Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 14
hugsanir komu oft upp hjá mér og
þær eru enn til staðar.“
Mikil hræðsla og óvissa
Þegar Eydís er spurð hvort hún
hafi fengið hjálp á andlega sviðinu,
svarar hún því játandi. „Þarna
greip Ljósið inn í og hjálpaði mér
mjög mikið. Þau héldu þétt utan
um mig. Ég fann að ég var ekki ein
með svona hugsanir, þær væru
partur af þessu ferli og flestir
glíma við þær. Mér og fjölskyldu
minni var of boðslega vel tekið
hjá Ljósinu. Við ákváðum fljótt í
ferlinu að fara á kynningarfund
og starfsmenn Ljóssins settu strax
upp endurhæfingarprógramm
fyrir mig sem var frábært. Ég hitti
bæði iðju- og sjúkraþjálfara og
fékk gott plan sem hjálpaði mér
mikið. Það er ekki algengt að svona
ungar konur fái brjóstakrabba en
það gerist,“ segir Eydís Ása. Dóttir
hennar kom í heiminn á annan í
jólum, 26. desember síðastliðinn
og fékk nafnið Embla Marín. „Það
var dásamleg stund þegar ég fékk
hana í fangið, heilbrigða og fína.“
Sköllótt með
bumbu og eitt brjóst
Unnusti Eydísar, Garðar Örn
Arnarson, stóð eins og klettur við
hlið hennar allan tímann. Hann
fékk einnig aðstoð í Ljósinu ásamt
foreldrum Eydísar og systkinum.
„Það er alveg dásamlegt að ganga
inn í Ljósið þar sem allir eru til-
búnir að hjálpa manni. Ég vissi
ekkert hvað ég væri að ganga í
gegnum og það var svo gott að finna
að starfsfólkið hélt þétt utan um
mann. Ég fann fyrir styrk og fékk
góða fræðslu. Það var margt sem
ég vissi ekki, til dæmis að ég ætti
á hættu að fá sogæðabjúg þar sem
eitlarnir voru fjarlægðir. Ég mætti
í sérstakan hóp kvenna sem höfðu
gengið í gegnum brjóstnám. Það
var svolítið sérstakt að mæta þarna
með bumbuna út í loftið, eitt brjóst
og sköllótt. Mér var ótrúlega vel
tekið af öllum og það var passað vel
upp á mig. Ég fékk að fara í sogæða-
nudd sem gerði mér gott. Það hafði
ekki verið rætt við mig um hugsan-
legar afleiðingar fyrr en ég kom í
Ljósið og því mjög traustvekjandi
að hafa allt þetta fagfólk að leita til,“
segir hún.
Eydís segist mæla heilshugar
með því að allir sem greinist með
krabbamein og fjölskyldur þeirra
leiti til Ljóssins sem fyrst eftir
greiningu. Ég er fegin hversu fljótt
ég fór til þeirra. Ég var ekki búin
að missa hárið þegar ég fór fyrst.
Mér þótti gríðarlega erfitt að missa
hárið, augnhár og augabrúnir að
auki. Sú lífsreynsla tók mjög á mig.“
Meistaranámið bíður
Eydís og Garðar eru trúlofuð og
stefna á giftingu fljótlega. Dagurinn
hefur þó ekki verið ákveðinn. Eydís
er enn í meðferð og ætlar að halda
áfram að sækja Ljósið. „Erfiðasti
hjallinn er búinn en ég þarf að vera
á lyfjum í heilt ár. Ég er að reyna
að koma mér aftur af stað út í lífið
og gott að fá aðstoð við það. Lífið
gengur nokkuð vel hjá mér. Eftir
veikindaleyfi fer ég í fæðingarorlof,
verð heima að sinna dóttur minni.
Ég átti að vera að klára meistara-
nám í verkfræði en frestaði náminu
þegar veikindin komu upp. Það er
stórt og erfitt verkefni að veikjast
alvarlega auk þess að hugsa um
lítið barn. Öll mín orka núna fer
í að ná heilsu. Sem betur fer er
Embla Marín vær og góð, hún veit
að móðir hennar þarfnast mikillar
hvíldar.“
Lífssýnin breytist
Ljósið hefur verið til frá árinu 2002
og starfsemin hefur vaxið mikið.
Árið 2008 flutti starfsemin að Lang-
holtsvegi 43. Vegna fjölgunar þeirra
sem leita aðstoðar Ljóssins er fyrir-
hugað að stækka það. Um þessar
mundir er í gangi söfnun Ljósvina
til að hægt sé að bæta aðstöðuna á
Langholtsvegi. Eydís segist hvetja
fólk til að styrkja Ljósið og kynna
sér hvað þar fer fram. „Þetta er svo
ótrúlega flott starfsemi. Ég hugsa að
margir geri sér ekki grein fyrir öllu
því sem þarna er í boði og hversu
mikilvæg starfsemin er. Það er holl-
ur og góður matur í hádeginu. Kaffi
er alltaf á boðstólum og fólk getur
komið til að hitta aðra eða bara sest
niður í þessu dásamlega umhverfi.
Í boði eru alls kyns námskeið og
líkamsrækt. Þarna er bæði andleg
og félagsleg uppbygging. Ég er núna
á námskeiði fyrir nýgreindar konur
og þar eru margar á svipuðu róli og
ég. Einnig er ég í líkamsrækt,“ segir
Eydís sem ætlar að njóta sumarsins
með fjölskyldu sinni. „Lífssýnin
breytist mikið þegar maður greinist
með krabbamein. Þegar maður
horfist í augu við alvarleg veikindi
hættir maður að hugsa um litlu
hlutina sem skipta raunverulega
litlu máli í stóra samhenginu. Þótt
það sé skrítið að segja það þá breyta
veikindin manni í betri manneskju.
Maður fær algjörlega nýja sín á
lífið.“
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Eydís Ása greindist 26. júlí í fyrra, þá komin sextán vikur á leið með fyrsta barn. Hún
fann hnút í hægra brjósti og taldi
að um stíflaðan mjólkurkirtil væri
að ræða. „Ég fékk ljósmóður til að
þreifa á brjóstinu í mæðraskoðun
en hún kallaði á heimilislækninn
minn sem sendi mig áfram í
ómskoðun. Tveimur vikum síðar
var ég komin í brjóstnám. Mánuði
þar á eftir hófst lyfjameðferð,“
útskýrir Eydís. Hún er ekki með
hið arfgenga BRCA2 gen. „Ég er
bara svona einstaklega óheppin,“
segir hún.
„Krabbameinsæxlið var skorið
burt en það hafði dreifst í eitla.
Flestir eitlar í holhönd voru fjar-
lægðir. Ekki var fullkomlega vitað
hvort krabbameinið hefði dreift
sér víðar þar sem ekki var hægt að
rannsaka mig eins og venjulega
væri gert þar sem ég var barns-
hafandi. Í myndatöku nýlega sást
ekkert sem benti til þess og ég trúi
því að þetta sé búið,“ segir hún.
Sorg og gleði
„Meðgangan gekk ótrúlega vel.
Barnið dafnaði vel þrátt fyrir
lyfjameðferðina. Ég var svo heppin
að fá ekki miklar aukaverkanir
fyrir utan að missa hárið sem mér
þótti mjög erfitt. Ég gæti trúað að
meðgangan hafi veitt mér einhvers
konar verndandi áhrif. Að minnsta
kosti gekk allt mjög vel,“ segir
Eydís og bætir við að hún hafi upp-
lifað skrítnar tilfinningar þegar
áfallið reið yfir. „Það var gleði og
sorg sem börðumst um innan í
mér. Sorg vegna veikindanna og
gleði yfir væntanlegu barni.“
Eydís segist hafa orðið mjög
hrædd þegar uppgötvaðist að hún
væri með krabbamein. „Ég hugsaði
auðvitað mikið um það hvort ég
yrði alltaf til staðar fyrir ófædda
barnið mitt. Neikvæðar óvissu-
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Mikil hræðsla greip Eydísi þegar hún greindist með brjóstakrabbamein á meðgöngu. Hún fékk góða aðstoð og ráðgjöf hjá Ljósinu. FRETTABLAÐIÐ/ERNIR
Það var gleði og
sorg sem börðumst
um innan í mér. Sorg
vegna veikindanna og
gleði yfir væntanlegu
barni.
Eydís Ása Þórðardóttir
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
7
-D
A
2
C
2
3
2
7
-D
8
F
0
2
3
2
7
-D
7
B
4
2
3
2
7
-D
6
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K