Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Nýjar fermingarmöppur
Mappan geymir myndir,
gestabók og kort
Varðveittu minningarnar um
fermingardaginn á einum stað
9 litir
Múlalundur Vinnustofa SÍBS
Reykjalundur | 270 Mosfellsbær
Sími 562 8500 | www.mulalundur.is
E
f það er eitthvað sem ungt fólk hefur
gaman af þá eru það nýjustu raftækin.
Til að komast í gegnum unglingsárin
þarf jú að vera hægt að hlusta á uppá-
haldstónlistina, spila uppáhaldsleikina,
og vera með nefið límt við snjallsímann frá morgni
til kvölds.
Þeir sem eldri eru eiga oft fullt í fangi með að
átta sig á hvaða græjur unglingana dreymir um –
og ekki að furða því tæknin breytist hratt og dell-
urnar koma og fara eins og hendi sé veifað.
Til að auðvelda gjafavalið eru hér nokkur skot-
held raftæki sem munu ekki valda vonbriðgum á
fermingardaginn:
1 PlayStation 4 Pro-leikjatölva
Leikjatölvan frá Sony gerir fleira en að spila
vinsælustu leikina. Henni er best lýst sem einni
allsherjar afþreyingarmiðstöð fyrir bæði sjón-
varpsþátta- og kvikmyndagláp, ráp á netinu, tón-
listarhlustun og svo vitaskuld tölvuleikjaspilun.
Með öflugustu gerðinni, PS4 Pro, má leysa krafta
sýndarveruleikans úr læðingi og hverfa inn í
leikjaheiminn.
Hjá Elko kostar PS4 Pro 59.995 kr.
2 SamsungGalazy S10
Við fermingu er kannski loksins orðið óhætt að
leyfa unglingnum að eignast snjallsíma í hæsta
gæðaflokki. Nýjasta flaggskipið í símaframboði
Samsung, Galaxy S10, er ekki ódýrasti síminn á
markaðinum, en á móti kemur að það er alveg
öruggt að hann verður mikið notaður.
Meðal þess sem Galaxy S10 skartar er ákaflega
vel heppnuð myndavél svo að unglingurinn á eftir
að geta látið ljós sitt skína sem áhugaljósmyndari
og fest dýrmætar minningar unglingsáranna á
filmu.
Samsung Galaxy S10 fæst m.a. hjá Elko á
144.995 kr.
3 Þráðlaus heyrnartól frá Bose
Fyrir unglinginn eru heyrnartól ekki bara til
þess gerð að hlusta á tónlist, heldur eru þau líka
partur af fataskápnum. Er útlitið ekki fullkomnað
fyrr en stór og fín heyrnartólin eru komin á eyrun.
Bose Quiet Comfort 35 eru heyrnartól af bestu
sort, og nota nýjustu tækni til að deyfa um-
hverfishljóð. Þau tengjast snjallsímanum eða
tölvunni þráðlaust og á hleðslan að duga í 20
klukkustunda notkun.
Hjá Elko kosta heyrnatólin 46.995 kr.
4 Rafmagns-hlaupahjól
Úti í heimi hefur fólk tekið rafmagnshlaupa-
hjólum opnum örmum enda afskaplega sniðug
samgöngutæki. Hlaupahjólin taka sáralítið pláss,
þau má brjóta saman, og ná allt að 25 km/klst
hraða sem er rösklega tvöfaldur skokkhraði.
Henta þau vel til að komast með skjótum, örugg-
um og umhverfisvænum hætti á milli staða.
Kaupa má Mi rafmagnshlaupahjólið hjá Mii.is á
79.990 kr. og fæst bæði í svörtum lit og hvítum.
5 Þráðlausir hátalarar frá JBL
Mikið líður tíminn hratt. Þeir sem eru núna að
undirbúa fermingarveislu frumburðarins muna ef-
laust eftir því að hafa langað mest af öllu að fá í
fermingargjöf risastórar græjur með geislaspil-
ara. Í dag er ekki lengur aðalatriðið að græjurnar
séu stórar, og geisladiskarnir eru útdauðir rétt
eins og risaeðlurnar: það sem unglingarnir vilja í
staðinn eru litlir og meðfærilegir blátannar-
hátalarar sem streyma tónlistinni beint úr síman-
um.
JBL Charge4 hátalararnir hitta í mark, enda
veðurvarðir, fást í ýmsum litum, hafa kröftugan
hljóm og koma með innbyggðri rafhlöðu sem dug-
ar í allt að 20 stunda spilun.
JBL Charge4 kostar 24.995 kr. hjá Heimilis-
tækjum.
6 Acer fartölva
Árin í kringum fermingaraldurinn eru góður
tími fyrir unglinginn til að eignast sína fyrstu al-
mennilegu fartölvu. Námið er farið að verða
krefjandi, og þörf á góðu vinnutæki til að skrifa
ritgerðir, gera heimildaleit og æfa fingrasetn-
inguna.
Acer Swift 1 er fín fartölva fyrir byrjendur,
með 14 tommu skjá og prýðileg græja til að leysa
skólaverkefnin vel af hendi, spjalla á samfélags-
miðlum og streyma uppáhaldssjónvarpsþáttunum.
Tölvulistinn selur Acer Swift 1 á 89.995 kr.
Fyrir græjuóða
unglinginn
1
3
4
6
5
2