Morgunblaðið - 20.03.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurbjörn Þorkelsson hefur gefið út
bókina Lífið er ljóðasafn með 312
völdum ljóðum úr fyrri ljóðabókum
frá 2000 í tilefni þess að hann verður
55 ára á morgun,
á alþjóðlegum
degi ljóðsins 21.
mars.
„Þetta er
ástríða eða köll-
un,“ segir Sigur-
björn um ljóða-
gerðina, en frá
aldamótum hefur
hann gefið út átta
ljóðabækur með
samtals tæplega 1.000 ljóðum. „Ljóð-
in eru farvegur fyrir það sem ég hef
að segja.“
Aðeins eitt líf, fyrsta ljóðabók Sig-
urbjörns, kom út 7. janúar 2000.
Hann bendir á að á næsta ári verði 20
ár frá fyrstu útgáfunni og nú sé lag til
þess að loka þessu tímabili með sér-
stöku ljóðasafni.
Sigurbjörn hefur gefið bækur sín-
ar víða, m.a. á krabbameinsdeild
Landspítalans, í Ljósið á Langholts-
vegi, Líknardeild LSH í Kópavogi,
lækna- og rakarastofur, hárgreiðslu-
stofur og dekkjaverkstæði. Hann
segist hafa fengið mjög góð viðbrögð
og greinilegt að ljóðin veki fólk til
umhugsunar.
Ljóðin mynda eina heild
Ljóðunum er skipt í 12 flokka, sem
skarast og mynda eina heild. Sigur-
björn bendir á að ljóð sín hafi birst
víða í blöðum, tímaritum og bækl-
ingum, þau hafi verið lesin við ýmsar
athafnir eins og við skírnir, ferm-
ingar, útskriftir, í brúðkaupum og út-
förum auk þess sem vitnað hafi verið
til þeirra í prédikunum, ræðum og
ávörpum. Um 40 þeirra hafi birst um
500 sinnum í minningargreinum í
Morgunblaðinu. Hann hafi haft þetta
til hliðsjónar, en valið hafi verið erfitt.
Ljóðin fjalla um lífið, kærleikann,
áföll, þakklæti, bænir, ýmsar pæl-
ingar, trúna, minningar, jól og páska,
heilræði, togstreitu og himininn og
hamingjuna. Sigurbjörn segir að
hann hefði getað skipt þeim með
margvíslegum öðrum hætti enda sé
lífið ekki aðeins eitt ljóð heldur ljóða-
safn.
Í bókinni eru meðal annars ástar-
ljóð til Laufeyjar Geirlaugsdóttur,
eiginkonu Sigurbjörns, ljóð um for-
eldra hans, ljóð um barnabörnin,
trúarjátningar og kærleiks- og vin-
áttuljóð. Sigurbjörn segir erfitt að
gera upp á milli þeirra, en ljóð eins
og „Horfðu í augun á Jesú“, „Tár“ og
„Englar eins og þú“ komi upp í hug-
ann.
Sigurbjörn greindist með krabba-
mein 2013, fór í uppskurð í lok þess
árs og árið eftir og 35 skipta geisla-
meðferð sem skiluðu ekki tilætluðum
árangri. Hann hefur verið í meðferð
síðan og þakkar fyrir hvern dag.
„Ég er hress,“ leggur hann
áherslu á og bendir á að hann sé
þakklátur fyrir lífið og að hafa fengið
tækifæri til þess að gefa sér bókina í
afmælisgjöf.
Ljóðin farvegur fyrir
frásagnir Sigurbjörns
Gefur út ljóðasafn með 312 ljóðum
Köllun Sigurbjörn Þorkelsson skiptir ljóðunum í 12 flokka.
Þú tekur þig svo vel út
hvar sem þú ert.
Ótrúlega dýrmætt eintak,
sólin sem yljar
og umhverfið vermir.
Þú glæðir tilveruna gleði
með gefandi nærveru
og færir bros á brá
svo það birtir til í sálinni.
Sólin sem bræðir hjörtun
Í mannhafinu
er gott að vita
af englum
eins og þér.
Því þú ert sólin mín
sem aldrei dregur fyrir.
Englar eins og þú
LÍFIÐ ER LJÓÐASAFN
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, la. kl. 10-18, sn. kl. 12-1
Kolibri trnr
mikl
rvali, ga-
vara á gó veri
Kolibri penslar
angerir skir penslar
sta ga okki
á afar agst veri
nná meira
rval af
listav orkls
Strigar frá kr. 195
Áætlað er að fella skorstein Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi á
morgun, nánar tiltekið í hádeginu kl.
12.15. Miðast sú tímasetning við að
undirbúningur gangi eftir, segir í til-
kynningu frá Akraneskaupstað.
Ef undirbúningur gengur ekki eft-
ir eins og áætlað er, verður fellingu
frestað. Ný tímasetning verður þá
auglýst á heimasíðu Akraneskaup-
staðar með um sólahrings fyrirvara.
Skorsteinninn verður felldur í
tveimur hlutum. Efri hlutinn kemur
til með að falla í suðaustur, en neðri
hlutinn fellur í suðvestur. Neðri hlut-
inn verður felldur nokkrum sekúnd-
um eftir að efri hlutinn byrjar að
falla.
Rétt fyrir fellingu verður gefið
hljóðmerki, sem er aðvörun um að
felling verði eftir nokkrar mínútur.
Þegar felling er yfirstaðin verður
gefið hljóðmerki um að felling sé yf-
irstaðin og hætta liðin hjá. Örygg-
issvæði við fellingu er hringur í 160
m fjarlægð umhverfis skorsteininn.
Skorsteinninn
felldur á morgun
Akraneskaupstaður með viðbúnað
Morgunblaðið/Hari
Akranes Stefnt er að því að fella
skorsteininn fræga á morgun.