Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Blaðsíða 7
VETTVANGUR
28.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7
Kristinn
Magnússon
Ég veit að það er ekki til vin-sælda fallið og þá allra síst áfjölmiðlunum að líkja þeim
við dauðyfli. En hvað á að kalla þá
fjölmiðla sem hafa ekki kafað í þessi
Finnafjarðaráform?
Sveitarstjórnir nyrðra – í Vopna-
fjarðarhreppi og Langanesbyggð –
segja að ekki sé hægt að horfa fram
hjá „atvinnutækifærinu“ sem felist í
því að gera Finnafjörð að stórskipa-
höfn, sjálfri siglingamiðstöð norður-
hvels jarðarkringlunnar. Hvorki
meira né minna!
En atvinnutækifæri fyrir hverja?
Varla Íslendinga því augljóslega
þyrfti að flytja inn þúsundir er-
lendra starfsmanna til að þjóna í
stórskipahöfninni.
Ég hjó eftir því að sveitarstjórinn
í Langanesbyggð sagði að þetta
gæti orðið högg fyrir náttúruna en
svo kom einnig í ljós að þetta myndi
þjóna landeigendum vel. Þá væri
alla vega til nokkurs unnið.
Fram hefur komið að ríkis-
stjórnin styður þessi áform, veitti
þannig í haust átján milljónum
króna í „verkefnastyrk“ vegna
undirbúningsvinnunnar. En það er á
vegum stórskipahafnarinnar í Bre-
men í Norður-Þýskalandi sem stóru
milljónunum er spýtt inn. Og fljót-
lega kemur að því að ekki verður
auðveldlega aftur snúið vilji
Bremenports halda áfram með
þetta „risavaxna langtímaverkefni“
sem svo er lýst. Þá ráðum við ekki
lengur. Eða hvern langar í skaða-
bótastríð við fjárfestana sem for-
stjóri Bremenports segist „bjart-
sýnn“ á að fáist að verkefninu fyrir
árslok?
Nennir annars einhver að hugsa
um þetta? Alþingi er sem kunnugt
er upptekið af eigin sálarlífi sem
stendur og ríkisstjórnin gerir það
greinilega ekki. Þó er það hún sem
fyrir okkar hönd þarf að sjá fyrir
grunnþjónustunni þegar krafta
Vopnafjarðarhrepps og Langanes-
byggðar þrýtur.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar er talað um nauðsyn þess að
gera samning við sauðfjárbændur
um kolefnissporið sem þeir stígi í
óþökk Móður Jarðar með því að
rollurnar þeirra hlaupi um haga eins
og þær hafa gert í þúsund ár.
En er hitt í lagi, stærstu skip
heims upp í landsteinana að þjóna
kapítalismanum í BNA og ESB eða
alræðinu í Kína?
Ég nefni Kínverja því þeir munu
eiga vingott við Bremerhaven eins
og fleiri hafnir í Evrópu og víðar um
álfur, ýmist eiga þær eða stýra.
Varla munu þeir senda seglskip
norður í Finnafjörð? Skyldu það
ekki frekar vera olíuknúin skip eða
kolakynt eins og hin sporþunga
verksmiðja á Bakka? Svo er náttúr-
lega til í dæminu að þau væru kjarn-
orkuknúin. Spyr sá sem ekki veit.
En er það ekki nákvæmlega það
sem við þurfum að gera – að vita?
Því þessi spurning: Þarf ekki að
ræða á landsvísu þegar Vopna-
fjarðarhreppur og Langanesbyggð
bjóðast til að leysa atvinnuvanda á
heimsvísu?
Þetta mál er ekki nýtt af nálinni.
Það hefur lengi verið í bígerð. Nú er
hins vegar búið að skrifa undir rán-
dýra aðgerðaáætlun. Hvers vegna
er þetta „risavaxna langtímaverk-
efni“ svona langt gengið nánast um-
ræðulaust?
Stundum er sagt að orð séu til alls
fyrst. En hvað gerum við þegar eng-
in orð koma? Alla vega ekki af hálfu
fjölmiðlanna, fjórða valdsins, sem
þeir stundum nefna sjálfa sig, og
eru þá nokkuð drjúgir með sig.
En ég ætla einmitt að leyfa mér
að spyrja um fjórða valdið og
þroskaferil þess.
Hvenær skyldi það taka tennur?
Kolefnisspor í Finnafirði?
’ Því þessi spurning:Þarf ekki að ræða álandsvísu þegar Vopna-fjarðarhreppur og Langa-
nesbyggð bjóðast til að
leysa atvinnuvanda á
heimsvísu?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@-
ogmundur.is
Happy Talk kertastjakar
kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
HAUSTFERÐIR
VERÐ FRÁ 179.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
FLÓRÍDA
TAMPA - ST.PETE