Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 27
Í atvinnurekstri á
Íslandi eru gjarnan
árstíðarbundnar sveifl-
ur, ekki síst í byggingar-
iðnaði, landbúnaði og
vegagerð.
Þegar kemur að atvinnu-tækjum er ljóst að fram undan er veruleg endurnýj-
unarþörf, því miðað við áætlanir
stjórnvalda eru horfur á að ráðist
verði í verulega innviðauppbygg-
ingu í samgöngukerfinu á næstu
árum. Við hjá Lykli erum til
þjónustu reiðubúin að tryggja hag-
stæða fjármögnun slíkra tækja og
aðstoða þannig okkar fjölmörgu
viðskiptavinum að ná hámarks-
hagræðingu í sínum rekstri,“ segir
Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri
viðskiptasviðs Lykils sem er eina
sjálfstæða eignaleigufyrirtækið
hér á landi með yfir 30 ára sögu.
Þurfum að mæta sveiflum
Lykill býður fyrirtækjum fjöl-
breyttar leiðir til fjármögnunar
sem eru sniðnar að mismunandi
þörfum hvers og eins viðskipta-
vinar. Lykill býður til dæmis
hefðbundna kaupleigu og fjár-
mögnunarleigu auk rekstrarleigu
á smærri og stærri tækjum ásamt
Flotaleigu fyrir bíla fyrirtækja. Í
kaupleigu býður Lykill allt að 90%
fjármögnun af kaupverði, hvort
heldur er í íslenskum krónum eða
erlendri mynt. Í fjármögnunar-
leigu miðast fjármögnunarhlutfall
við allt að 80% af kaupverði tækis.
Lengd samningstíma er háð við-
komandi leigumun en algengur
samningstími er 36-60 mánuðir.
Í Flota- og rekstrarleigu Lykils
eru allir bílar og tæki fjármögnuð
100% en algengur leigutími er
12-36 mánuðir.
Árstíðabundnar sveiflur
„Í atvinnurekstri á Íslandi eru
gjarnan árstíðabundnar sveiflur,
ekki síst í byggingariðnaði, land-
búnaði og vegagerð. Það þýðir auð-
vitað að tæki getur staðið ónotað
svo vikum skiptir og skapar litlar
sem engar tekjur á meðan. Þessu
mætir Lykill með því að bjóða
sínum viðskiptavinum upp á
sveigjanlegar af borganir þannig
að greiðslur eru hærri þegar nóg er
að gera en lægri þegar tekjur lán-
taka dragast tímabundið saman.
Þetta kunna okkar viðskiptavinir
vel að meta.“
Margir góðir kostir
Fjármögnunarleiðir Lykils fyrir
fyrirtæki og rekstraraðila eru sex
talsins. Flotaleiga eykur öryggi
við rekstur bílaflota og stuðlar
að lækkun kostnaðar sem vinnst
með stærðarhagkvæmni Lykils.
Fjármögnunarleiga hentar til fjár-
mögnunar á vélum og tækjum til
atvinnurekstrar, en þó best þeim
sem vilja nýta sér hraðari gjald-
færslu á leigugreiðslum. Kaupleiga
hentar ekki síður til fjármögnunar
á vélum og tækjum til atvinnu-
rekstrar þar sem vélar og tæki eru
eignfærð í bókhaldinu og
samningurinn færður
sem skuld á móti.
Rekstrarleiga á bílum
eða atvinnutækjum
byggir á því að Lykill
kaupir ákveðinn
leigumun í samráði
við leigutaka sem
leigir leigumuninn í
fyrirfram ákveðinn
tíma og hefur fullan
umráðarétt yfir honum á
leigutímanum. Leigugreiðslur eru
gjaldfærðar og haldast óbreyttar
út leigutímann. Loks eru svo
Lykillán og Lykilsamningar en það
eru valkostir þegar kemur að fjár-
mögnun bíla. Hægt er að fá allt að
90% fjármögnun af kaupverði til
allt að sjö ára fyrir nýja bíla.
Þjónustufyrirtækið Lykill
Sverrir Viðar leggur áherslu á að
Lykill er fjármálafyrirtæki undir
eftirliti Fjármálaeftirlitsins en
lítur ekki síður á sig sem þjónustu-
fyrirtæki sem veitir snarpa og
úrræðagóða þjónustu til sinna við-
skiptavina. „Við tryggjum okkar
viðskiptavinum hagstæð kjör til
fjármögnunar á bílum og tækjum
og veitum ráðgjöf um bæði
fjármögnunartíma
og samningsform.
Hins vegar lítum
við svo á að okkar
hlutverki sé ekki
lokið þótt búið sé að
ganga frá samningi
í upphafi heldur
vinnum við áfram með
okkar kúnnum að ná
besta mögulega árangri í
rekstrinum, segir Sverrir
Viðar enn fremur.
Hjálpum við að ná árangri í rekstri
„Við hjá Lykli kappkostum að mæta sveiflum í tekjustreymi fyrirtæka með því að bjóða upp á
sveigjanlegar afborganir,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils.
Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils.
Höfuðstöðvar Lykils.
BÍLAR
B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 4 . J Ú N Í 2 0 1 9
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
7
-E
8
F
C
2
3
2
7
-E
7
C
0
2
3
2
7
-E
6
8
4
2
3
2
7
-E
5
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K