Morgunblaðið - 20.03.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 20.03.2019, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Læti Þessi ferðamaður var við Brimketil á Reykjanesi þar sem náttúran ólmaðist og lét illum látum. Brimketill er sérkennileg laug í sjávarborðinu vestast í Staðarbergi stutt frá Grindavík. Haraldur Hjálmarsson Freistingin er greinilega of mikil. Ef hægt er að fella póli- tískar keilur verður það léttvægt í hugum sumra hvort um leið sé grafið undan íslensk- um dómstólum. Í stað yfirvegaðrar umræðu um hvort og hvaða áhrif dómur Mannrétt- indadómstóls Evrópu [MDE] í Landsréttarmálinu svokall- aða, hefur á skipan dómstóla hér á landi, er farið í pólitískar skotgrafir. Þetta er miður og gengur gegn hagsmunum íslensks almennings og veikir þær undirstöður sem rétt- arkerfið byggir á. Sé uppi rétt- aróvissa verður henni ekki eytt í skotgröfum. Daginn eftir að niðurstaða MDE var kynnt ákvað Sigríður Andersen dómsmálaráðherra að stíga til hlið- ar. Með því vildi hún skapa vinnu- frið svo hægt sé að taka nauðsyn- legar ákvarðanir innan dómsmála- ráðuneytisins án þess að persóna hennar hefði þar truflandi áhrif. Í samtali við mbl.is sagði Sigríður að ákvörðun um að láta af embætti tæki mið af hinum pólitíska veru- leika, en ekki þeim lögfræðilega: „Þetta er hinn pólitíski veruleiki. Ég ann dómstólunum of mikið til þess að láta það gerast að menn kunni að hengja sig á það að ég hafi haft aðkomu að þeim ákvörðunum sem þar verða teknar.“ Ákvörðun Sigríðar var skynsam- leg og merki um styrk hennar sem stjórnmálamanns. Niðurstaða meiri- hluta MDE beinist ekki aðeins að stjórnsýslu Sigríðar Andersen held- ur er hún einnig gagnrýni á Alþingi og Hæstarétt Íslands. Lukku- riddararnir hafa hins vegar haldið áfram að grafa sínar skotgrafir. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður VG, hefur áhyggjur af því hvernig brugðist er við niður- stöðu Mannréttinda- dómstólsins, sem var klofinn í afstöðu sinni. Í pistli á heimasíðu sinni skrifar hann með- al annars: „Það sem er verst, eða öllu heldur mest ástæða til að hafa áhyggjur af, eru al- menn viðbrögð innan þings sem utan og ekki síst í íslenskum fjöl- miðlum eftir dóminn. Þar er tekin afstaða í óhugnanlega ríkum mæli eftir flokkspólitískum línum.“ Það er eðlilegt að Ögmundur velti því fyrir sér hvort „hinir málglöð- ustu og dómhörðustu þeirra á meðal haf[i] lesið dómsniðurstöðuna og ígrundað hana og þá ekki bara meirihlutaálitið heldur og ekki síður minnihlutaálitið?“ Fjögur atriði Hér verður Landsréttarmálið ekki rakið enda ekki til þess rúm. En fernt er rétt að hafa í huga þeg- ar því er haldið fram að niðurstaða MDE skapi réttaróvissu hér á landi: 1. Samkvæmt 61. gr. stjórnarskrár- innar verður dómurum „ekki vikið úr embætti nema með dómi, og ekki verða þeir heldur fluttir í annað embætti á móti vilja þeirra, nema þegar svo stendur á, að ver- ið er að koma nýrri skipun á dóm- stólana“. Augljóst er hvers vegna þessi regla er sett í stjórnarskrá. Með henni er verið að tryggja að dóm- arar séu sjálfstæðir og öllum óháðir í störfum sínum enda skulu dóm- endur „fara einungis að lögum“. 2. Í 2. gr. laga um mannréttinda- sáttmála Evrópu (62/1994) segir orðrétt: „Úrlausnir mannréttinda- nefndar Evrópu, mannréttinda- dómstóls Evrópu og ráðherra- nefndar Evrópuráðsins eru ekki bindandi að íslenskum landsrétti.“ 3. Hæstiréttur Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að annmark- ar hafi verið á vinnubrögðum dómsmálaráðherra og Alþingis við skipan dómara við nýjan Landsrétt árið 2017. Þessir ann- markar hafi hins vegar ekki áhrif á skipan dómaranna sem allir full- nægðu skilyrðum laga um hæfis- skilyrði dómara við Landsrétt, þar á meðal „að teljast hæf til að gegna þeim í ljósi starfsferils og lögfræðilegrar þekkingar“. Frá þeim tíma sem forseti undirritaði skipunarbréf þeirra í júní 2017 „hafa þessir dómarar notið þeirr- ar stöðu samkvæmt 61. gr. stjórn- arskrárinnar að þeim verður ekki vikið úr embætti nema með dómi“. Allir dómarar sem skipaðir voru í Landsrétt voru taldir hæfir til að gegna embætti dómara, af hæfnis- nefnd. 4. Ísland hefur ekki afsalað sér dómsvaldi til erlendra aðila. Þegar öll þessi atriði eru höfð í huga er mér ómögulegt að skilja hvernig hægt er að halda því fram að réttar- óvissa sé í landinu eða efasemdir séu um gildi þeirra dóma sem Landsréttur hefur kveðið upp. Skiptir engu hvaða dómarar komu að máli. Ég óttast að önnur sjón- armið en þau sem byggjast á lögum, liggi að baki þegar reynt er að skapa óróa og óvissu um réttar- kerfið. Breytir engu um stöðu dómara Davíð Þór Björgvinsson er dóm- ari við Landsrétt en var áður dóm- ari við Mannréttindadómstól Evr- ópu. Í júlí á síðasta ári skrifaði hann ítarlega grein um Landsréttarmálið og hvaða hugsanleg áhrif niðurstaða Mannréttindadómstólsins hefði á ís- lenskan rétt. Niðurstaðan hans var skýr og afdráttarlaus: „Þá breytir áfellisdómur, ef svo fer, engu um að dómurinn yfir G stendur óhaggaður, enda er MDE ekki áfrýjunardómstóll sem getur fellt dóma dómstóla ríkja úr gildi. Sá dómur stendur nema mál G verði endurupptekið eftir þeim reglum sem gilda á Íslandi um endur- upptöku mála. Þá hefur áfelli á hendur íslenska ríkinu ekki þau áhrif að úr gildi falli allir dómar sem þeir dómarar, sem ráðherra setti á listann í trássi við álit dómnefndar, hafa átt þátt í að kveða upp. Munu allir þessi dómar standa óhaggaðir eftir sem áður, nema málin verði endurupptekin.“ Þá bendir Davíð Þór á að áfellis- dómur Mannréttindadómstólsins geti í engu breytt því að þeir fjórir dómarar sem ráðherra gerði tillögu um, eru áfram skipaðir „dómarar við Landsrétt og við þeim verður ekki haggað nema með dómi í máli sem íslenska ríkið höfðar gegn þeim“ í samræmi við 61. gr. stjórn- arskrárinnar: „Vandséð er aftur á móti á hvaða grundvelli það yrði gert, því þeir einstaklingar sem þessum emb- ættum gegna hafa ekki annað af sér gert en að sækja um embætti sem forseti Íslands skipaði þá að lokum til að gegna. Þá gefur framganga þeirra í starfi hingað til ekkert til- efni til málshöfðunar gegn þeim.“ Lærdómur Ekki verður hjá því komist að skjóta niðurstöðu MDE til efri deildar réttarins. Það væri ábyrgðarlaust að gera það ekki. Það er skýrt í íslenskum lögum að dómar MDE eru „ekki bindandi að íslenskum landsrétti“, enda höfum við ekki framselt dómsvaldið til ann- arra landa eða yfirþjóðlegra stofn- ana. Slíkt framsal gengur gegn stjórnarskrá og þar með fullveldis- rétti Íslands. Meirihluti MDE hefur í reynd gert tilraun til að ýta rétt- bærum – löglegum – handhöfum ríkisvaldsins á Íslandi til hliðar, allt frá ráðherra, til Alþingis, frá forseta lýðveldisins til Hæstaréttar. Hvort sem tekið er undir efnis- lega niðurstöðu meirihluta MDE eða ekki, hljóta allir að standa vörð um sjálfstæði íslenskra dómstóla og fullveldi landsins. Standi hins vegar vilji til þess að framselja æðsta vald um framkvæmd laga og réttar til MDE eða annarra yfirþjóðlegra stofnana, verður ekki aðeins að breyta lögum heldur stjórnarskrá. Hugmyndir um fullveldi verða sett- ar til hliðar. Gegn slíkum hug- myndum mun ég alltaf berjast. Óháð niðurstöðu efri deildar – taki hún málið á annað borð til efnis- legrar meðferðar – er rétt og skylt að endurskoða allt vinnulag við skip- an dómara. Það verður gerast af yf- irvegun til að eyða tortryggni og styrkja alla umgjörð íslenskra dóm- stóla. Ég hef og er enn sannfærður um að engin frjáls þjóð geti afhent örfá- um einstaklingum vald til að skipa dómara og skiptir engu hvort um er að ræða héraðsdóm, Landsrétt eða Hæstarétt. Allra síst getur slíkt vald verið í höndum fámenns hóps sem er ábyrgðarlaus af gjörðum sín- um og ákvörðunum. Þessi sannfær- ing mín breytir engu um að ég eins og aðrir, lærðir og leiknir, verð að hafa burði til að draga lærdóm af reynslunni. Við Ögmundur Jónasson erum ekki samstiga í mörgu en við erum sammála um að allir sem „komið hafa að þessu ferli þurfi að draga sína lærdóma“: Framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið, dómsvaldið, sér- fræðingar og hæfisnefndir. Slíkan lærdóm er hins vegar ekki að finna í pólitískum skotgröfum og forar- pyttum. Eftir Óla Björn Kárason »Hvort sem tekið er undir efnislega niðurstöðu meirihluta MDE eða ekki, hljóta allir að standa vörð um sjálfstæði íslenskra dómstóla og fullveldið. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Í pólitískum skotgröfum læra menn ekkert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.