Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Blaðsíða 29
búðar, aukið veg hennar og virðingu.
Í viðtali við Cinefastique sagði Rid-
ley Scott frá því hvernig hann sjálfur
var alinn upp við að það væri hrein-
lega ekki í lagi að horfa hryllings-
myndir, þær voru settar í sama flokk
og klám þar sem foreldrar hans og
umhverfið innrættu honum að það
væri svipuð skömm fólgin í slíku
áhorfi. Blaðamaður Entertainment
bendir á að þar til Alien hafi litið
dagsins ljós hafi hryllingsmyndir ver-
ið fyrirsjáanlegar og niðurnjörvaðar
þar sem þær voru annaðhvort myndir
um draugahús, yfirnáttúrulega hluti
og þjóðsagnahrylling eða blóðugar
myndir með tilgangslausum drápum.
Hingað til hafði heldur enginn
reynt að blanda tveimur kvikmynda-
greinum saman; vísindaskáldskap og
hryllingi. Hefur verið endalaust
framhald á slíkum myndum eftir
Alien.
Þá þykir það takast fádæma vel í
Alien að gera trúverðuga leikmynd
og sögusvið um jafn ótrúverðuga
hluti, og tæknibrellurnar framúr-
skarandi. Það er þó vissulega útlit
geimverunnar sjálfrar sem er engu
líkt. Svissneski listamaðurinn HR
Giger átti bæði aðalheiðurinn af leik-
myndinni og hönnun geimverunnar
enda var gjarnan talað um hann sem
undrabarn í listsköpun.
Hlutverkaskipan myndarinnar var
óvenjuleg að því leyti að leikararnir
voru síður en svo á sínum sokka-
bandsárum. Sú yngsta í leikara-
hópnum, og ekkert sérstaklega ung
fyrir kvenmannshlutverk á þeim
tíma, var Sigourney Weaver, 29 ára.
Aðrir aðalleikarar voru allir um og
yfir fertugt. John Hurt var 39 ára,
Tom Skerrit var 45 ára, Ian Holm 48
ára og Harry Dean Stanton var 53
ára. Aldurinn er merkilegur í ljósi
þess að það var hefð fyrir því að hryll-
ingsmyndaleikarar væru ungir og
karakterar myndanna hér um bil
unglingar. Þetta stef í Alien var nýtt
þar sem persónur voru venjulegt full-
orðið fólk að vinna vinnuna sína og
lenti í hræðilegu ofbeldi.
Kvenhetja varð til
Hlutverk Sigourney Weaver var ný-
stárlegt að því leyti að í staðinn fyrir
að vera hið dæmigerða fórnarlamb
hryllingsmynda, sem stendur eitt
uppi að lokum eftir að hafa sloppið
naumlega undan óðum morðingja,
verður Weaver að ofurhetju sem í lok
myndar hefur sigrað andstæðinginn.
Á þetta bendir blaðamaður New
York Times og segir hlutverk hennar
sem Riley hafa rutt brautina fyrir
kvenhetjur í geimnum, svo sem Jodie
Foster í Contact, Söndru Bullock í
Gravity og Noomi Rapace í Prometh-
eus.
Alien byggist á sögu Dan
O’Bannon en handritið að myndinni
skrifaði hann í samstarfi við Ronald
Shusett. Fljótlega eftir að heiminum
var ljóst hve vinsæl myndin var fóru
að birtast handritshöfundar sem
vildu meina að O’Bannon hefði stolið
sögu þeirra. Einn þeirra, Jack
Hammer, sagði að Alien væri greini-
lega ritstuldur á hans eigin handriti;
Black Space. O’Bannon tókst að
sanna að Alien-handritið hefði orðið
til fyrr. Sjálfur sagði O’Bannon að
hann hefði verið undir áhrifum
margra mynda og bókmennta, ef
hann hefði stolið einhverju, þá væri
það stuldur frá öllum!
Sjálfstæðar framhaldsmyndir
Alien urðu nokkrar, svo sem Aliens,
Alien 3 og Alien: Resurrection, en
einnig komu fjölmargar myndir fram
á sjónarsviðið næstu ár og áratugi
þar sem hinir og þessir kvikmynda-
framleiðendur reyndu að koma orð-
inu „Alien“ á einn eða annan hátt fyr-
ir í titli til að hala inn peninga.
28.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
FRÆGÐ Georgia May Jagger er for-
síðufyrirsæta nýjasta heftis tímarits-
ins Carnaby en það hefti er sérstak-
lega tileinkað umhverfisvernd. Hin
27 ára gamla fyrirsæta og dóttir
Jerry Hall og Micks Jaggers er mik-
ill umhverfisverndarsinni og í yfir-
lýsingu segir Georgia Jagger að hún
sé stolt af því að vera andlit tíma-
ritsins þar sem þemað sé nú verndun
hafsins. Sjálf reyni hún alltaf að
hafa verndun umhverfisins bak við
eyrað og koma henni inn í sínar dag-
legu venjur.
Vekur athygli á umhverfisvernd
Forsíða nýjasta heftis Carnaby.
BÓKSALA 17.-23. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Barist í BarcelonaGunnar Helgason
2 GullbúriðCamilla Läckberg
3 Ísköld augnablikViveca Sten
4 KastaníumaðurinnSören Sveistrup
5 BíóráðgátanMartin Wildmark
6 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
7 LasarusLars Kepler
8 Hin ósýnileguRoy Jacobsen
9 Glæpur við fæðinguTrevor Noah
10 BláMaja Lunde
1 Lífið er ljóðasafnSigurbjörn Þorkelsson
2
Steinn Steinarr
– Ljóðasafn
Steinn Steinarr
3 Tveir dropar – ÆvikvæðiRagnar Halldór Blöndal
4 Sofðu mín SigrúnHlíf Anna Dagfinnsdóttir
5
Íslensk úrvalsljóð
Guðmundur Andri Thorsson
valdi
6 Ljóð og kaffihúsJónas Gunnar Einarsson
7
Regntímabilið
– Ljóðabókin
Kristinn Árnason
8 Svartar fjaðrirDavíð Stefánsson
9 Limrur fyrir land og þjóðBragi V. Bergmann
10 BernskumyndirFinnur Torfi Hjörleifsson
Allar bækur
Ljóðabækur
Barn náttúrunnar er fáanleg í nýrri útgáfu í tilefni 100 ára útgáfuaf-
mælis bókarinnar. Bókin var fyrsta skáldsaga Halldórs Laxness, en
hann var 17 ára þegar hún kom út árið 1919. Í afmæl-
isútgáfunni fylgir formáli höfundarins að annarri út-
gáfu sögunnar, ritaður 1964. Þá er nýr eftirmáli, rit-
aður af Halldóri Guðmundssyni.
Þakkarskuld eftir Golnaz Hashemzadeh Bonde er
nú komin út í íslenskri þýðingu Páls
Valssonar, Bjartur gefur út. Bonde er
fædd í Íran, uppalin í Svíþjóð og er
gestur Bókmenntahátíðar í ár. Sagan er nokkur vísan
í hennar eigin lífsreynslu en hún segir frá ungu ást-
föngnu og byltingarsinnuðu pari í Íran sem þrá lýð-
ræði í landinu. Eftir að reynt að hafa þar áhrif á neyð-
ast þau til að flýja til Svíþjóðar til að tryggja öryggi
sitt en þau eiga von á barni. Sjálf þurfti Bonde að flýja frá Íran barn
að aldri þar sem foreldrar hennar töldu öryggi sínu ógnað.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Ég held að elsta og stabílasta bók-
menntaástin sé „dýrk“ mitt í garð
japanska rithöfundarins Haruki
Murakami. Á síðasta
ári sendi hann frá sér
Killing Commenda-
tore. Hún er bæði
furðuleg og dáleið-
andi, sem er klárlega
hans aðalsmerki. Í
þetta skipti dansa
nútíð og fortíð háskadans gegnum
dularfullt málverk á fjallshæð
nokkurri. Ég reyndi að vera lengi
að lesa hana af því ég tímdi ekki að
klára.
Kvika er nýkomin út og meira að
segja fyrsta skáld-
saga Þóru Hjörleifs-
dóttur rithöfundar,
sem á án efa fram-
tíðina fyrir sér. Ég
ætlaði rétt að kíkja á
bókina eitt kvöldið
en endaði á því að
gleypa hana í mig í einum rykk.
Virkilega óþægileg bók sem ég gat
þó ekki slitið mig frá. Ótrúlega vel
skrifuð og ég ímynda mér að sagan
geti útskýrt fyrir mörgum lúmskar
hliðar ofbeldis í nánum sam-
böndum.
Svo er það Húðflúrarinn í Ausch-
witz eftir Heather
Morris. Gjörsam-
lega mögnuð saga
slóvakíska gyðings-
ins Lales sem lifði af
útrýmingarbúðir
nasista. Mér finnst
bækur frá þessu
tímabili mjög áhugaverðar en það
sem var nýtt fyrir mér í þessari er
að þetta er ástarsaga! Lale verður
nefnilega yfir sig ástfanginn af Gitu
en hún var líka í útrýmingarbúð-
unum. Fyrir mörg furðuleg og fá-
ránleg kraftaverk lifðu þau hörm-
ungarnar af, settust að í Ástralíu
og eignuðust saman son.
BJÖRG ER AÐ LESA
Dáleiðandi og furðuleg
Björg Magnús-
dóttir er rithöf-
undur og dag-
skrárgerðarkona
í sjónvarpi og
útvarpi.
Blá leysiljós geimskipsins
voru fengin að láni frá The
Who. Hljómsveitin hafði þá
verið að prófa að nota ljósin á
tónleikum sínum.
Ridley Scott bað Yaphet
Kotto, sem fer með hlutverk
Parker í mynd-
inni, að reyna
að angra og
fara í taugarnar
á Sigourney
Weaver utan
senunnar. Milli
persóna þeirra
á að vera mikil spenna og Scott
vildi hafa hana sem raunveruleg-
asta. Kotto fannst það erfitt því
hann kunni svo vel við Weaver.
Upphaflega átti geimveran
að vera með augu en lista-
maðurinn H.R. Giger krafðist
þess að hætt yrði við það þar
sem hann vildi skapa
tilfinningakalda veru sem nýtti
sér fyrst og fremst lyktarskynið
til að finna fórnarlömb sín.
Það var hugmynd Sigourney
Weaver að syngja „You Are My
Lucky Star“ meðan hún undir-
bjó árás
sína á geim-
veruna.
Ridley
Scott fékk
skammir
fyrir hjá
yfir-
mönnum
sínum þar
sem það
var afar dýrt vegna höfundar-
réttar að fá að flytja lagið.
Vissir þú að…
Ridley Scott
Sigourney Weaver
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE