Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 17

Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – margir litir Verð frá18.900,- KARTELL TAKE Borðlampi – margir litir Verð 12.900,- LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.990,- FRANDSEN JOB Borðlampi Verð 15.900,- KAY BOJESEN Sebrahestur Verð 10.990,- stk MR.WATTSON LED lampi Verð 16.990,- KAY BOJESEN Söngfugl – margir litir Verð frá 10.990,- stk. KAY BOJESEN Api lítill Verð 17.990,- stk Fallegar gjafir í fermingarpakkann KARTELL LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. Washington. AFP. | Nú þegar forseti Bandaríkjanna býr sig undir að sækjast eftir endurkjöri, þótt hann sé orðinn 72 ára, og líkleg forseta- efni demókrata nálgast áttrætt virð- ist sýnt að kjósendur velti því fyrir sér hvort aldurinn skipti máli þegar forseti er kosinn. Donald Trump er elsti maðurinn sem hefur verið kjörinn forseti Bandaríkjanna og verður 74 ára gamall þegar næsta kjörtímabil hefst. Þeir sem eru líklegastir til að verða í framboði fyrir demókrata, samkvæmt skoðanakönnunum, eru öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders, sem verður 79 ára, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, sem verður 78 ára í janúar 2021. Þriðja líklega forseta- efnið úr röðum demókrata, öldunga- deildarþingmaðurinn Elizabeth Warren, verður 71 árs. Nokkrir miklu yngri menn hafa þegar verið nefndir sem hugsanleg forsetaefni demókrata, þeirra á meðal fulltrúadeildarþingkonan Tulsi Gabbard og borgarstjórinn Pete Buttigieg, sem eru bæði 37 ára, Julián Castro, 44 ára fyrrverandi ráðherra húsnæðis- og skipulags- mála, og öldungadeildarþingmaður- inn Cory Booker, 49 ára. Ef litið er til sögunnar virðast sigurlíkur þeirra vera meiri en öldunganna. Liðin eru 70 ár síðan Bandaríkja- menn kusu síðast demókrata yfir 55 ára aldri í forsetaembættið, eða frá því að Harry Truman var kjörinn forseti 1948. Fordómar í garð aldraðra? Beto O’Rourke, 46 ára fyrrver- andi fulltrúadeildarþingaður, hefur þegar lýst yfir framboði í forkosn- ingum demókrata og athygli fjöl- miðlanna beindist strax að aldurs- muninum á milli hans og Sanders. Á sama tíma og birtar voru myndir af O’Rourke keppa í fimm kílómetra hlaupi í Iowa skýrðu fjölmiðlar frá því að Sanders, sem er 31 ári eldri, hrasaði í sturtu, fékk sár á höfði og sauma þurfti sjö spor til að loka því. Sanders og Biden njóta góðs af því að þeir eru þekktari og reynslu- meiri en yngri keppinautar þeirra eftir að hafa starfað í stjórnmál- unum í áratugi. Aldurinn er þó einn- ig talinn geta orðið þeim fjötur um fót þegar þeir reyna að auka fylgi sitt meðal yngri kjósenda, m.a. með því að nýta samfélagsmiðlana. Stuðningsmenn Sanders og Bid- ens gera lítið úr efasemdum um að þeir séu heppileg forsetaefni vegna aldurs, segja þá vera þróttmikla stjórnmálamenn og saka efasemda- mennina um fordóma í garð aldraðs fólks. Sanders virðist njóta meiri stuðn- ings meðal ungs fólks en aldraðra kjósenda. „Aldur hans skiptir mig engu máli og ég tel enga ástæðu til að ætla að hann sé ekki við góða heilsu,“ sagði Garrick Dodson, sautján ára Iowa-búi sem fær kosn- ingarétt á næsta ári. Hann bætti við að Sanders hefði notið mikils stuðn- ings meðal ungra Bandaríkjamanna vegna „framsækinnar stefnu“ sinn- ar, meðal annars loforða um að tryggja öllum heilsugæslu og berj- ast gegn launaójöfnuði. Öflugir öldungar á þingi Læknir forsetaembættisins, Sean Conley, sagði í síðasta mánuði að Trump væri við „mjög góða heilsu“ og kvaðst búast við að hann héldi henni út kjörtímabilið og lengur. Aldur hefur ekki verið fyrirstaða í bandarískum stjórnmálum. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar þings- ins, er að verða 79 ára og enn álitin á meðal slyngustu þingmannanna eins og Mitch McConnell, 77 ára leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni. Sanders yrði langelsti forsetinn í sögu Bandaríkjanna næði hann kjöri í næstu kosningum en hann segir að kjósendurnir eigi ekki að velja for- seta á „grundvelli kynhneigðar, kyns eða aldurs“. Eric De Jonge, bandarískur sér- fræðingur í öldrunarlækningum, segir að þótt menn séu við góða heilsu á áttræðisaldri sýni þeir greinileg merki öldrunar eftir átt- rætt, m.a. andlegrar hrörnunar. „Það er erfiðara fyrir áttræðan mann að taka þátt í erfiðri kosninga- baráttu í sextán eða átján klukku- stundir á dag en fyrir fimmtugan mann, að öllu öðru jöfnu,“ sagði hann. „Það þýðir þó ekki að 75 ára stjórnmálamaður geti ekki verið góður frambjóðandi.“ De Jonge telur að aldur forseta- efnanna verði á meðal helstu um- ræðuefnanna í komandi kosninga- baráttu ef valið stendur á milli öldunga. Líklegt sé að kjósendurnir dáist af þrótti þeirra ef vel gengur en hafi áhyggjur af aldri þeirra ef þeir sýna merki öldrunar. Gæti orðið að keppni öldunga  Trump verður 74 ára í byrjun næsta kjörtímabils og tveir af líklegum keppinautum hans 78 og 79 ára  Leiðtogi öldungadeildar þingsins er 77 ára og forseti fulltrúadeildarinnar að verða 79 ára AFP 72 ára Trump er elsti maðurinn sem hefur orðið forseti Bandaríkjanna. AFP 77 ára Bernie Sanders nýtur mikils stuðnings meðal ungra demókrata. AFP 76 ára Joe Biden var varaforseti Bandaríkjanna í forsetatíð Obama. AFP Að verða 79 ára Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar þingsins. AFP 77 ára Mitch McConnell, leiðtogi meirihlutans í öldungadeildinni. Beto O’Rourke, fyrrverandi full- trúadeildarþingmaður frá Texas, og Kirsten Gillibrand, öldunga- deildarþingmaður frá New York, hafa lýst yfir framboði í forkosn- ingum demókrata vegna forseta- kosninganna árið 2020. O’Rourke tilkynnti framboð sitt á fimmtudaginn var og safn- aði 6,1 milljón bandaríkjadala, jafnvirði 715 milljóna króna, í kosningasjóð sinn á fyrsta sólar- hringnum. Hann sló þar með fjáröflunarmet sem Bernie Sand- ers setti fyrsta sólarhringinn eft- ir að hann tilkynnti framboð sitt í forkosningum demókrata fyrir fjórum árum. O’Rourke var álit- inn miðjumaður þegar hann sat í fulltrúadeildinni á árunum 2012 til 2018 en hefur fært sig til vinstri fyrir komandi forkosn- ingar. Kirsten Gillibrand er 52 ára, hefur lengi barist gegn kyn- bundnu ofbeldi og leggur áherslu á kvenréttindamál. Setti fjáröfl- unarmet á fyrsta degi O’ROURKE Í FRAMBOÐI AFP Baráttan hafin Beto O’Rourke hóf kosningabaráttu sína í Iowa. Stjórnvöld í Noregi hafa raftækni- legar sannanir fyrir því að rússneski herinn hafi truflað GPS-merki her- sveita Atlantshafsbandalagsins á ný- legum heræfingum þess og krafist skýringa frá Rússum vegna málsins. Frank Bakke-Jensen, varnarmála- ráðherra Noregs, skýrði frá þessu á blaðamannafundi í Ósló á mánudag- inn var. Hafði áhrif á umferð farþegavéla Stjórnvöld í Noregi og Finnlandi skýrðu frá því í nóvember að Rússar kynnu að hafa truflað GPS-staðsetn- ingarkerfið á heræfingunum og fyrir þær. Truflanirnar hefðu einnig haft áhrif á umferð farþegaflugvéla í norskri og finnskri lofthelgi. Norðmenn og Finnar lögðu fram mótmæli vegna málsins en Rússar neituðu því að þeir hefðu truflað GPS-merkin. „Rússar báðu okkur um að leggja fram sannanir. Við af- hentum þeim sannanir,“ sagði Bakke-Jensen og bætti við að þær fælust í mælingum sem sýndu að merkin hefðu verið trufluð. „Rúss- arnir þökkuðu okkur fyrir, sögðust ætla að koma til okkar aftur þegar sérfræðingar þeirra hefðu farið yfir upplýsingarnar. Að fá slík svör frá Rússum er af hinu góða. Það krefst þolinmæði að vera nágranni Rússa.“ Þegar varnarmálaráðherrann var spurður hvort Rússar hefðu truflað GPS-merkin af ásettu ráði svaraði hann að þeir hefðu gert það „mjög nálægt landamærunum“ og vitað að truflanirnar myndu hafa áhrif hand- an þeirra. Þótt Finnland eigi ekki aðild að Atlantshafsbandalaginu tók landið þátt í umfangsmiklum heræfingum þess sem hófust í október með þátt- töku 31 ríkis og fóru fram frá Eystrasalti til Íslands. Segja Rússa hafa truflað GPS-merki  Norðmenn segjast hafa sannanir AFP Vill skýringar Frank Bakke-Jensen, varnarmálaráðherra Noregs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.