Morgunblaðið - 20.03.2019, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég þorði ekki að gera mér vonir
um að verða valin, enda hafði ég
heyrt að margar umsóknir hefðu
borist þetta árið,“ segir Þórdís
Helgadóttir rithöfundur, en í gær
var tilkynnt að hún hefði verið valin
nýtt leikskáld Borgarleikhússins.
Tekur hún við af Birni Leó Brynj-
arssyni en verk hans Magnum Opus
verður sýnt í Borgarleikhúsinu á
næsta leikári. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Borgarleikhúsinu sóttu
alls 38 um starfið sem er til eins árs.
Það er stjórn Leikritunarsjóðs
Leikfélags Reykjavíkur sem stend-
ur fyrir valinu á leikskáldi Borgar-
leikhússins, en í henni sitja Vigdís
Finnbogadóttir, Brynjólfur Bjarna-
son og Kristín Eysteinsdóttir leik-
hússtjóri. Sjóðurinn var stofnaður
árið 2007 með það að markmiði að
„efla nýsköpun og fjölbreytni í ís-
lenskri leikritun, auka vægi leikrit-
unar í samfélaginu og stuðla að því
að hún njóti virðingar í samfélagi
lista“ ásamt því að „stuðla að aukn-
um áhuga ungs fólks á leikritunar-
forminu og kynna verðandi leik-
skáldum lögmál leiksviðsins,“ eins
og segir í tilkynningu. Fyrsta leik-
skáld Borgarleikhússins var valið
Auður Jónsdóttir 2009 og síðan hafa
tekið við keflinu Jón Gnarr, Kristín
Marja Baldursdóttir, Tyrfingur
Tyrfingsson, Salka Guðmundsdóttir,
Björn Leó og nú Þórdís.
Þórdís er menntuð í heimspeki, en
hún hlaut Fulbright-styrk til fram-
haldsnáms í heimspeki við Rutgers-
háskóla í New Jersey. Hún lýkur
senn meistaranámi í ritlist við
Háskóla Íslands, en fyrir síðustu jól
sendi hún frá sér smásagnasafnið
Keisaramörgæsir og hafði áður sent
frá sér ljóðabókina Ég er ekki að
rétta upp hönd undir merkjum
Svikaskálda. Fyrr á þessu ári sýndi
Borgarleikhúsið einþáttung Þórdís-
ar sem nefnist Þensla og var hluti af
sýningunni Núna 2019.
„Ég hef unnið í allskonar texta-
vinnu, aðallega skrifað smásögur og
ljóð. Það er ekki nema ár síðan ég
byrjaði að skrifa fyrir leikhús af ein-
hverju viti,“ segir Þórdís. Spurð
hvers vegna leikhúsið kalli sterkar á
hana sem höfund núna svarar Þór-
dís: „Það er eitthvað sem kitlar svo
ótrúlega mikið við að sjá textann
lifna við á sviðinu,“ segir Þórdís og
tekur fram að hún hafi mikinn
áhuga á samvinnu ólíkra listamanna
og listgreina eins og hún birtist í
leikhúsinu. „Ég hef mikinn áhuga á
því hvernig aðrir listamenn vinna.
Mér finnst leikhúsið ótrúlega
heillandi staður þar sem sviðslista-
fólk skapar hreina töfra,“ segir Þór-
dís og rifjar upp að afar lærdóms-
ríkt hafi verið að sitja nær allar
æfingar á Núna 2019 fyrr í vetur.
„Ég er sannfærð um að starfstími
minn hér eigi eftir að skipta sköpum
fyrir framhaldið.“
Spurð hvort hún sé þegar farin að
leggja drög að því verki sem hún
vilji skrifa á starfstímanum segist
Þórdís í umsókn sinni hafa útlistað
tvær hugmyndir. „Báðar hugmyndir
eru svolítið pólitískar og bera keim
af absúrddrama. Önnur hugmyndin
er hugmyndadrifin framtíðarsaga
þar sem hið persónulega og pólitíska
rennur saman. Hin hugmyndin er
sögulegt verk sem byggir lauslega á
smásögunni „Það er rangt að ég hafi
átt í ástarsambandi við Filippo Tom-
maso Marinetti“ sem birtist í Keis-
aramörgæsum,“ segir Þórdís og vill
lítið meira gefa upp þar sem hug-
myndirnar séu enn á vinnslustigi.
„Leikhúsið ótrúlega
heillandi staður“
Morgunblaðið/Hari
Glöð Þórdís er nýtt leikskáld Borgarleikhússins, hér með Vigdísi Finnboga-
dóttur, Brynjólfi Bjarnasyni og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra.
Nýtt leikskáld Borgarleikhússins
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@ jotunn.is // www. jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
Capernaum
Metacritic 75/100
IMDb 8,4/10
Bíó Paradís 17.30
Hermenn regnbogans
Bíó Paradís 18.00
Brakland
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 18.00
Taka 5
Morgunblaðið bbbnn
Bíó Paradís 20.00
Birds of Passage
Metacritic 86/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 20.00, 22.15
Arctic 12
Metacritic 71/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.00
Free Solo
Metacritic 83/100
IMDb 8,8/10
Bíó Paradís 22.30
Transit
Metacritic 77/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 22.00
Captive State 16
Myndin gerist í Chicago í
Bandaríkjunum um áratug
eftir að geimverur hafa tekið
þar völdin.
Metacritic 50/100
IMDb 5,7/10
Smárabíó 19.40, 22.10
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.30
Britt-Marie var hér Laugarásbíó 20.00, 22.00
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30,
19.30
Serenity 16
Metacritic 38/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Álfabakka 19.40,
22.00
Sambíóin Akureyri 22.20
Alita: Battle Angel 12
Metacritic 54/100
IMDb 7,6/10
Smárabíó 19.40, 22.20
Fighting with
My Family 12
Sambíóin Keflavík 22.00
Smárabíó 19.40
Vesalings
elskendur Morgunblaðið bbbnn
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 18.30, 20.40
The Mule 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Vice Laugarásbíó 22.20
Cold Pursuit 16
Metacritic 66/100
IMDb 6,9/10
Smárabíó 22.10
Green Book 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 70/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 19.00,
21.45
The Favourite 12
Ath. íslenskur texti.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 18.00
The Wife Metacritic 77/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Kringlunni 16.40
Instant Family
Metacritic 57/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 19.50
Bohemian
Rhapsody 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,1/10
Háskólabíó 20.30
A Star Is Born 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 18.40,
21.40
Sambíóin Akureyri 19.20
Jón Hnappur og
Lúkas Eimreiðar-
stjóri Munaðarlaus drengur leitar
upprunans. Ungri prinsessu
er haldið fanginni í hinni
stórhættulegu Dragon borg.
Sambíóin Álfabakka 17.20
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 16.20
Sambíóin Akureyri 17.00
The Lego Movie 2
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 64/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.30
Spider-Man: Into the
Spider-Verse Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 87/100
IMDb 8,8/10
Smárabíó 17.00
Ótrúleg saga um
risastóra peru IMDb 6,2/10
Smárabíó 15.00, 17.40
Metacritic 65/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 17.20, 19.50, 22.20
Sambíóin Álfabakka 16.40, 17.00, 18.00,
19.20, 19.40, 20.40, 22.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.20, 18.00, 19.00,
20.00, 21.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.00, 21.40
Sambíóin Akureyri 17.00, 19.40, 22.20
Sambíóin Keflavík 19.20, 22.00
Smárabíó 16.00 (LÚX), 16.20, 19.00 (LÚX), 19.20, 22.00
(LÚX), 22.20
Captain Marvel 12
Að temja
drekann sinn 3 Á sama tíma og draumur
Hiccup um að búa til frið-
sælt fyrirmyndarríki dreka
er að verða að veruleika
hrekja ástarmál Toothless
Night Fury í burtu.
Laugarásbíó 17.20
Sambíóin Álfabakka 17.30
Smárabíó 15.10, 17.10
Háskólabíó 18.20
Borgarbíó Akureyri 17.20, 21.40
What Men Want 12
Kona ein grípur til sinna ráða
þegar gengið er freklega
framhjá henni á karllæga
vinnustaðnum þar sem hún
starfar.
Metacritic 49/100
IMDb 4,2/10
Sambíóin Álfabakka 19.50,
22.20
Sambíóin Egilshöll 22.00
Sambíóin Keflavík 19.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna