Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 22
Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is KOSTIR OG GALLAR RANGE ROVER EVOQUE l 2,0 LÍTRA DÍSILVÉL l 240 HESTÖFL l FJÓRHJÓLADRIF Eyðsla frá: 8,3 l/100 km í bl. akstri Mengun: 215 g/km CO2 Hröðun: 11,0 sek. í 100 km hraða Hámarkshraði: 186 km/klst. Verð frá: 6.990.000 m. kr. Umboð: BL l Útlit l Torfærugeta l Aksturshæfni l Búnaður l Skert útsýni l Lítið farangursrými Af hverju að breyta því sem gott er? Það er ávallt spurn-ingin þegar ný kynslóð birtist af vel heppnuðum bílum, en Evoque er nú kominn af annarri kynslóð. Land Rover fyrirtækið fór þá leið með nýrri kynslóð Range Rover Evoque að breyta lítið heildarmyndinni. Þegar nánar er að gáð er samt enginn flötur bílsins eins. Þær breytingar sem gerðar hafa verið virðast allar til góðs og hafi bíllinn verið fágaður í útliti áður er hann baðaður í fágun nú. Slíkt getur verið erfitt í fram- kvæmd með smærri bíla, en tekst þó hér. Evoque er jú smæsti bíll Range Rover línunnar, sem státar í heild af fegurstu jeppaflóru heims að mati greinarritara. Útlitsein- kenni nýs Evoque koma greinilega frá stærri bróðurnum Range Rover Velar, sem í sem fæstum orðum er fallegasti jeppi heims, punktur og basta! Því kemur ekki á óvart þó svo Evoque hafi enn fríkkað, þó hann nái samt seint Velar. Nýr Evoque hefur ekki stækkað, enda væri slíkt ekki heppilegt fyrir bíl sem ætlaður er fyrir borgarum- ferðina að mestu. Hins vegar hefur bilið milli öxla aukist og hefur það verið nýtt í að auka við innanrými bílsins. Evoque af fyrstu kyn- slóð mátti fá aðeins með þremur hurðum og líka sem blæjubíl, en lítil eftirspurn eftir báðum þeim útfærslum gerir það að verkum að nú er aðeins ein gerð í boði, með 5 hurðum. Þrír skjáir í mælaborðinu Range Rover Evoque er lúxusbíll og því ætti það ekki að koma neinum á óvart að innanrýmið hans sé hrikalega vel búið og flott, en að auki er bíllinn hreinlega troðinn af nýjustu tækni. Til dæmis eru þrír skjáir í mælaborði bílsins. Flestir munu væntanlega velja Evoque með leðurinnréttingu og -sætum en þeir sem kjósa bílinn með tau- áklæði geta montað sig af því að það er einkar umhverfisvænt, því það er gert úr endurunnum plast- flöskum að hluta. Með þrjá skjái fer lítið fyrir tökkum og því er mælaborðið í senn naumhyggju- legt og framúrstefnulegt, allt í takt við flottan lúxusbíl. Ferlega vel fer um framsætisfarþega, en fyrir ekki stærri bíl en Evoque er eins gott að vera ekki af stærri gerðinni ef sitja á aftur í. Að þessu leyti er langt frá íverurými Evoque og t.d. stærri Land Rover bróðurins Discovery og fullvaxins Range Rover. Það á náttúrulega líka við um farangurs- rýmið, sem þó dugar þokkalega til ferðalaga. Mikið vélaúrval Eins og með svo marga BMW bíla og alla Volvo bíla, eru allar vélarnar sem í boði eru með 2,0 lítra sprengirými, en þó mis- öflugum. Dísilvélarnar eru D150, D180 og D240 og bensínvélarnar P200, P250 og P300 og það þarf Fullvaxinn minnsti bróðir Minnsti bróðirinn í Range Rover fjölskyldunni er nú kominn af annarri kynslóð og þó svo fagurt ytra útlitið hafi ekki mikið breyst er hér kominn gerbreyttur bíll með mikla torfærugetu. eiginlega ekki að giska á hver hestaflafjöldi þeirra er, það segir sig sjálft. Einstaklega skemmtilegt er að aka öflugustu gerðunum, þ.e. bæði D240 og P300. Hinar vélarnar eru svo sem engir letingjar heldur og kosta náttúrulega minna og eyða minna. Í öllum gerðum er tengt mild-hybrid kerfi sem er til aflaukningar og hjálpar helst til við upptöku bílsins úr kyrrstöðu. Allar vélarnar eru tengdar við 9 gíra sjálfskiptingu. Við akstur Evoque þarf eiginlega bara að stýra rétta línu, aksturskerfin sjá um að halda bílnum límdum á veginum. Í reynsluakstrinum sem fór fram í Grikklandi var boðið upp á heil- mikinn torfæruakstur til að sýna hversu bíllinn er hæfur til slíks aksturs. Ferlega fínn í torfærunum Segja má að það sé hreint til fyrir- myndar hve þessi annars minnsti bíll Range Rover er tilbúinn í tor- færurnar og hann ók ofan í árfar- vegum og upp brattar og grýttar malarbrekkur eins og enginn væri morgundagurinn. Auk þess er þessi bíll með 60 cm vaðdýpt, hreint magnað! „Ground View“- myndavélabúnaðurinn í Evoque er sér kapítuli en með honum má fá 180 gráðu sýn fram fyrir bílinn við erfið skilyrði og með honum má sjá eins og gegnum húddið á bílnum og því er allt fyrir framan bílinn sýnilegt. Ekki minnist greinarrit- ari þess að hafa séð svona magn- aðan búnað áður og hann kom að góðum notum í torfærunum. Ekki veitir samt af þessum búnaði því útsýni úr bíl með svona litla glugga eins og Evoque er með er ekki gott og síst gegnum afturrúðuna með aðstoð baksýnisspegilsins. Fjöðrun bílsins er frábær og alltaf líður ökumanni þannig að hann sé á sönnum lúxusbíl. Evoque er nátt- úrulega ekki síður á heimavelli á malbikinu og þar líður hann áfram hljóðlaust og lítt finnst fyrir hrað- anum sem hann á svo létt með. Rétt er að gæta sín á hraðatak- mörkunum, en hann var þó settur í 180 km hraða á réttum stað og fór létt með það. JLR hefur selt ógn og býsn af fyrstu kynslóð Evoque og þessi nýja kynslóð hans ætti bara að ýta þeim fjölda betur upp. Hér er sannur lúxusjeppi mættur, þó með magnaða torfærugetu og algjör töffari í útliti. Einstaklega skemmtilegt er að aka öflugustu gerð- unum, þ.e. bæði D240 og P300. Hinar vélarnar eru svo sem engir letingjar en kosta náttúrulega minna og eyða minna. 4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR 0 4 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 7 -E 8 F C 2 3 2 7 -E 7 C 0 2 3 2 7 -E 6 8 4 2 3 2 7 -E 5 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.