Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 28
Jaguar Land Rover við Hest-háls frumsýndi nýja kynslóð Range Rover Evoque á laugar- daginn var. Nýr Evoque er með meira innra rými en fráfarandi bíll enda lengri á milli hjóla en áður og með hærri og lengri yfirbyggingu. Þá er Evoque auk þess á 13% stífari undirvagni og með nýrri multilink fjöðrun sem í senn eykur aksturs- þægindi og eiginleika og veitir enn meiri drifgetu utan alfaraleiða. Evoque er mildur tvinnbíll Evoque er að sjálfsögðu fjórhjóla- drifinn eins og áður en sú nýjung er nú til staðar í nýrri kynslóð að aflið til afturhjólanna aftengist sjálfkrafa þegar þess gerist ekki þörf til að draga úr eldsneyt- iseyðslu. Er Evoque því að mestu framhjóladrifinn í venjubundnum borgarakstri og á langkeyrslu. Þá er Evoque enn fremur fyrsti bíll Jaguar Land Rover sem kemur með 48 volta mildri tvinndrifrás (Mild Hybrid) sem styður við mis- munandi dísil- eða bensínvélar til að draga úr eldsneytiseyðslu og útblæstri og auka þægindi og akstursánægju, einkum þegar ekið er af stað úr kyrrstöðu. Áfram sérkennandi Sérkennandi útlit og línur Evoque njóta sín áfram í nýju kynslóðinni enda á hvort tveggja ríkan þátt í miklum vinsældum bílsins og þeim rúmlega 200 alþjóðlegu verð- launum sem hann hefur fengið frá upphaflegri frumsýningu. Þó er heildarásýnd nýs Evoque jafnvel fágaðri en áður þar sem ávalar línurnar, grípandi hönnun grillsins og framljósanna ásamt hinni frægu afturhallandi þaklínu skipa stærstan sess í heildaryfir- bragðinu. Nýjungarnar leyna sér heldur ekki í farþegarýminu vegna aukinna þæginda sem Evoque hefur upp á að bjóða. Auk náttúrulegra og endurvinnan- legra efna í innréttingu blasa við tveir miðjusettir snertiskjáir auk nýrrar gírstangar í stað hringlaga hnappsins sem áður var. Háskerpa baksýnisspegilsins Sem dæmi um tækninýjungar má nefna baksýnisspegilinn sem jafn- framt er háskerpumyndavél sem sýnir umhverfið aftan við bílinn, þar á meðal dráttarbeisli aftaní- vagnsins. Þá má nefna að afþrey- ingarkerfi Evoque styður m.a. þráðlaus heyrnartól sem einnig má hlaða þráðlaust í bílnum. Sex vélar í boði Ásamt 48 volta mildu tvinndrif- rásinni skilar Evoque með Ingenium dísilvélinni 150 hest- öflum, 180 eða 240 eftir því hvaða vél er valin. Einnig er hægt að velja Evoque með bensínvél sem skilar ásamt tvinndrifrásinni 200 hest- öflum, 250 eða 300 hestöflum. Við vélarnar er í öllum tilfellum 9 gíra sjálfskipting. Þess utan er hægt að sérpanta Evoque framdrifinn og beinskiptan við 150 hestafla dísilvélina. Hjá Jaguar Land Rover við Hestháls kostar grunngerð Evoque með 150 hestafla vél og sjálfskiptingu kr. 6.990.000 en með þeim ákveðna búnaði sem flestir velja og verður meginsölubíll Evoque hér á landi kostar hann kr. 8.490.000. Sérkennandi útlit og línur Evoque njóta sín áfram enda á hvort tveggja ríkan þátt í miklum vinsældum bílsins. Evoque er með 13% stífari undirvagni og með nýrri multilink fjöðrun sem í senn eykur akstursþægindi og eiginleika og veitir enn meiri drifgetu utan alfaraleiða. BMW hefur nýverið kynnt þriðju kynslóð 1-línu sinnar með fjölbreyttu vélarúrvali, en sá öflugasti þeirra er M135i Xdrive með 302 hestöfl undir húddinu. Mestu breytinguna á 1-línunni má líklega telja að nú er bíllinn framhjóladrifinn en ekki afturhjóladrifinn. Reyndar er þessi öflugasta M135i gerð fjórhjóla- drifin, enda vart annað hægt með svo mikið afl til taks. BMW býður ásinn með 114 til 188 hestafla dísilvélum, en bensínvélarnar eru aðeins tvær, 140 og 302 hestafla. Með þeirri fyrrnefndu er bílinn 8,5 sekúndur í 100 en aðeins 4,8 sekúndur með þeirri öflugri og tyllir sá bíll sér í f lokk með „hot hatch“-bílum, enda er bíllinn smár í sniðum. Hægt verður að fá aflminni gerðir bílsins bæði með bein- skiptingu og sjálfskiptingu, en 7 og 8 gíra sjálfskiptingu í öflugri gerðum hans. Í M135i XDrive er 8 gíra Steptronic sjálfskipting. BMW ætlar að kynna þessa þriðju kyn- slóð 1-línunnar á bílasýningunni í Frankfurt sem hefst í september. BMW 1-línan kom fyrst á markað árið 2004 og á því 15 ára sögu. Nýr BMW M135i er 302 hestöfl  Nýr og rýmri RR Evoque frumsýndur síðustu helgi Þegar ný áttunda kynslóð Volkswagen Golf kemur á markað mun Volkswagen hætta að bjóða hefðbundna gerð þessa goðsagnarkennda bíls í Bandaríkjunum. Núna er þeir Golf bílar sem seldir eru vestanhafs sér- staklega útbúnir fyrir Bandaríkja- markað, en því ætlar Volkswagen að hætta frá og með næstu kyn- slóð. Það þýðir þó ekki að krafta- gerðirnar Golf GTI og Golf R hverfi líka af markaði í Bandaríkjunum, því þeir verða þar í boði áfram. Volkswagen Golf Sportswagen, þ.e. langbakurinn, hefur einn- ig verið í boði í Bandaríkjunum, en verður það ekki heldur með áttundu kynslóðinni. Bandaríkja- menn gætu líka þurft að bíða í dágóða stund eftir Golf GTI og Golf R bílunum því raddir hafa heyrst þess efnis að þeir munu ekki koma af 8. kynslóð þangað fyrr en 2021 og það af 2022 árgerð. Verður í boði í Kanada Það að hefðbundinn Golf verði ekki til sölu í Bandaríkjunum þýðir þó ekki að hann hverfi alfarið frá N-Ameríku þar sem hann verður áfram í boði í Kanada enda er hann best selda bílgerð Volkswagen þar. Engar fréttir eru af því hvort Golf Alltrak, háfætt gerð Golf, muni einnig hverfa af markaði í Bandaríkjunum. Þegar áttunda kynslóð Golf kemur á markað mun Volkswagen hætta að framleiða e-Golf rafmagnsgerðina þar sem hann verður leystur af með ID 3 rafmagnsbílnum. Frá og með áttundu kynslóð Golf verða í boði tvær tengiltvinnbílgerðir, en nú er það einungis Golf GTE. Ekki er ljóst hvort önnur, báðar eða hvorug þeirra verði í boði í Banda- ríkjunum. Staðfest er að önnur þessara bílgerða kemst 80 km á rafmagninu einu saman. Golf af Bandaríkjamarkaði Volkswagen Golf hverfur af markaði í Bandaríkjunum en ekki í Kanada. Ein birtingar- mynd jeppa- og jepplingaæðisins vestanhafs birtist í því að Volks- wagen ætlar að draga þennan næstmest selda bíls heims af næststærsta bíla- markaði heims. Mestu breytinguna á 1-línunni má telja að nú er bíllinn framhjóladrifinn. Önnur kynslóð Range Rover Evoque er komin til landsins. Hefur ekki stækkað að utanmáli en er samt rýmri að innan vegna auk- ins hjólhafs. 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R12 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 4 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 7 -E D E C 2 3 2 7 -E C B 0 2 3 2 7 -E B 7 4 2 3 2 7 -E A 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.