Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Blaðsíða 19
28.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
draga inn bakborðbyssurnar og loka
hlerunum, en ráðrúm gafst ekki til
þess. Skipið sökk á nokkrum mín-
útum á 32 metra dýpi. Af þeim 130-
150 manns sem talið er að hafi verið
um borð fórust um 30-40, flestir
þeirra lokuðust inni neðan þilja.
Björgun eftir 333 ár
Fáeinum áratugum eftir slysið tókst
að bjarga flestum fallbyssunum á
land. Eftir að möstrin voru fjarlægð
féll skipið flestum í gleymsku uns
fornleifafræðingurinn Anders Fran-
sén fann það árið 1956. Björgunar-
aðgerðir hófust fljótlega og reyndust
afar erfiðar og hættulegar. Skipið lá í
fimm metra þykkri botnleðju. Grafa
þurfti fern 20 metra göng undir skip-
ið til að koma fyrir stálköplum svo
hægt væri að lyfta skrokknum frá
sjávarbotni. Það var hættulegt verk,
en engin slys urðu við framkvæmd-
ina. Um 8000 skrúfboltar höfðu hald-
ið skipinu saman, en allir höfðu þeir
ryðgað burt eftir 333 ár í sjó. Þurfti
því að festa skipsflakið rækilega sam-
an svo óhætt væri að lyfta því upp.
Eftir vandlegan undirbúning var
Vasa loks lyft upp á yfirborðið 24.
apríl 1961. Var þá mikið verk óunnið
við hreinsun og söfnun muna skip-
verja og skipshluta sem lágu á víð og
dreif kringum flakið. Margra ára
verk var síðan að setja allt saman og
verja fyrir skemmdum. Höfðu menn
á orði að hér væri stærsta púsluspil
allra tíma. Skipið reyndist þó furðu
heillegt eftir allan þennan tíma, en
helsta ástæða þess að það varðveitt-
ist svo vel var að engir trjámaðkar
eru í nánast ósöltum sjónum við
Stokkhólm, en þeir þrífast einungis í
söltum sjó.
Vasa-safnið
Vasa-safnið var opnað í Djurgården
við hátíðlega athöfn 15. júní 1990.
Yfir milljón manns heimsækja nú
safnið árlega, flestir þeirra erlendir
ferðamenn. Áhrifaríkt og heillandi er
að virða fyrir sér ekta herskip frá
sautjándu öld sem hvergi á sinn líka.
Um 95% timbursins eru úr upphaf-
legri smíði skipsins. Hægt er að virða
fyrir sér skipið frá fimm hæðum og
pöllum. Eftirmynd er af skipstjórn-
arklefa og fallbyssuþilfari. Fall-
byssur og ýmsir einkamunir skip-
verja eru til sýnis. Einar sautján
beinagrindur fundust í skipinu og eru
nokkrar þeirra í hvíldarstellingum í
glerkössum á neðstu hæðinni. Auk
þess hafa verið gerðar vaxmyndir af
nokkrum skipverjanna. Við hliðina á
Vasa er nákvæmt líkan í hlutfallinu
1:10 sem sýnir vel hvernig skipið var
málað í gylltum og skrautlegum lit-
um þegar það lagði í jómfrúferðina. Í
bíósalnum er rakin öll saga skipsins
frá smíðum til björgunar og varð-
veislu. Kaffitería er í safninu þar sem
hægt er að fá sér hvíld og hressingu.
Óhætt er að mæla með að fólk taki
frá 4-5 klukkutíma í heimsóknina.
Sporvagn S7
Þegar hægri umferð var tekin upp í
Svíþjóð árið 1967 var rekstri spor-
vagna hætt í Stokkhólmi. En um
svipað leyti og Vasa-safnið opnaði var
enduropnuð sporvagnaleiðin S7 milli
miðborgar og Djurgården og nýtur
leiðin mikilla vinsælda ferðamanna.
S7 leggur af stað framan við stór-
verslunina Åhlens City við Klara-
bergsgatan 50. Hentugust fyrir
Vasa-heimsókn er stoppistöðin fram-
an við Norræna safnið. Djurgården
var fyrr á öldum helsta veiðisvæði
konungs. Nú er þar vinsælt útivistar-
svæði Stokkhólmsbúa. Auk Vasa-
safnsins má þar finna ABBA-safnið,
tívolískemmtigarðinn Gröna Lund og
Skansen sem er hliðstætt Árbæjar-
safni, en þó öllu stærra í sniðum.
64 fallbyssur voru um borð í Vasa. Þær þyngstu, sem vógu um hálft annað tonn, voru gerðar til að skjóta 10-11 kg járnkúlum.
Skuturinn á Vasa ber vott um listrænt handbragð þýskra
tréskurðarmeistara á barokktímanum. Neðst fyrir miðju
eru englarnir við skjaldarmerkið.
Nokkrar heillegar beinagrindur af skipverjum eru til sýnis á neðstu hæðinni.
Líkan sem sýnir vel björgun skipsflaksins af hafsbotni á árunum 1956-61.
Vaxmynd af Hans Jonsson sem var hátt settur skipverji.
Hægt var að þekkja hann af dýrum fatnaðinum utan á beina-
grindinni. Vitað var að hann hafði misst stórutá hægri fótar.
Skipverjar saumuðu sjálfir föt sín. Hér má sjá
dæmigerðan klæðnað undirmanna.
Málverk af hinu volduga Vasa-herskipi sem aldrei komst út á opið haf.
Ógnvekjandi ljónið í stefninu er þriggja metra langt.
’ Eftir aðVasa varsjósett var sjó-hæfnin prófuð
með því að láta
30 manns
hlaupa sam-
tímis á þil-
farinu milli
borðstokka.
Borð
60x45cm
29.900 kr.
Skenkur
119.000 kr.
Sófaeiningar
105.000-115.000 kr.
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is