Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 4
Það veldur okkur
sérstökum áhyggj-
um þegar menn segja frá
svona löguðu inni á sam-
félagsmiðlum án þess að
bera það með sér að þeir
skammist sín.
Björn Þorláksson,
upplýsingafull-
trúi Umhverfis-
stofnunar
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
Verðlækkun!
Öll rúnstykki á 99 kr.
KJARAMÁL „Við teljum það ánægju-
legt að Samtök atvinnulífsins séu
að senda þessi skilaboð til sinna
aðildarfélaga. Þarna er að okkar
mati verið að viðurkenna þau
sjónarmið við höfum uppi í þessu
máli og almennt,“ segir Viðar Þor-
steinsson, f ramk væmdast jór i
Ef lingar, um póst sem SA sendu
aðildarfyrirtækjum sínum í gær.
Í póstinum, sem er undirritaður
af formanni og framkvæmdastjóra
SA, segir að með lífskjarasamn-
ingnum hafi sérstök áhersla verið
lögð á kjarabætur til tekjulágra. Því
sé mikilvægt að umsamdar hækk-
anir skili sér óskertar.
„Örfá dæmi eru um að launa-
greiðslur umfram lágmarkskjör
kjarasamninga hafi verið skertar
með beinni vísan til Lífskjara-
samningsins. Það er mjög óheppi-
leg tilvísun enda gengið út frá því
að launaliðir samningsins kæmu
óbreyttir til framk væmda frá
gildistöku samkvæmt efni þeirra,“
segir enn fremur í póstinum.
Viðar segir að skilaboðin séu þau
að heiðra eigi samkomulagið í einu
og öllu. Þar með talið það sem snýr
að svokölluðum yf irborgunum
eins og mál Capital Hotel snúist
um. Ákveðnar lagahliðar þess máls
séu enn í skoðun hjá lögmanni
Ef lingar.
„Við áttum okkur auðvitað á því
að SA geta auðvitað ekki ábyrgst
launagreiðslur umfram taxta á
einstaka vinnustöðum. Það sem
skiptir okkur máli eru hin almennu
skilaboð og að það fari ekki að
my ndast einhver t ú lk u n hjá
atvinnurekendum að það sé sjálf-
sagðasti hlutur í heimi að ætla að
fjármagna launahækkanir samn-
ingsins með því að afnema bara
þær yfirborganir sem fyrir voru,“
segir Viðar. - sar
Eflingarfólk ánægt með skilaboð SA um lífskjarasamning
Þarna er að okkar
mati verið að
viðurkenna þau sjónarmið
sem við höfum uppi í þessu
máli og
almennt.
Viðar Þorsteins-
son, fram-
kvæmdastjóri
Eflingar
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björgólfs-
son áréttar í yfirlýsingu sem hann
birti í gær að hann hafi aldrei verið
hluthafi í f lugfélaginu WOW eins og
haldið sé fram í nýútkominni bók
Stefáns Einars Stefánssonar um ris
og fall félagsins.
Björgólfur segir að eina aðkoma
sín að WOW hafi verið sú að hann
hafi síðastliðið haust keypt skulda-
bréf í félaginu fyrir 3 milljónir evra.
Um hafi verið að ræða persónulegan
greiða við vin sinn Skúla Mogensen.
„Hvorki ég né nokkrir á mínum
vegum tóku nokkurn tímann þátt í
þeim viðræðum sem WOW átti við
mögulega nýja fjárfesta,“ segir í yfir-
lýsingunni.
Þá hafi hvorki hann né nokkur á
hans vegum setið í kröfuhafaráði
WOW. Hann hafi hins vegar sam-
þykkt tillögurnar sem lagðar voru
fyrir skuldabréfaeigendur um hugs-
anlega breytingu krafna í hlutafé.
Sú staðreynd að hann hafi lýst
kröfu í þrotabú WOW staðfesti að
hann hafi ekki verið hluthafi í félag-
inu.
Björgólfur segir missi að WOW
og leitt að ekki hafi tekist að koma
félaginu fyrir vind.
„Ég leyfi mér þó að vona að
umfjöllun um málefni félagsins
verði rétt og sanngjörn og að rang-
færslur, á borð við þá að ég hafi
verið hluthafi í WOW eða átt ein-
hverja aðkomu þar aðra en kaup á
skuldabréfum sl. haust, heyri sög-
unni til,“ segir í niðurlagi tilkynn-
ingarinnar. - sar
Segist ekki hafa verið hluthafi í WOW
Björgólfur Thor Björgólfsson sendi frá sér yfirlýsingu þar sem var áréttað
að hann hafi aldrei verið hluthafi í flugfélaginu WOW. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMHVERFISMÁL Rússneska sam-
félagsmiðlastjarnan Alexander
Tikhomirov greiddi sekt upp á 450
þúsund krónur fyrir brot á nátt-
úruverndarlögum. Tikhomirov
var gripinn við utanvegaakstur í
grennd við Jarðböðin í Mývatnssveit
í fyrradag og staðgreiddi sektina á
lögreglustöðinni á Akureyri í gær.
Alls voru fimm manns í jeppanum
og þurfti dráttarbíl til að ná honum
upp.
Sigurður Jónas Þorbergsson, einn
landeigenda Reykjahlíðar, ók fram
á bílinn sem sat fastur í leir fyrir
utan veginn, en um er að ræða jarð-
hitasvæði. „Ég vona að þetta verði
öðrum víti til varnaðar.“
Sektin rennur í ríkissjóð, land-
eigendurnir settu fram eigin kröfu,
Sigurður Jónas vill ekki upplýsa á
þessum tímapunkti hversu háa. „Ef
sú krafa verður ekki tekin til greina
þá erum við ekki sáttir,“ segir Sig-
urður Jónas. Hann kallar eftir því
að yfirvöld breyti lagaumhverf-
inu. „Landeigendur geta ekki verið
hlaupandi um með hrífur og skóflur
á eftir einhverjum sem eru að leika
sér að þessu. Þessir voru í einhverj-
um gjörningi, með GoPro-mynda-
vélar og að stilla sér upp. Þetta hefur
örugglega ekki átt að fara svona, þeir
hafa bara vanmetið aðstæðurnar.“
Alexander Tikhomirov rekur
fatamerkið Born to be ásamt því að
vera samfélagsmiðlastjarna. Sam-
kvæmt vefsíðu Born to be gengur
lífsspeki hans út á að brjóta reglur og
lifa án ótta og iðrunar. Tikhomirov
gaf ekki færi á viðtali við vinnslu
fréttarinnar. Í gær sendi rússneska
sendiráðið á Íslandi frá sér tilkynn-
ingu þar sem Rússar á ferðalagi um
landið eru hvattir til að virða íslensk
lög og reglur.
Sá hluti utanvegaaksturs sem á
sér stað inni á friðlýstum svæðum
fer inn á borð Umhverfisstofnunar,
Verði öðrum vonandi víti til varnaðar
Landeigandi Reykjahlíðar kallar eftir því að yfirvöld breyti lagaumhverfi í kringum utanvegaakstur eftir að rússnesk samfélags-
miðlastjarna ók út á jarðhitasvæði. Viðvörunarbjöllur hringja hjá Umhverfisstofnun vegna málsins. Ráðherra talar um illvirki.
Fimm manns voru um borð í jeppa Alexanders Tikhomirov sem ók út á jarðhitasvæði í nágrenni Mývatns. Tikhom-
irov greiddi sekt upp á 450 þúsund krónur fyrir brot sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/LÖGREGLUSTJÓRINN Á NORÐURLANDI EYSTRA
en í þessu tilfelli var ekið utan vega
inni á eignarlandi. Björn Þorláks-
son, upplýsingafulltrúi Umhverfis-
stofnunar, segir þetta einstaka
dæmi hringja viðvörunarbjöllum
hjá stofnuninni.
„Það veldur okkur sérstökum
áhyggjum þegar menn segja frá
svona löguðu inni á samfélags-
miðlum án þess að bera það með
sér að þeir skammist sín,“ segir
Björn. „Þetta býður þeirri hættu
heim að fólk api þetta eftir. Við
höfum áhyggjur, sérstaklega þegar
við sjáum, eins og í þessu tilfelli, fólk
sem hefur úr nægum peningum að
spila og getur jafnvel f lokkað það
sem markaðskostnað að greiða
sekt.“
Björn ítrekar að langflestir ferða-
menn umgangist náttúruna af virð-
ingu. Þar að auki sé utanvegaakstur
ekki einskorðaður við erlenda ferða-
menn og í sumum tilfellum sé ekki
um viljaverk að ræða, til dæmis
þegar þunn snjóþekja hylur fjalla-
vegi.
Nokkur dæmi um utanvega-
akstur komu upp í fyrrasumar, þar
á meðal var hópur franskra ferða-
manna sektaður um 1,4 milljónir
króna vegna skemmda eftir nokkra
breytta jeppa við Jökulsárlón og á
friðlandinu við Grafarlönd á Öskju-
leið.
Aðspurður hvort skemmdirnar
við Mývatn séu varanlegar segir
Sigurður Jónas það eiga eftir að
koma í ljós. „Þær verða varanlegar
lengi ef ekkert verður gert í því.
Einhvern tímann kemur kannski
ísöld aftur, þá sléttist þetta út.“
arib@frettabladid.is
Illvirki gegn náttúrunni gert af ásetningi
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
segir það sérstaklega dýrkeypt
að hér hafi verið um samfélags-
miðlastjörnu að ræða. Ábyrgð
þeirra sé mjög mikil varðandi það
hvernig þær hegði sér sem gestir í
öðru landi.
„Fyrir mér er þetta bara ákveð-
ið illvirki gegn náttúrunni. Þetta
virðist vera algjörlega af ásetningi
og maður getur ekkert annað en
fordæmt svona hegðun. Það eru
ekki svona ferðamenn sem við
þurfum á að halda til að auglýsa
landið okkar,“ segir Guðmundur
Ingi.
Hann segir að forvarnarstarf
sem unnið sé af landvörðum hafi
verið að skila árangri.
„Svona forvarnarstarf skiptir
miklu máli en það eru alltaf
þessir svörtu sauðir sem eru að
eyðileggja fyrir hinum og valda
þessum óásættanlegu skemmd-
um á náttúrunni.“
4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
7
-E
4
0
C
2
3
2
7
-E
2
D
0
2
3
2
7
-E
1
9
4
2
3
2
7
-E
0
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K