Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 32
Audi Q5 PHEV er með 367 hestafla drifrás og er litlar 5,3 sekúndur í hundraðið. Audi hefur sett á markað nýja gerð Q5 jepplingsins í formi tengiltvinnbíls og hann er með 367 hestafla drifrás. Aldrei áður hefur Audi vopnað hefð­ bundna bíla sína með meira afli en S eða RS kraftabíla sína. Það á þó við í tilfelli Q5 því að tengiltvinn­ útgáfan er 13 hestöflum öflugri en Audi SQ5 bíllinn. Það þýðir þó ekki að hann sé sneggri þar sem SQ5 er 5,1 sekúndu í 100 km hraða, en tengiltvinnútgáfan 5,3 sekúnd­ ur. Togið er ámóta í báðum þessum gerðum. Audi Q5 tengiltvinn­ bíllinn, sem Audi hefur reyndar nefnt Audi Q5 55 TFSI e Quattro, kemst fyrstu 40 kílómetrana á rafmagninu eingöngu og nær ein­ göngu á því allt að 135 km hraða. Stærð rafhlöðunnar í bílnum er 14,1 kWh. Það tekur aðeins 2,5 klukkustundir að fullhlaða bílinn með 400V rafstöð sem kaupa má með bílnum, en 6 klukkustundir með hefðbundnu 220V rafmagni. Audi ætlar að hefja sölu á þessari nýju gerð Q5 á þriðja ársfjórðungi þessa árs í Evrópu og nokkru síðar vestanhafs. Audi Q5 PHEV öflugri en SQ5  Nissan Leaf er söluhæsti rafmagnsbíll heims. Margir hefðu haldið að skipta þyrfti um raf hlöð­ur í rafmagnsbílum eins og Nissan Leaf þar sem þær missa aðeins geymslurými sitt með aldrinum. Þessu er þó öfugt farið þar sem Nissan hefur komist að því að raf hlöður bílanna endast 10 til 12 árum lengur en bílarnir sjálfir. Nissan fylgist mjög vel með endingu þeirra 400.000 Nissan Leaf bíla sem eru á götunum, en Nissan Leaf er söluhæsti ein­ staki rafmagnsbíll heims. Nissan gerir ráð fyrir 10 ára endingu bíla sinna, en svo virðist sem raf­ hlöður þeirra muni endast í 22 ár þó svo að þá verði verulega dregið úr geymslugetu þeirra. Nissan hefur í ljósi þessara staðreynda kappkostað að finna not fyrir þær raf hlöður sem teknar hafa verið eða verða teknar úr Leaf bílum sem fargað er. Dæmi um slíkt er þriggja megawatta raf hleðslu­ stöð sem sett var saman úr 148 raf hlöðum úr Leaf í Amsterdam Arena fótboltavellinum í Hollandi og sér þar um rafmagnsnotkun á vellinum. Rafhlöðurnar í Nissan Leaf endast 10-12 árum lengur en bílarnir  E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 5 R e n a u lt Z O E 2 4 t ím a r e y n s lu 5 x 2 0 f e b PRÓFAÐU 100% RAFBÍL Í 24 TÍMA! RENAULT ZOE Renault ZOE – verð: 3.790.000 kr. TIL AFGREIÐSLU STRAX! Hafðu samband við sölumenn Renault og tryggðu þér 100% rafdrifinn ZOE til reynslu í 24 tíma. Renault ZOE hefur algjöra sérstöðu í þessum stærðarflokki rafbíla með 300 km uppgefið drægi.* ZOE er að auki, eins og aðrir nýir Renault bílar, með ríkulegan staðalbúnað. Taktu græna skrefið og prófaðu Reanult ZOE 100% rafbíl. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 *Uppgefið drægi miðast við WLTP staðal. Það tekur aðeins 2,5 klukkustundir að fullhlaða bílinn með 400V rafstöð sem kaupa má með bílnum. Nissan gerir ráð fyrir 10 ára endingu bíla sinna, en svo virðist sem rafhlöður þeirra muni endast í 22 ár. 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 4 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 7 -F C B C 2 3 2 7 -F B 8 0 2 3 2 7 -F A 4 4 2 3 2 7 -F 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.