Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Qupperneq 10
Sumarið 2017 greindist Arnar Ingi Njarð-arson með þunglyndi og félagsfælni.Eftir að hann útskrifaðist af eðlis- fræðisviði Verslunarskóla Íslands með góðum árangri, æfði handbolta af kappi og hafði land- að vinnu hjá Toyota þurfti hann að heyja bar- áttu sem reyndist vera hin erfiðasta sem hann hefur háð á lífsleiðinni. Degi fyrir útskrift- arferð til Búlgaríu þurfti Arnar að hætta við ferðina og takast á við andleg veikindi. Nú er Arnar við mun betri heilsu, nemur hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og stundar handbolta af kappi, auk þess sem hann var einn yfirtæknimanna á Reykjavíkurskák- mótinu í Hörpu. Þar hitti hann blaðamann áð- ur en leikar hófust og spjallaði um sumarið 2017, sem hann mun seint gleyma. Þegar hann lítur yfir farinn veg telur hann að lykilatriðið sé að segja frá, en Arnar sýndi mikinn kjark og þor þegar hann greindi frá veikindum sínum á samfélagsmiðlum og vakti mikla athygli. Tæpt ár er síðan Arnar deildi frásögn sinni og tvö ár síðan hann glímdi við veikindin. „Ég lagðist á grúfu og fann að ég byrjaði að skjálfa og titra“ „Þetta byrjaði þegar lokaprófin í framhalds- skóla voru að skella á. Viku fyrir próf var bekk- urinn kallaður í myndatöku. Ég sat í mínu sæti og byrjaði að skjálfa og fann að ég var að upp- lifa eitthvað sem ég hafði aldrei upplifað áður. Skyndilega fann ég fyrir miklum kvíða og fékk það á tilfinninguna að ég myndi aldrei komast í gegnum þessi lokapróf,“ segir Arnar, en hann hefur átt erfitt með að taka próf í gegnum tíð- ina. „Ég lagðist á grúfu og fann að ég byrjaði að titra, fæturnir byrjuðu að skjálfa. Allur bekk- urinn var farinn út sem betur fer en síðan kom einhver strákur til mín og spurði hvort ég ætl- aði ekki að mæta í myndatökuna og ég hélt höfðinu niðri og sagði bara: Nei, því miður, ég er í engu standi. Takið bara myndina.“ Þegar næsti tími hófst sá kennari Arnars að ekki væri allt með felldu og þekkti aðstæð- urnar vel; því þegar nemendur þreyta sín síð- ustu lokapróf geta þeir brotnað undan álagi. Því sendi kennarinn Arnar í viðtal hjá náms- ráðgjafa, ásamt góðum vini Arnars. „Við ræddum næstu próf og komumst að þeirri niðurstöðu að það væru engar líkur á því að ég myndi falla í þessum lokaprófum, miðað við hvernig mér hafði gengið í skólanum fram að þessu. Við fengum vin minn með í viðtalið, sem hefur verið mér til halds og trausts á þess- um tíma, og það má segja að hann hafi hjálpað mér í gegnum lokaprófin.“ Allt í móðu á útskriftardeginum Erfiðleikarnir voru þó ekki á enda, því að loka- prófunum loknum fór Arnar aftur að finna fyr- ir einkennum kvíða. Í útskriftarathöfn sinni fann hann fyrir því að hann var ekki hann sjálf- ur og fann ekki fyrir gleði á útskriftardaginn. „Allt er svona í móðu, tómleikatilfinning. Ég hélt veislu um kvöldið, fór út á lífið með vinum mínum og viku síðar byrjaði ég að vinna hjá Toyota. Fyrst gekk það vel en þegar líða fór á sumarið leið mér alltaf verr og verr. Þetta var æðislegur vinnustaður og ég hef ekkert út á hann að setja en mér leið bara ekki vel á þessu tímabili. Eftir að hafa unnið þar í um það bil mánuð kom að því að yfirmaðurinn minn kall- aði mig inn til sín og ég brotnaði niður hjá hon- um. Við komumst að þeirri niðurstöðu að ég myndi taka mér leyfi frá vinnunni. Ég hafði bara ekki orkuna til að vinna á þessum tíma. Sem var bara fáránlegt – ég hafði alltaf verið í fínu líkamlegu formi, getað umgengist fólk og unnið erfiðisvinnu en þarna var ég gjör- samlega búinn á því eftir hálfan vinnudag.“ Hvert var stærsta skrefið sem þú tókst til að leita hjálpar? „Eftir að ég hætti í vinnunni var ég heima um stund en það var hægara sagt en gert. Það er auðvitað fínt, fyrst um sinn, en til lengri tíma litið er ekkert hollt að vera einn með sín- um hugsunum og á ákveðnum tímapunkti kom að því að mér leið ekkert sérstaklega vel. Þá ákvað ég að leita til ömmu minnar og fékk að gista hjá henni í 1-2 vikur. Ég fór út að ganga með henni og var í rauninni bara eins og vafinn í bómull þegar ég var hjá henni. Ég var ekki eins og ég átti að mér að vera og hún sýndi mér ást og umhyggju,“ segir Arnar. „Þetta er tabú hjá strákum“ Í ágúst 2017 versnaði þó líðan Arnars og lagð- ist hann inn á geðdeild, sem var besta og erfið- asta ákvörðun lífs hans. Hvernig var bataferlið? „Ég var inni á geðdeild í ágúst 2017 í smá- tíma og ég fann mikinn mun en mig langaði að fara í skóla, hann var að byrja á þessum tíma. Læknar ráðlögðu mér að fara hægt af stað, taka einn eða tvo áfanga í fyrstu og foreldrar mínir reyndu að koma mér niður á jörðina en ég ákvað að fara í hugbúnaðarverkfræðina af fullum krafti. Ég tók fyrsta árið, féll reyndar í einu fagi og tók það upp á sama ári. Þetta er náttúrlega fyrsta árið í verkfræði svo það var mikið álag. Málið var að ég hafði alltaf eitthvað fyrir stafni þegar ég byrjaði í háskólanum. Ég kynntist mörgu frá- bæru fólki, byrjaði að æfa og hafði nóg fyrir stafni.“ Það hlýtur að hafa verið stórt skref að leita hjálpar? „Já, þetta er tabú hjá strákum. Þetta er ekk- ert til að skammast sín fyrir, þetta er bara eins og að meiðast; togna aftan á læri eða verða frá í einhverjum íþróttum. Munurinn er bara sá að þetta snýst ekki um líkamlega heilsu, þetta er andleg heilsa. Og það er minna talað um hana.“ Skólinn hefur hjálpað þér að koma þér á réttan kjöl? „Já, ég hafði alltaf trú á sjálfum mér. Ég myndi ekki segja að þú sigrist á svona hlutum einn tveir og tíu, þú tekur bara eitt skref í einu. Á meðan ég var veikur tók mig til dæmis örugglega þrjár tilraunir að fara út að hlaupa. Fyrst fór ég út, hætti síðan við. Síðan fór ég út og hugsaði með mér: „Nei, ég get þetta ekki, það er fínt að bara hvíla sig núna.“ En þetta tekur tíma, þetta er eins og að læra að hjóla upp á nýtt og ná að halda jafnvægi. Lyf og sál- fræðimeðferð hjálpaði mér loks að komast á rétt ról. Það tók nokkurn tíma að finna rétt lyf en úrræðin hjálpuðu mér mikið og gera það enn þann dag í dag.“ Lykilatriði að segja frá Ári eftir að Arnar veiktist, í maí 2018, ákvað hann að deila frásögn af sinni baráttu á sam- félagsmiðlum. Hann fékk mikil viðbrögð fyrir frásögnina, ekki síst vegna þess hvað það er sjaldgæft að ungir karlmenn, sem tilheyra áhættuhópi, segi frá andlegum veikindum. Hvernig hafa viðbrögðin verið? „Það hafa ótrúlega margir sent mér skila- boð, þakkað fyrir, leitað til mín eftir aðstoð. Fólk sem ég bjóst ekki við að væri að glíma við erfiðleika. Það þekkja allir einhvern í rauninni. Að opna sig með þetta, hvort sem það er besti vinur þinn eða fjölskylda, það léttir á, það er eins og þú léttist um 10-15 kíló við það. Miklum þunga er af manni létt. En það er enginn að dæma þig og allir tilbúnir að hjálpa. Ég sagði liðsfélögum mínum í handboltanum frá þessu og þjálfarinn minn, hann var meira en til í að hjálpa mér. Hann sýndi mér þolinmæði og ég fékk bara að taka hlutina á mínu tempói.“ Hvað myndirðu segja við þá sem gætu verið í sömu sporum og þú, sumarið 2017? „Það er lykilatriði að opna sig, það gerir rosalega mikið fyrir þig og líka fjölskyldu og vini. Ef þú ert ekki þú sjálfur og hefur ekki verið það í langan tíma þá grunar þína nánustu að eitthvað sé að – þetta er ekki bara að létta af þér heldur líka að létta af ástvinum, vinum og jafnvel öðrum sem vita ekki nákvæmlega hvað er í gangi. Það er ljós þarna, það er hægt að sigrast á öllu. Bara að hafa trú á sjálfum sér, þótt það sé erfitt. Bara halda áfram.“ „Ég var búinn á því eftir hálfan vinnudag“ Morgunblaðið/RAX ’ Að opna sig með þetta,hvort sem það er besti vin-ur þinn eða fjölskylda, þaðléttir á, það er eins og þú léttist um 10-15 kíló við það. Mikl- um þunga er af manni létt. Þegar Arnar Ingi Njarðarson hafði þreytt stúdentspróf við Verslunarskóla Íslands, vorið 2017, þurfti hann að hringja í besta vin sinn og tilkynna honum að hann yrði einn í herbergi í útskriftarferð þeirra til Búlgaríu, vegna andlegra veikinda. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Þegar Arnar Ingi lítur yfir farinn veg telur hann að lykilatriðið sé að segja frá. VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.