Morgunblaðið - 20.03.2019, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 20.03.2019, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Matthildur er sérkenni-legt barn og sérkenni-leg hetja, eins og húnbirtist í söngleikja- aðlögun Dennis Kelly og Tim Minch- in á klassískri sögu Roalds Dahl. Fyrir utan hefðbundna, við gætum jafnvel kalla þá „línulega“, eiginleika á borð við hugrekki, réttsýni og hug- myndaauðgi er hennar aðaleinkenni lestrar- og fróðleiksfýsn, knúin áfram af ofurgreind. Og svo, þegar mikið liggur við, getur hún hreyft hluti með hugarorkunni. Hún er samt frekar aðgerðalítil lengst af, fyrir utan smá skammarstrik, og lætur flest af sínum ömurlegu, eigin- lega hættulegu, aðstæðum yfir sig ganga. Sem er kannski raunsæis- grunnurinn að ævintýralegum ólík- indunum: aðstæðurnar sem hún elst upp við eru það eina sem hún þekkir utan bókanna sem hún gleypir í sig. Pakkið í fjölskyldunni er heimurinn eins og hann hlýtur að vera. Þangað til hún hittir Fríðu Hugljúfu. Fyrsta faðmlag þeirra er einn af hápunkt- um sýningarinnar, og sker sig úr í þessari orkuríku stuðsprengju. Það er reyndar eitt af því sem ger- ir þessa þriggja tíma setu í stóra sal Borgarleikhússins jafn áhrifaríka og raun ber vitni hvað vel tekst að varð- veita mennsku og trúverðugleika persónanna þrátt fyrir að bæði per- sónusköpun og hegðunar- og hreyf- ingamynstur sé stílfært og einfaldað að ystu mörkum. Allur þessi stóri leikhópur, ungir sem aldnir, og Bergur Þór Ingólfsson auðvitað líka, eiga hrós skilið fyrir þetta. Það er ekki alveg sjálfsagt að koma þessum mannlega tón í gegn um þetta mikla „sjó“, þennan iðandi og óstöðvandi flaum af tónlist og orðum, hreyfingu fólks og sviðs, þar sem dýpt og þróun persóna er aftar- lega á forgangslista höfundanna. Annað sem þeir hafa ekki hugað nægilega að er framvinda sögunnar. Það er nánast engin spenna byggð inn í atburðarásina. Við vitum frá fyrstu stund að pabbi Matthildar ætlar sér að gabba grunsamlega vel klædda og moldríka Rússa í bíla- viðskiptum, en síðan gerist ekkert í því fyrr en í blálokin þegar sú saga fær fullkomlega fyrirsjáanlegar lyktir. Fyrsta sena með samskiptum hinnar hroðalegu skólastýru við börnin gæti eins verið sú síðasta hvað varðar ofsa, grimmd og órétt- læti. Engin þróun, engin spenna. Og það er síðan eitthvað sérstaklega ófullnægjandi við hvernig og hvenær sagan sem endanlega hrindir upp- gjöri við Karítas Mínherfu af stað er kynnt fyrir okkur. Síðan leysist allt hratt og vel og óþarflega auðveld- lega. Það er líka dálítið ójafnvægi í tón- listinni. Fram að hléi er Minchin í ómstríðu og nokkuð ólagrænu skapi, lögin heldur einsleit, dramatískt áhrifarík frekar en áheyrileg. Eyrnaormarnir koma síðan í röðum eftir hlé. Matthildur er skemmtilegt tónlistarverk, meira krefjandi en flestir nútímasöngleikir, en tónlistin skapar bæði stemminguna og ber oft líka uppi framvinduna, eins og vera ber. Gísli Rúnar Jónsson er hár- réttur maður til að skila orðakæf- unni, sem Minchin hefur svo gaman af að hræra saman, á skrautlegri og stundum ánægjulega óvæntri íslensku. Tónlistarflutningurinn var fágaður og öruggur undir stjórn Agnars Más Magnússonar þó ekki kæmist hvert einasta orð alla leið í gegnum hamaganginn. En þó verkið sé sérkennilegt í lag- inu og dramatískt ófullnægjandi er skemmtigildið ómælt og tíminn líður hratt þrátt fyrir allt. Margt kemur þar til. Það er ekki úr vegi að byrja á að tala um hreint stórkostlega leikmynd Ilmar Stef- ánsdóttur og þá meðferð sem hún fær í lýsingu Þórðar Orra Péturs- sonar. Möguleikarnir virðast enda- lausir, óregluleg formin og urmull smáatriða tryggja að það er alltaf eitthvað óvænt handan við næsta snúning hringsviðsins. Næstan má t.d. nefna Lee Proud og hans kröft- ugu og hugmyndaríku kóreógrafíu. Það er sérstaklega auðvelt að verða agndofa yfir frammistöðu barna- hópsins í dansatriðum sínum. Þá eru búningar Maríu Th. Ólafsdóttur vel unnið verk sem smellhittir heim verksins. Eini veiki punkturinn í umgjörðinni þóttu mér töfrarnir sem Matthildur leysir úr læðingi á ögurstundu, of smáir í sniðum og týndust dálítið í sjónarspili umhverf- isins. Ísabel Dís Sheehan fór með titil- hlutverkið á frumsýningunni og var framúrskarandi sannfærandi í leik, dansi og söng, ekki síst í stórum og krefjandi söngnúmerum sínum. Fyr- ir utan tæknikröfur hlutverksins, sem hún leysti afbragðsvel, er þetta þrælsnúið verkefni, sérstaklega vegna þess hve aðgerðalítil Matt- hildur er lengst af, en Ísabel nær að fanga athygli okkar og halda henni ævinlega þegar það átti við. Fjöl- skylda Matthildar er einnig vel skip- uð. Það gustar af Birni Stefánssyni í hlutverki hins glórulausa pabba, Sölvi Viggósson Dýrfjörð var dásamlegur gleðigjafi þrátt fyrir al- gert aðgerðaleysi. Senuþjófurinn í fjölskyldunni er samt mamman yfir- gengilega og Vala Kristín Eiríks- dóttir fór á miklum og morðfyndnum kostum, ekki síst í glæstu dansatriði með Þorleifi Einarssyni. Börnin voru hvert öðru betra og tókst öllum að skapa skýrar persón- ur sem skáru sig úr samstilltum hópnum. Það er óhjákvæmilegt að nefna sérstaklega Erlen Ísabellu Einarsdóttur (Mína) sem sýndi í upphafi seinni hálfleiks framúrskar- andi vald yfir kómískum tímasetn- ingum, og Baldur Björn Arnarsson (Lars) sem fór hetjulega með köku- átsatriðið mikla. Karítas Mínherfa er vitaskuld stóra glansrullan. Gervi Björgvins Franz Gíslasonar í hlutverkinu er stórglæsilegt, gott ef kryppan kall- ast ekki á yfir annað yfirgengilegt illmenni sem stjáklar Stóra svið Borgarleikhússins þessa dagana. Söngur, dans og skýrleiki einkenna Karítas hans, en ég hefði ekki verið mótfallinn því að finna Björgvin njóta sín aðeins meira í hlutverkinu. Gefa sér lausari taum og smjatta á illfyglinu. Athygli vekur að Borgarleikhúsið kallar til leiks leikkonu sem útskrif- ast núna í vor af leikarabraut LHÍ, til að fara með mikilvægt og veiga- mikið hlutverk Fríðu Hugljúfu. Það er engin ástæða til að amast við þessu, því Rakel Björk Björnsdóttir er algerlega heillandi í hlutverkinu. Stjörnuþokkinn streymir frá henni og söngröddin bræðir hvert hjarta, sem er nákvæmlega það sem þarf. Ebba Katrín Finnsdóttir er bráð- skemmtileg sem hrifnæmur bóka- vörður og Arnar Dan Kristjánsson heldur áfram að skapa svipmiklar persónur í fáum dráttum, líkt og hann gerði í Ríkharði III. Þá er Viktoría Sigurðardóttir flott sem loftfimleikakonan í sögunni sem Matthildur segir á bókasafninu en flæðir síðan inn í meginatburðarás verksins. Matthildur er þrekvirki af því tag- inu sem Borgarleikhúsið er komið með einstakt lag á að gera vel. Það er heitt hjarta í sýningunni sem hverfur ekki í hávaðanum, orða- flaumnum, tæknibrellunum og enda- lausri hugkvæminni og örlætinu við smáatriðanostrið. Verkið sjálft er hinsvegar gallagripur, það vantar í það meiri dramatískan skriðþunga, alvöru þroskabrautir fyrir helstu persónur og mögulega aðeins færri nótur og orð. Engu að síður mikil skemmtun og hrífandi kvöldstund. Pakkið mun sigrað Ljósmyndir/Grímur Bjarnason Heitt hjarta „Það er heitt hjarta í sýningunni sem hverfur ekki í hávaðanum, orðaflaumnum, tæknibrellunum og endalausri hugkvæminni og örlætinu við smáatriðanostrið,“ segir í leikdómnum um söngleikinn Matthildi. Borgarleikhúsið Matthildur bbbbn Eftir Roald Dahl í leikgerð Dennis Kelly. Tónlist og söngtextar: Tim Minchin. Út- setningar og önnur tónlist: Chris Night- ingale. Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson. Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson. Danshöfundur: Lee Proud. Tónlistar- stjórn: Agnar Már Magnússon. Leik- mynd: Ilmur Stefánsdóttir. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Myndband: Ingi Bekk. Hljóð: Garðar Borgþórsson og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir. Hljómsveit: Agnar Már Magnússon, Andrés Þór Gunnlaugsson, Einar Jónsson, Haukur Gröndal, Ívar Guðmundsson, Kjartan Guðnason, Ólaf- ur Hólm, Ólafur Jónsson, Snorri Sigurð- arson, Vignir Þór Stefánsson, Þor- grímur Jónsson og Þórdís Gerður Jónsdóttir. Leikendur: Andrea Lapas, Arna Sif Gunnarsdóttir, Arnaldur Hall- dórsson, Arnar Dan Kristjánsson, Bald- ur Björn Arnarsson, Björgvin Franz Gíslason, Björn Stefánsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Guðnadóttir, Emil Björn Kárason, Erlen Ísabella Einars- dóttir, Erna Tómasdóttir, Gabríel Máni Kristjánsson, Guðmunda Pálmadóttir, Hilmar Máni Magnússon, Hlynur Atli Harðarson, Ísabel Dís Sheehan, Jón Arnór Pétursson, Linda Ýr Guðrúnar- dóttir, Lísbet Freyja Ýmisdóttir, María Pála Marcello, Patrik Nökkvi Pétursson, Rakel Björk Björnsdóttir, Salka Ýr Óm- arsdóttir, Steve Lorenz, Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Vala Frostadóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Viktoría Sigurðardóttir, Þorleifur Einarsson, Þóra Fanney Hreið- arsdóttir og Þórey Lilja Benjamínsdóttir Wheat. Frumsýning á Stóra sviði Borg- arleikhússins 15. mars 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST SÉRBLAÐ Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. Brúðkaups blað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 5. apríl PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir föstudaginn 29.mars. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.