Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Síða 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2019 Spennan stigmagnast Enda þótt tvö lið hafi verið íbrakandi meistaraformi í all-an vetur verður bara annað þeirra krýnt enskur meistari í knatt- spyrnu eftir réttar tvær vikur. Sorrí Stína, þannig eru bara reglurnar! Slík hefur siglingin á Manchester City og Liverpool verið að blað verð- ur án nokkurs vafa brotið í vor; tvö lið hafa ekki í annan tíma rofið 90 stiga múrinn á einu og sama tíma- bilinu. Það er raunar sjaldgæft að eitt lið nái 90 stigum eða meira; hef- ur aðeins gerst tíu sinnum í sögunni en þriggja stiga reglan var tekin upp í Englandi árið 1981. Everton vann þetta afrek fyrst liða, hlaut 90 stig slétt árið 1985. Liverpool jafnaði það stigamet þremur árum síðar og 1994 sló Man- chester United metið; nældi sér í 92 stig. Aldamótaárið 2000 hreppti Manchester United svo 91 stig. Lið Arsenal, sem ekki tapaði leik, fékk 90 stig 2004 og ári síðar setti Chelsea nýtt stigamet, 95 stig. Manchester United hlaut 90 stig 2009 og Chelsea 93 stig 2017. Manchester City varð síðan fyrst liða í 100 stigin á seinustu leiktíð. Það stigamet mun ekki falla í ár en vinni bæði Manchester City og Liverpool alla sína leiki sem eftir eru þá enda þeir heiðbláu með 98 stig og Rauði herinn 97. Það yrði þá annar og þriðji besti árangur sögunnar. Það er svakalegt til þess að hugsa að lið geti hlotið 97 stig, tapað aðeins einum leik en endað eigi að síður í öðru sæti. City er með pálmann í höndunum; hefur hlotið 89 og á eftir þrjá leiki sem sparkspekingar telja „býsna að- gengilega“. Leik Liverpool og Huddersfield var ekki lokið þegar Sunnudagsblaðið fór í prentun í gærkvöldi en ofboðslega ólíklegt verður að teljast þeir Kloppverjar hafi ekki klárað það verkefni með sóma og sæmd. Það þýðir að þeir eru væntanlega komnir með 91 stig þeg- ar þú færð blaðið í hendur, kæri les- andi. Það er til marks um að standard- inn sé alltaf að hækka að sjö af lið- unum sem hér hafa verið nefnd rufu 90 stiga múrinn eftir aldamótin 2000. Og nú bætast tvö í viðbót í þann eftirsótta elítuhóp. Besti árangur liðs í öðru sæti til þessa er frá árinu 2012, þegar Man- chester United tapaði titlinum til granna sinna í City á markamun. Þegar Sergio Agüero skoraði á ell- eftu stundu í lokaleiknum gegn Queens Park Rangers. Bæði lið luku þá keppni með 89 stig. Meðalstigafjöldi liða sem hafnað hafa í öðru sæti í efstu deild á Eng- landi frá 1981 er 79 stig, sem rennir enn frekari stoðum undir það hversu afbrigðilegt yfirstandandi tímabil hef- ur verið. Hvort verður það Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, eða Vincent Komp- any, fyrirliði Man. City, sem lyftir Englandsbikarnum 12. maí næstkomandi? Hvort bíður Liverpool eða Manchester City það sára hlutskipti að verða fyrsta liðið í sögu ensku knattspyrnunnar til að hljóta yfir 90 stig á einu tímabili en verða eigi að síður ekki meistari? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is AFP Meðalstigafjöldi meistara- liðanna í Englandi undanfarin 38 ár er 86 stig. Langalgengast er að Englandsmeistararnir ljúki keppni með á bilinu 80 til 89 stig. Þó hefur það gerst fjórum sinnum frá 1981 að minna en 80 stig hefur dugað; lægsta stigatalan er frá 1997, þegar Manchester United hlaut 75 stig. Það er líka eina tímabilið frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp að liðið í öðru sæti náði ekki 70 stigum; Newcastle United varð númer tvö með aðeins 68 stig. Það myndi ekki einu sinni nægja fyrir Meistara- deildarsæti að þessu sinni. Tímabilið fræga 1988 til ’89 þegar Arsenal tryggði sér titilinn eftir hreinan úrslita- leik gegn Liverpool á Anfield enduðu bæði lið með 76 stig en Arsenal vann titilinn á fleiri skoruðum mörkum. Allt niður í 75 stig Ég held að ég hafi verið fimm ára þegarég tók afdrifaríka ákvörðun sem hefurfylgt mér síðan. Í raun er varla hægt að segja að ég hafi tekið þessa ákvörðun, miklu frekar að hún hafi verið tekin fyrir mig. Vinur minn kom til mín og spurði: Með hvaða liði heldurðu í ensku knattspyrnunni? Ég hafði ekki hugmynd um það og var eiginlega varla með á hreinu hvað enska knattspyrnan væri. Áður en ég kom upp svari sagði hann: Allir al- vöru menn halda með Manchester United. Þar með var það komið á hreint. Mörgum árum seinna gat ég launað honum greiðann með því að vekja hann um miðja nótt og til- kynna honum að við værum að fara á Old Trafford. Ég hef sjaldan séð glaðari mann. Ég var búinn að bíða í fimm ár þegar fyrsti titillinn kom. Sigur í bikarkeppninni gegn Liverpool. Í millitíðinni höfðu mínir menn fall- ið í 2. deild og almennt verið í frekar miklu óstuði. Svo fór aðeins að rofa til en biðin eftir sigri í deildinni var löng. 26 ár nánar tiltekið. Það er langur tími. Á þessum tíma missti ég aldrei vonina. Alltaf hef ég haldið með þeim. Ég hef farið á leiki, átt treyjur, lesið ævisögur leikmanna og þjálfara. Ég hef lagt mig fram um að fylgjast með mínum mönnum og jafnan talað um okk- ur, þegar talið berst að liðinu. Rétt eins og ég væri bara alltaf með dótið í skottinu og til í að stökkva inn á ef einhver meiddist. Ég er hinsvegar sennilega frekar ódæmi- gerður stuðningsmaður fótboltaliðs. Orka mín hefur fyrst og fremst farið í að halda með lið- inu en minna í að hata önnur lið, enda held ég að flestar sjálfshjálparbækur segi okkur að hatur og illdeilur séu ekki góðar fyrir sálina. Svo hefur, í gegnum árin, bara verið alveg nóg við að vera. Margir sigrar og sætir. Það er vissulega merkilegt að þessi della fyrir boltanum skuli vera íslenskari en sviða- sulta og hrútspungar og vekja svona miklar tilfinningar. Og sjaldan hafa tilfinningarnar verið jafn miklar og í þessari viku. Þá gerist það að Liverpool á raunhæfan möguleika á að ljúka hátt í þrjátíu ára eyði- merkurgöngu sinni. Þegar liðið varð síðast enskur meistari var Vigdís Finnbogadóttir forseti og úti í heimi voru George Bush eldri og Saddam Hussein enn í frekar góðum fíling. Fyrsti Simpsons-þátturinn var ekki enn farinn í loftið og heldur ekki síðasta serían af Dallas. Sem sagt: Mannkynssaga. En til þess að þessi draumur gæti loksins ræst þurfti Manchester City að tapa fyrir United. Tap City var ekki stóra málið, heldur sigur United, en eins og allir vita hafa aldrei verið sérstakir kærleikar með Liverpool- mönnum og okkur. Það er öllum Liverpool- mönnum meira eða minna sama um City sem almennt er talið vera eins og óþolandi nýríki gaurinn í götunni. En það sem verra var: Manchester United þurfti að vinna! Ég held að margir Liverpool-menn hafi vaknað með óbragð í munninum í fyrradag. Það hlýtur að hafa stappað nærri framhjá- haldi að halda með United, þótt ekki væri nema einu sinni. Þurfa að vona, frá dýpstu hjartarótum, að þessir ógeðslegu rauðu djöfl- ar ynnu leik! Svo fór náttúrlega að United tapaði þessum leik og það verður sennilega ekki til að auka ástina á milli þessara erkifjenda. Síðan hafa fylgt ýmiss konar aðdróttanir, allt frá því að United hafi í raun ekki viljað vinna þennan leik upp í að það sé lélegasta lið í heimi. Ég ber virðingu fyrir Liverpool og það er mikil upplifun að koma á Anfield. Ég yrði ekk- ert miður mín þótt Liverpool ynni einu sinni. Það hlýtur að gerast fyrr eða síðar. Ég óttast kannski helst að þeir kunni ekkert betur að taka sigri en tapi og verði fullkomlega óþol- andi. ’Ég hef lagt mig fram um aðfylgjast með mínum mönnumog jafnan talað um okkur, þegartalið berst að liðinu. Rétt eins og ég væri bara alltaf með dótið í skottinu og til í að stökkva inn á ef einhver meiddist. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Framhjáhald í fótbolta Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.