Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2019 07.00 Strumparnir 07.25 Kormákur 07.35 Tindur 07.50 Mæja býfluga 08.00 Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland 08.10 Blíða og Blær 08.35 Heiða 09.00 Latibær 09.25 Tommi og Jenni 09.45 Ævintýri Tinna 10.10 Lukku láki 10.30 Ninja-skjaldbökurnar 10.55 Friends 11.20 Ellen 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.00 Friends 13.25 Jane Fonda in Five Acts 15.40 Lego Master 16.30 Jamie’s Quick and Easy Food 17.00 Sporðaköst 17.40 60 Minutes 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Sportpakkinn 19.10 Britain’s Got Talent 20.10 Atvinnumennirnir okkar 20.50 Shetland 21.50 Killing Eve 22.35 High Maintenance 23.05 Steypustöðin 23.40 Death Row Stories 00.25 All Def Comedy 01.00 Game of Thrones 02.25 S.W.A.T. 03.10 Roman J. Israel, Esq. ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 21.00 Nágrannar á norður- slóðum 21.30 Eitt og annað (e) endurt. allan sólarhr. 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Omega 21.00 Tónlist 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 24.00 Joyce Meyer 19.00 Sæludagar í Svarfaðar- dal 20.00 Ísland og umheimur 20.30 Suður með sjó endurt. allan sólarhr. 12.40 How I Met Your Mother 13.05 Top Chef 13.50 The Good Place 14.15 Life Unexpected 15.00 Gordon Ramsay’s 24 Hours to Hell and Back 16.00 Malcolm in the Middle 16.20 Everybody Loves Ray- mond 16.45 The King of Queens 17.05 How I Met Your Mother 17.30 90210 18.30 Líf kviknar 19.05 Kokkaflakk 19.45 Happy Together (2018) 20.10 Skandall 21.00 Yellowstone 22.30 Ray Donovan 23.30 The Walking Dead 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Krummi, tannlaus kóngur og talandi ljósakróna. 09.00 Fréttir. 09.03 Samtal. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Sel- tjarnarneskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Grár köttur. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Tríó Nordica 25 ára. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Blóði drifin byggingar- list. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Með á nótunum í 90 ár. 21.30 Rölt milli grafa. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Begga og Fress 07.29 Hæ Sámur 07.36 Sara og Önd 07.43 Húrra fyrir Kela 08.06 Bréfabær 08.17 Tulipop 08.21 Hvolpasveitin 08.44 Alvinn og íkornarnir 08.55 Disneystundin 08.56 Nýi skólinn keisarans 09.17 Sígildar teiknimyndir 09.24 Dóta læknir 09.45 Krakkafréttir vikunnar 10.05 Vísindahorn Ævars 10.10 Ungviði í dýraríkinu 11.00 Silfrið 12.10 Menningin – samantekt 12.40 Guðrún Á. Símonar 13.45 Grænkeramatur 14.15 Louis Theroux: Heila- skaði 15.15 Heillandi hönnun 15.45 Neytendavaktin 16.15 Díana og ég 17.40 Bækur og staðir 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Gleðin í garðinum 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.15 Hvað höfum við gert? 20.55 Sæluríki 21.45 Babýlon Berlín 22.35 Nahid 00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafsdóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsendingu á K100 alla sunnudagsmorgna. 11 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifjar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlust- endur. 14 til 17 100% Tónlistinn Siggi Gunnars fer yfir 40 vinsælustu lög landsins. Tónlistinn er unninn upp úr gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðanda og er eini opinberi vinsældalisti landsins.. 17 til 00 K100 tónlist Söngleikurinn „Hair“ eða „Hárið“ var frumsýndur á Broadway á þessum degi árið 1968. Þar urðu sýningarnar 1.729 talsins en lokasýningin var hinn 1. júlí 1972. Sögu- sviðið var samtíminn í Banda- ríkjunum þar sem togstreita ríkti á milli hörmunga Víet- namstríðsins og hippamenn- ingarinnar sem blómstraði með ást og frið að leiðarljósi. Lögin í verkinu eru hvert öðru betra en þar heyrast meðal annars „Aquarius“ og „Let the Sunshine in“. Söngleikurinn hefur verið settur upp úti um allan heim, þar á meðal nokkrum sinnum hér á landi. Sýningar urðu 1.729 talsins. 51 ár frá frumsýningu Miklar umræður eru víða um bæ um Game of Thrones en eins og al-þjóð veit er síðasta serían farin í loftið. Eftir átta ára bið fæst þávæntanlega botn í það hver muni erfa krúnuna að lokum og ráða yfir ríkjunum sjö. Fólk skiptist í tvo hópa, þá sem hafa fylgst með frá upphafi og hina sem aldrei hafa augum barið þáttinn. Hinir fyrrnefndu tilheyra nánast eins konar „kulti“ og geta rætt sín á milli flókin mál þáttanna sem við hin botnum lítið í. Margir hafa tekið þetta skrefinu lengra og hafa gúgglað allt um þættina, t.d. fjölskyldutengsl persónanna, sem eru oft afar flókin. Einnig er hægt að skoða alls kyns landakort, tvíta um þættina, lesa allt um leikarana og fylgjast með þeim á samfélags- miðlum svo fátt eitt sé nefnt. Hinir síðarnefndu, sem aldrei hafa séð þáttinn, fyllast sumir undarlegu stolti yfir því að hafa ekki séð þáttinn. Svona „ég tilheyri ekki þeim meiri- hluta sem hefur sogast inn í heim Krúnuleikanna“, eins og það sé eitt- hvað merkilegt. Aðrir hafa e.t.v. hreinlega ekki áhuga á svona blóðugu sjónvarpsefni. Alla vega, ég er ein af þeim sem til- heyrðu þeim síðarnefndu. Skildi ekki alveg þetta æði sem greip fólk sem á horfði. En forvitnin vaknaði skyndilega og langaði mig allt í einu að vita: hvað er svona merkilegt við Game of Thrones? Hverju er ég að missa af? Af hverju eru allir að missa sig yfir þessum þáttum? Það var ekki seinna vænna að reyna að ná hinum, enda aðeins nokkrir þættir eftir þar til allt er búið. Ég tók mig því til um daginn og byrjaði á seríu eitt. Fram undan voru um 70 klukkutímar af sjónvarpsglápi samkvæmt út- reikningum sonar míns. Eða tæpar tvær vinnuvikur. Í fyrstu seríu var ekki laust við að ég þyrfti nokkrum sinnum að grípa fyrir augun því hausar fuku hægri vinstri. Menn voru klofnir í herðar niður fyrir minnstu mistök. Innyfli láku gjarnan úr búkum og hendur voru höggnar af. Að lokinni seríunni hafði ég vanist blóðbaðinu og gat haldið ótrauð áfram. Sería tvö var kláruð og veikindagur einn var vel notaður í Krúnuleikana. Ég er hálfnuð með seríu þrjú og líklega eru þá samt eftir um fimmtíu klukkutímar af glápi. Mögulega þarf ég að biðja um frí í vinnunni nema ég taki bara helgina stíft í þetta. Ég þarf nefnilega að klára seríur 1-7 áður en að lokaþátturinn verður sýndur 19. maí. Ég hef þá sem betur fer nokkrar vikur til að ná þessu markmiði. Ég er sem sagt komin með annan fótinn inn í hóp aðdáenda. Þættirnir eru nefnilega frábærir. Kvikmyndatakan stórkostleg, söguþráðurinn spennandi, gervin ótrúleg, búningarnir æðislegir og tæknibrellurnar óaðfinnanlegar. Svo glittir oft í íslenskt landslag. Er hægt að biðja um eitthvað meira? Þegar ég segi fólki að ég sé byrjuð að horfa fæ ég gjarnan að heyra: „Mikið öfunda ég þig að eiga þetta eftir!“ Ein vinkona sagðist hafa lotu- horft á alla þættina í janúar. Af- þakkaði hún öll matarboð og rykið fékk að safnast upp á hillum og í hornum. Þvottahrúgan stækkaði ört en ekkert gat fengið hana frá sjónvarpinu. Þannig verður þetta líklega hjá mér á næstunni. Ég afþakka fyrir fram öll boð. Þvotturinn má líka bíða. Hverjum er ekki sama um smá ryk? Game of Thrones hefur yfirtekið líf mitt. Ég tala við ykk- ur tuttugasta maí! Brátt verður sýndur síðasti þáttur af Game of Thrones og bíður heimurinn í ofvæni eftir endalokunum. Undirrituð ákvað að horfa á allar sjö seríurnar og ná hinum staðföstu aðdáendum áður en yfir lýkur. Af blóði, ryki og þvotti sem bíður Allt og ekkert Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Eggert ’ Fram undan voru umum 70 klukkutímar afsjónvarpsglápi sam-kvæmt útreikningum sonar míns. Eða tæpar tvær vinnuvikur. Þvotturinn bíður betri tíma.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.