Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2019 Í haust verða 75 ár liðin frá hinstu sigl- ingu gamla Goðafoss frá Reykjavík og af því tilefni hefur íslensk/bandaríski ljósmyndarinn George Valdimar Tiede- mann brennandi áhuga á að finna og helst hitta þá farþega sem voru um borð og enn eru á lífi. George var sjálf- ur um borð í skipinu í þessari merki- legu siglingu, kornabarn í örmum ís- lenskrar móður og bandarísks föður, sem gegndi hér herþjónustu. Goðafoss komst heilu og höldnu til New York en á leiðinni til baka grandaði þýsk- ur kafbátur skipinu á Faxaflóa. „Langt er um liðið og sjálfsagt ekki margir farþegar enn á lífi. Ég hef farþegalist- ann undir höndum og auk mín var annað lítið barn um borð; sex mánaða gömul stúlka, Evelyn Ruth Anker. Ég hef spurst fyrir um hana hérna í Bandaríkjunum en leitin ekki skilað árangri,“ segir George í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Þeir les- endur sem kunna að vita eitthvað um farþegana í þessari siglingu mega senda blaðinu póst á netfangið orri@mbl.is. Goðafoss flutti George Valdimar barnungan til Bandaríkjanna. Leitar að farþegum Stimpillinn sem George fékk í vegabréfið sitt. Vill hitta farþegana sem voru um borð í síðustu siglingu Goðafoss frá Reykjavík. George Valdimar Tiedemann Kjör hinna vinnandi stétta hafa löngum verið fyrirferðarmikil í þjóðmálaumræðunni. Það var ekkert öðruvísi árið 1979 en í dag. Á þessum degi fyrir fjörutíu árum ræddi Morgunblaðið við talsmenn hreyfingarinnar Andóf ’79, sem stofnuð hafði verið skömmu áður af nokkrum opin- berum starfsmönnum. Voru þeir andvígir nýgerðu samkomulagi stjórnar BSRB og ríkisstjórnar- innar um niðurfellingu þriggja prósenta kauphækkunar, sem umsamin var. Einn talsmanna Andófs ’79, Pétur Pétursson þulur, sagðist vilja benda á að við lifðum ekki lengur í fornöld, þar sem hægt hefði verið að versla með frelsi manna. „Forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar, Kristján Thorlacius o.fl., sögðu fyrir kosningar: „Samningana í gildi“ – þeir sögðu aldrei „Samningana í gildi mínus 3%“. Þetta kallast svikin loforð,“ sagði Pétur. Fram kom að allt starf Andófs ’79 væri unnið í sjálfboðavinnu og sögðust talsmennirnir ekki hafa fengið fjárhagslegan stuðn- ing frá BSRB. „Á meðan for- ystumennirnir þeysast um land- ið á kostnað hins almenna félagsmanns til að mæla sam- komulaginu bót.“ GAMLA FRÉTTIN Svikin loforð Talsmenn Andófs ’79: Eiríkur Brynjólfsson kennari, Helga Gunnarsdóttir félagsráðgjafi, Pétur Pétursson þulur og Albert Einarsson kennari. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Svavar Knútur tónlistarmaður Pétur Magnússon kynnir á Aldrei fór ég suður Anthony Anderson leikari FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 A F S L ÁT T U R 25% LOKAHELGIN! Opera E I T T L Í F N J Ó T U M Þ E S S S E R TA O P E R A H E I L S U R Ú M Ó T R Ú L E G T V E R Ð 1 6 0 S T Æ R S T I D Ý N U - F R A M L E I Ð A N D I V E R A L D A R Aukahlutur á mynd: gafl SERTA OPERA dýna með COMFORT botni og fótum STÆRÐ FULLT VERÐ PÁSKATILBOÐ 160 X 200 174.960 KR. 131.220 KR. � Sjö laga heilsu- og hægindalag. Laserskorið Conforma Foam tryggir réttan stuðning við neðra mjóbak og axla- svæði. � Vandað fimmsvæða skipt pokagormakerfi. Minni hreyfing, betri aðlögun. � Steyptar kantstyrkingar. � Slitsterkt og mjúkt bómullaráklæði sem andar vel.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.