Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Page 7

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Page 7
VETTVANGUR 28.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7 Kristinn Magnússon Ég veit að það er ekki til vin-sælda fallið og þá allra síst áfjölmiðlunum að líkja þeim við dauðyfli. En hvað á að kalla þá fjölmiðla sem hafa ekki kafað í þessi Finnafjarðaráform? Sveitarstjórnir nyrðra – í Vopna- fjarðarhreppi og Langanesbyggð – segja að ekki sé hægt að horfa fram hjá „atvinnutækifærinu“ sem felist í því að gera Finnafjörð að stórskipa- höfn, sjálfri siglingamiðstöð norður- hvels jarðarkringlunnar. Hvorki meira né minna! En atvinnutækifæri fyrir hverja? Varla Íslendinga því augljóslega þyrfti að flytja inn þúsundir er- lendra starfsmanna til að þjóna í stórskipahöfninni. Ég hjó eftir því að sveitarstjórinn í Langanesbyggð sagði að þetta gæti orðið högg fyrir náttúruna en svo kom einnig í ljós að þetta myndi þjóna landeigendum vel. Þá væri alla vega til nokkurs unnið. Fram hefur komið að ríkis- stjórnin styður þessi áform, veitti þannig í haust átján milljónum króna í „verkefnastyrk“ vegna undirbúningsvinnunnar. En það er á vegum stórskipahafnarinnar í Bre- men í Norður-Þýskalandi sem stóru milljónunum er spýtt inn. Og fljót- lega kemur að því að ekki verður auðveldlega aftur snúið vilji Bremenports halda áfram með þetta „risavaxna langtímaverkefni“ sem svo er lýst. Þá ráðum við ekki lengur. Eða hvern langar í skaða- bótastríð við fjárfestana sem for- stjóri Bremenports segist „bjart- sýnn“ á að fáist að verkefninu fyrir árslok? Nennir annars einhver að hugsa um þetta? Alþingi er sem kunnugt er upptekið af eigin sálarlífi sem stendur og ríkisstjórnin gerir það greinilega ekki. Þó er það hún sem fyrir okkar hönd þarf að sjá fyrir grunnþjónustunni þegar krafta Vopnafjarðarhrepps og Langanes- byggðar þrýtur. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er talað um nauðsyn þess að gera samning við sauðfjárbændur um kolefnissporið sem þeir stígi í óþökk Móður Jarðar með því að rollurnar þeirra hlaupi um haga eins og þær hafa gert í þúsund ár. En er hitt í lagi, stærstu skip heims upp í landsteinana að þjóna kapítalismanum í BNA og ESB eða alræðinu í Kína? Ég nefni Kínverja því þeir munu eiga vingott við Bremerhaven eins og fleiri hafnir í Evrópu og víðar um álfur, ýmist eiga þær eða stýra. Varla munu þeir senda seglskip norður í Finnafjörð? Skyldu það ekki frekar vera olíuknúin skip eða kolakynt eins og hin sporþunga verksmiðja á Bakka? Svo er náttúr- lega til í dæminu að þau væru kjarn- orkuknúin. Spyr sá sem ekki veit. En er það ekki nákvæmlega það sem við þurfum að gera – að vita? Því þessi spurning: Þarf ekki að ræða á landsvísu þegar Vopna- fjarðarhreppur og Langanesbyggð bjóðast til að leysa atvinnuvanda á heimsvísu? Þetta mál er ekki nýtt af nálinni. Það hefur lengi verið í bígerð. Nú er hins vegar búið að skrifa undir rán- dýra aðgerðaáætlun. Hvers vegna er þetta „risavaxna langtímaverk- efni“ svona langt gengið nánast um- ræðulaust? Stundum er sagt að orð séu til alls fyrst. En hvað gerum við þegar eng- in orð koma? Alla vega ekki af hálfu fjölmiðlanna, fjórða valdsins, sem þeir stundum nefna sjálfa sig, og eru þá nokkuð drjúgir með sig. En ég ætla einmitt að leyfa mér að spyrja um fjórða valdið og þroskaferil þess. Hvenær skyldi það taka tennur? Kolefnisspor í Finnafirði? ’ Því þessi spurning:Þarf ekki að ræða álandsvísu þegar Vopna-fjarðarhreppur og Langa- nesbyggð bjóðast til að leysa atvinnuvanda á heimsvísu? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@- ogmundur.is Happy Talk kertastjakar kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 HAUSTFERÐIR VERÐ FRÁ 179.900 KR. NÁNAR Á UU.IS ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS FLÓRÍDA TAMPA - ST.PETE

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.