Morgunblaðið - 20.03.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.03.2019, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 ✝ Guðrún Hilm-arsdóttir fæddist í Reykja- vík 4. júlí 1959. Hún lést á Land- spítalanum 11. mars 2019. Guðrún var dóttir hjónanna Hilmars S.R. Karlssonar, f. 19.5. 1929, d. 13.2. 2011, og Halldóru Jónsdóttur, f. 18.6. 1937, d. 1.7. 2003. Systkini Guðrúnar eru: 1) Dagbjört, f. 14.12. 1947, 2) Jón, f. 28.12. 1956, 3) Reynir Halldór, f. 21.7. 1961, d. 11.9. 2003, 4) Berglind, f. 11.2. 1967, og 5) Svanur Pálmar, f. 30.3. 1971. Hún flutti ung að aldri á Skálatúnsheimil- ið í Mosfellsbæ. Guðrún gekk í Safamýrarskóla og Fjölmennt, en hún hafði mikinn áhuga á mat- reiðslu. Guðrún var starfsmaður hjá Vinnu og virkni við vefn- að, saum, gler- list og leirlist. Einnig vann hún við pökkun á vörum fyrir ýmis fyrir- tæki. Síðustu 10 ár bjó hún á Sambýlinu Skálahlíð 13a í Mosfellsbæ. Útför Guðrúnar fer fram frá Lágafellskirkju í dag, 20. mars 2019, klukkan 13. Elsku Gunna okkar. Nú ert þú farin frá okkur og það er svo sárt og það er svo mikill söknuður. Söknuður eftir einlægu brosi þínu og að þú sagðir alltaf systir mín eða bróðir minn á eftir nöfnum okkar. Eða þegar þú klappaðir okkur á kinn og sagðir, ég er góð við þig og þetta litla klapp var alltaf svo einlægt og kær- leiksríkt. Þú varst alltaf svo glöð og kát og dreifðir þessari gleði og kátínu í kringum þig. Þú áttir svo auðvelt með að fá alla til að brosa og gleðjast yfir öllu og engu. Minningar eigum við marg- ar, eins og þegar við systur sátum við útsaum eða vorum að lita í litabækur, og þegar litli bróðir var að sprella og grínast og þú spurðir hann hvort hann væri að spila út. Allar hátíðir og þá sérstaklega jólin sem þú naust svo virki- lega. Okkar árlegu réttarferðir með fjölskyldunni, frænkum og frændum sem alltaf spurðu fyrst af öllu, hvar er Gunna eða er Gunna ekki með. Allir biðu eftir að hitta þig, heilsa og fá bros frá þér. Eða hvað þú naust þín alltaf innan um systkinabörn þín sem voru þér svo kær og sem þú passaðir svo vel. Elsku Gunna okkar, þrátt fyrir söknuð okkar og trega yf- ir að missa þig úr lífi okkar, er það mikil huggun að mamma og pabbi, Reynir bróðir, afi og amma og fleiri hafa tekið fagn- andi á móti þér og að nú eigum við þig sem svo fallegan engil á himnum. Hvíl í friði, elsku systir, minningin um þig lifir lengi í hjörtum okkar. Berglind systir þín og Svanur bróðir þinn. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Berglind Hilmarsdóttir. Elsku Gunna mín hefur kvatt okkur og söknuðurinn er mikill. Gunna var mikill gleðigjafi og húmorinn var alltaf fyrir hendi. Þvílík gjöf sem það var að kynnast henni. Eftir andlát foreldra hennar sagði Gunna okkur Jóni að nú ættum við hana. Þvílík gjöf! Það voru líka algjör forréttindi fyrir börnin okkar að alast upp með henni og eins og þau segja gerði hún þau að betri manneskjum. Gunna eyddi alltaf jólunum hjá okkur en við sóttum hana yf- irleitt á Þorláksmessu. Á Þor- láksmessu var alltaf sama rút- ínan, hún kom með okkur í kirkjugarðinn og svo út að borða, hamborgari, franskar og kók varð iðulega fyrir valinu. Á meðan heilsa leyfði fór Gunna í árlega réttarferð með móður- fjölskyldu sinni sem hún hefur alla tíð gert og hélt hún mikið upp á þá ferð. Gunnu þótti alltaf gaman að ferðast en hún fór í ýmsar utanlandsferðir með vin- um sínum af Skálatúni, en henni fannst best að komast í sól og hita. Gunna fór líka tvisvar til London til að sjá Mamma Mia sem var í miklu uppáhaldi og voru sérstök Mamma Mia-kvöld í Skálatúni. Gunna var mikið snyrtimenni og gekk alls ekki í fötum ef á þeim var blettur, það þurfti að þvo strax. Ef herbergi barnanna okkar voru ekki fín fengu börnin að heyra að það þyrfti sko að taka til. Gunna elskaði að fara með okkur í ferðalög í sumarbústaðinn en um páska fórum við yfirleitt í sveitina og hápunkturinn var auðvitað að fá páskaegg. En alltaf var hún jafn glöð að fara aftur upp í Skálatún þar sem hún var elskuð og dáð. 17. júní var líka okkar dagur, þá fórum við í bæinn, röltum um og fórum á kaffihús sem var alltaf gaman, lengi vel fékk hún líka blöðru og auðvitað nammi. Þegar við komum í heimsókn til hennar upp í Skálatún tók hún ekki annað í mál en að bjóða okkur upp á kaffi, enda var hún mikil kaffikelling eins og hún sagði sjálf. Það eru mörg listaverkin sem hún gerði, vefnaðurinn og öll leirverkin en Gunna gerði mikið af listaverkum fyrir handverks- söluna hjá Skálatúni. Gunna átti nokkur heilræði sem hún deildi ítrekað með okk- ur og þar á meðal fleygu setn- ingarnar „allir eru vinir“og „all- ir að hjálpast að“. Hjálpsemin var mikil en henni þótti líka gott að láta stjana við sig. Nonni bróðir sá alveg um það. Hún vildi alltaf vera pæja eins og hún sagði sjálf og naglalakk var eitthvað sem ekki mátti vanta. Nonni bróðir sá alveg um það þegar hún var hér hjá okkur, lakkaði neglurnar og gerði hárið fínt. Fyrir einu og hálfu ári fór heilsan að gefa sig en hún var samt farin að tala um það að hún ætti 60 ára afmæli í sumar sem hún var byrjuð að bjóða í því þá átti að vera veisla. Elsku Gunna mín, nú er erf- iðum veikindum þínum lokið. Og við þökkum fyrir að hafa haft þig í lífi okkar. Hvíl þú í friði, fagra sál. Þín mágkona, Guðrún Helga Theodórsdóttir. Elsku Gunna okkar. Ef við ættum að lýsa Gunnu í einu orði væri það gleðigjafi. Hún fékk mann alltaf til að brosa, passaði að allir væru glaðir og í góðu skapi. Gunna elskaði að vera með fólkinu sínu og sérstaklega að fá okkur í heimsókn. Gunna var alltaf mjög snyrtileg og vildi hafa allt í röð og reglu, í herberginu hennar áttu allir hlutir sinn stað og ef maður ákvað að stríða smá og færa hlut til tók hún strax eftir því og færði til baka. Fötin hennar voru alltaf hrein og fín og hún harðneitaði að ganga í fötum með blett, ef það sullaðist á fötin hennar sýndi hún manni blettinn í gríð og erg þar til hún náði að skipta. Gunna vildi alltaf vera pæja, hárið varð alltaf að vera fínt og hún elskaði að koma í klippingu til Halldóru. Hún fékk þá líka lit í augabrúnirnar, kaffi í einn bolla og kakó í annan og smá nammi með, þær áttu alltaf yndislegar stundir saman með- an á dekrinu stóð og hlógu mik- ið saman. Hvað ég mun sakna þeirra stunda. Gunna vildi alltaf vera með naglalakk og hún plataði pabba margoft til að stjana við sig og lakka negl- urnar, hún var með pabba alveg í vasanum. Gunna var alltaf svo glöð að sjá mann, ljómaði þegar hún tók á móti okkur, „frænka mín!“ kallaði hún, leiddi mann um alla Norðurhlíð og lét vita að maður væri kominn. Gunna gekk alltaf úr skugga um að við værum vinkonur og við værum alltaf góðar hvor við aðra. Hún hafði engan húmor fyrir því að maður væri að stríða og allra síst ef við tókum upp á því að stríða pabba okkar, hann var aðal. Hún sagði okkur að það væri bannað að stríða og við ættum að vera góð við Nonna bróður. Það hafði ekkert upp á sig að ætla að þræta við Gunnu því hún var þrjóskari en við báðar til samans. Elín mun aldrei gleyma því þegar hún var heima eina páskana. Elín lædd- ist inn í herbergi til hennar til að taka batteríin úr heyrnar- tækjunum því það ískraði í þeim þegar það var kveikt á þeim yfir nóttina. Gunna rumskaði í hvert skipti, skynj- aði að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera og eftir fimm ferðir inn í herbergið hennar vann hún þrjóskukeppn- ina og sagði að Steinunn Guð- munds segði að svona ættu heyrnartækin að vera. Við vorum svo heppnar að fá að umgangast Gunnu mikið en hún eyddi flestum jólum og páskum hjá okkur og við mun- um ekki þær hátíðir án Gunnu. Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að alast upp með Gunnu, hún hefur kennt okkur svo margt og víkkað sjóndeild- arhringinn. Gunna var alltaf já- kvæð, góð við alla, vildi aldrei neitt aumt sjá og var full af ást. Gunna kenndi manni það að vera ófeiminn við að sýna fólki að maður elskar það, því Gunna sparaði aldrei kossana né knús- in. Að koma í heimsókn þýddi að maður fékk a.m.k. fimm kossa og fimm knús. Hún var líka ótrúleg, hún var alltaf glöð, brosandi og hlæjandi. Við eigum svo sannarlega eft- ir að sakna kossanna, knúsanna, hlátursins, brossins og dásam- lega fólksins í Skálatúni sem við fengum í kaupbæti með Gunnu. Við huggum okkur við það að nú ertu komin á betri stað þar sem þér líður vel og umvafin góðum englum. Þínar frænkur, Halldóra og Elín. Elsku hjartans fallega nafna mín. Mig langar til að þakka þér fyrir samfylgdina í rúm 49 ár og hvað ég var heppin að hafa fengið þig sem frænku. Hláturinn þinn, gleðin, húm- orinn og hlýjan er það sem hef- ur einkennt þig, elsku frænka, ásamt því að sjálfsögðu að hafa verið mesta pæjan á svæðinu. Ávallt vel tilhöfð, naglalökkuð og hafðir gaman af því að sýna mér hvað þú værir með fallegt naglalakk hverju sinni, en hafð- ir ávallt orð á því að ég væri ekki pæja og hefði ekkert naglalakk. Réttarferð fjölskyldunnar kemur upp í huga mér, hvernig hún verður án þinnar nærveru, en ég veit að þú munt vera með okkur og að sjálfsögðu taka þátt í öllum leikjunum og vinna bik- arinn eins og þú gerðir svo oft. Þú vannst okkar hjarta frá fyrsta degi og dætur okkar minnast þín og segja „hún var alltaf svo góð“, það er dagsatt, elsku frænka, að þú ert ein sú dásamlegasta manneskja sem ég hef verið svo heppin að hafa fengið að kynnast. Með kærri kveðju, elsku frænka, með þökk fyrir allt sem þú kenndir mér. Guðrún Sigurðardóttir og fjölskylda. Elsku Guðrún (Gunna) frænka er látin. Þá hlaðast upp minningar um dásamlega, góða, hlýja og ákveðna dömu. Guðrún bjó lengst af, eða frá unglingsárum, sem vistmaður á Skálatúni í Mosfellsbæ. Og undi sér vel, þar er mikið og gott starf unnið með íbúunum. Þar er mikil áhersla á kennslu og föndur, saumaskap, málun, tré- verk og unnið með gler, búnir til alls konar hlutir, sem síðan voru til sýnis og sölu, t.d. fyrir jól ár hvert. Vel fór um Gunnu á sambýl- inu þar sem starfar frábært starfsfólk. Heimilið sem Gunna var svo stolt af, og hún naut þess að fá gesti og einnig halda veislu fyrir sína, ekki síst á af- mælum eða á aðventunni. Þá naut hún sín með góðri hjálp dásamlegra starfsstúlkna á Skálatúni. Ekki má gleyma öllum ferða- lögunum, t.d. réttarferðunum sem Gunna kom í með systk- inum sínum. Ef Gunnu vantaði var viðkvæðið úr öllum áttum, hvar er Gunna? Svona var hún stór þáttur í lífi okkar, frænd- fólksins. Gunna var lánsöm, hún fékk mörg tækifæri til að ferðast, innanlands og erlendis, með að- stoð starfsstúlkna heimilisins. Eins átti Gunna athvarf heima hjá Nonna bróður sínum og Guðrúnu. Þar dvaldi hún flest alla hátíðisdaga og naut þess í dekri hjá þeim. Hún mætti til þeirra með sín föt samanbrotin og setti þau í hillur og passaði vel upp á alla hluti. Svona var Gunna. Þegar kom að kveðjustund sá maður svo vel hvað fjölskyldan hennar elskaði hana mikið. Systkinin og nánustu ættingjar viku ekki frá henni þær vikur sem hún lá veik, þar til yfir lauk. Blessuð sé minning yndis- legrar frænku. Sigurður og Ágústa. Elsku Gunna, í dag kveðjum við þig. Þú varst skemmtileg, þú varst vinkona okkar. Við höfum búið saman í mörg ár, sumar í meira en fimmtíu ár. Það er langur tími, við þekktumst því allar mjög vel og höfum gert margt skemmtilegt saman. Við fórum í fullt af ferðum innan- lands en líka til útlanda, fórum til Danmerkur, Benidorm, Hol- lands, Ítalíu, Tenerife og líka í borgarferðir til Barcelona, Du- blin og svo auðvitað til London á Mamma Mia – sumum fannst svo gaman að þeir fóru tvisvar til London á Mamma Mia. Nú ert þú farin, þú varst svo veik og fórst á spítala, við kom- um í heimsókn þangað og von- uðum að þú kæmir aftur heim en það gerðist ekki, þú fórst til guðs. Við söknum þín og förum stundum inn í herbergið þitt bara til að athuga. Bless, elsku Gunna, allar saman vinkonur þínar, Auður, Edda, Kristín (Stína) og Ingibjörg (Ína). Nú er komið að kveðjustund, elsku Gunna, leiðir okkar hafa legið saman síðustu þrjátíu og sex ár, ég vil þakka þér góð kynni og einstaka vináttu. Það sem einkenndi þig var gleði og húmor, þú varst alltaf til í sprell. Þú hafðir mjög gaman af því að ferðast og ferðaðist mikið, bæði innanlands og erlendis. En ég held að London með viðkomu á söngleikinn Mamma Mia hafi staðið upp úr. Þú hafðir líka mjög gaman af að fara í bíltúra og söngst oft í þeim ferðum, þá varð Sól sól skín á mig oftast fyrir valinu, sérstaklega síðastliðið sumar þegar lítið sást til sólar, þá lagð- ir þú sérstaka áherslu á ský ský burt með þig. Það eru mörg orðatiltæki sem hafa komið frá þér og þeim verður haldið á lofti. Elsku Gunna, þín er og verður saknað en það er gott að eiga góðar minningar og af þeim er nóg. Ég kveð þig, elsku vinkona, með texta við lagið Ég á mér draum úr Abba-myndinni Mamma Mia. Ég á mér draum, í hjarta fann heilt samfélag, um kærleikann. Saman sterk við stöndum, leiðumst hlið við hlið styðjum hvort við annað, færum hinu frið. Ég trúi á engla, eitthvað gott í öllum hægt að sjá. Ég trúi á engla, og kominn tími fyrir frelsi’ að ná. Guð gefur gaum – ég á mér draum. Ég á mér draum, eitt ævintýr í hjarta mér, heill heimur býr. Veröldin sem opnast, við trú og nýja sýn veitist okkur öllum, viskan verður þín. Ég trúi á engla, eitthvað gott í öllum hægt að sjá. Ég trúi á engla, og kominn tími fyrir frelsi’ að ná. Guð gefur gaum – ég á mér draum. (Þýðing Jóhanna Magnúsdóttir) Þín vinkona Steinunn Guðmundsdóttir. Guðrún Hilmarsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskulegur faðir okkar, BJARGMUNDUR EINARSSON, Efri-Ási, Hofsósi, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks laugardaginn 9. mars. Jarðsungið verður frá Hofsóskirkju föstudaginn 29. mars klukkan 15. Erla H. Bjargmundsdóttir Gunnar Þór Björnsson Einar P. Bjargmundsson Guðrún Ingimarsdóttir Kær vinur, FRÍMANN ÞORSTEINSSON frá Syðri-Brekkum, Skagafirði, lést á heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 14. mars. Útförin fer fram frá Flugumýrarkirkju laugardaginn 23. mars klukkan 14. Fyrir hönd vina og ættingja, Helena Ketilsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og systir, GUÐMUNDA S. EINARSDÓTTIR frá Stekkjarbóli í Unadal, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Hafnarfirði 18. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.