörg Lára Harðardóttir
Halldóra Hauksdóttir Ófeigur Ófeigsson
Steinunn Hauksdóttir Sigurður E. Sigurðsson
Sigrún Hauksdóttir Gunnar Erling Vagnsson
og ömmubörn
Bróðir minn,
SKÚLI JÓNSSON
fyrrum bóndi,
Akurnesi, Hornafirði,
lést á Dvalardeildinni Mjallhvít, Höfn,
þriðjudaginn 12. mars.
Útför hans fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 23. mars
klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafa- og minningarsjóð
Skjólgarðs.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnar Jónsson