Fréttablaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 6
Til að virkja kortið
þarf að vera með
íslenska kennitölu.
Gunnar Gunn-
arsson, forstjóri
Perlu Norðursins
Til leigu
Gistiheimili
Staðsett miðsvæðis í Reykjavík, næg bílastæði .
Um er að ræða 18 mjög stór herb. tvö eldhús,
sex sturtur, sex salerni og tvö þvottaherb.
Er á tveimur hæðum og lyfta er í húsinu.
Allt nýtt og til afhendingar strax.
Upplýsingar veitir Jóhannes í s. 897-2025
og á js@atak.is
NEYTENDUR Gunnar Gunnarsson,
forstjóri Perlu norðursins leigu-
taka Perlunnar, hafnar því að verið
sé að gera upp á milli Íslendinga og
erlendra ferðamanna með vildar-
vinaklúbbi Perlunnar. Íslenska
kennitölu þarf til að skrá sig í
klúbbinn og fá þannig meðal ann-
ars ókeypis aðgang að útsýnispalli
Perlunnar.
Aðgangsgjaldið þar hækkaði
nýverið um rúm 80 prósent og
hefur sætt gagnrýni. Gunnar segir
klúbbakjör sem þessi tíðkast víða
og ekkert standi í vegi fyrir því að
erlendir ferðamenn verði sér úti um
íslenska kennitölu.
Ríkisútvarpið fjallaði í gær um
gagnrýni á hækkunina, úr 490 í 890
krónur, sem kom fram í Facebook-
hópnum Bakland ferðaþjónust-
unnar. Breki Karlsson, formaður
Neytendasamtakanna, gagnrýnir
hækkunina í samtali við Frétta-
blaðið. „Svona hækkanir eru annars
algjörlega úr takti og maður geldur
varhuga við þeim.“
Gunnar segir hins vegar að alltaf
hafi staðið til að hækka gjaldið,
enda leigutakinn í fullum rétti til
þess. Það hafi átt að gera í maí í fyrra
en því frestað vegna eldsvoðans í
apríl sama ár.
Hann segir útsýnispallana órjúf-
anlegan þátt í sýningunni „Undur
íslenskrar náttúru“ þar sem sett
hefur verið upp steinasafn úr fjalla-
hringnum sem gestir geti snert. Þá
hafi upplýsingaskilti verið sett upp
sem segja frá því hvað fyrir augum
ber. Útsýnisverð Perlunnar sé
sömuleiðis ekki hátt í samanburði
við útsýnisstaði annarra borga. Þús-
und krónur kosti í Hallgrímskirkju-
turn. Í Holmenkollen í Ósló kosti
1.970 krónur, í Eiffel-turninn kosti
3.500 krónur og Empire State-turn-
inn í New York 4.500 krónur svo fátt
eitt sé nefnt.
Reglulega hefur komið upp
umræðan um sérstök „Íslendinga-
verð“ í ferðaþjónustu þar sem
Íslendingar fá afslátt á meðan
erlendir ferðamenn greiði hærra
verð. Var Bláa lónið meðal ann-
ars gagnrýnt fyrir slíkt fyrir nokkr-
um árum en mismunun eftir þjóð-
erni er brot á reglum EES. Í Perlunni
mun meðlimum vildarvinaklúbbs
Perlunnar standa til boða að fá
ókeypis aðgang að útsýnispallinum.
Aðspurður hafnar Gunnar því að
um sé að ræða mismunun.
„Vildarvinakort Perlunnar er
fríðindaklúbbur eins og aðrir fríð-
indaklúbbar á Íslandi. Allir geta sótt
um að verða vildarvinir Perlunnar,
útlendingar sem Íslendingar. Til
að virkja kortið þarf að vera með
íslenska kennitölu.“
mikael@frettabladid.is
Túristar fái sér kennitölu fyrir
ókeypis útsýni úr Perlunni
Aðgangsgjald að útsýnispalli Perlunnar hækkað um rúm 80 prósent. Meðlimir í vildarklúbbi Perlunnar
fá frítt. Þarf íslenska kennitölu til að skrá sig. Forstjórinn hafnar því að verið sé að mismuna erlendum
ferðamönnum. Gjaldið sé lágt miðað við aðra útsýnisstaði en alltaf hafi staðið til að hækka gjaldið.
Perlan hefur gengist undir endurnýjun lífdaga og fær hátt í milljón gesti á ári. Útsýnispallurinn er vinsæll viðkomu-
staður en verðhækkun nýverið fór illa í einhverja. Aðgangsgjaldið hækkaði um rúm 80 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Færri umsóknir
en í fyrra
MENNTAMÁL Umsóknir í háskóla-
nám við Háskólann á Akureyri
eru eilítið færri en árið á undan.
Umsóknarfrestur í f lesta háskóla
landsins rennur út á morgun. Fyrstu
þriggja ára árgangar framhalds-
skóla útskrifuðust í fyrra, nú í vor
útskrifast síðustu tveir fjögurra ára
árgangarnir.
„Sprengingin kom í fyrra, þá
fengum við inn stærsta umsókn-
arárgang sem við höfum séð,“ segir
Katrín Árnadóttir, forstöðumaður
markaðs- og kynningarmála við
Háskólann á Akureyri. „Nú í ár
erum við á svipuðu róli og á sama
tíma í fyrra. Aðeins færri, en þó
mun fleiri en árið 2017.“
Í ár greip HA til þess ráðs að vera
með aðgangstakmarkanir. „Við
getum ekki tekið við alveg enda-
laust af fólki. Í viðskiptafræðideild
breyttum við æskilegum undanför-
um í nauðsynlega. En stúdentspróf
hafa algeran forgang,“ segir Katrín.
Allir sem uppfylla inntökuskilyrði
í nám í hjúkrunar-, sál- og lögreglu-
fræði geta hafið nám en aðeins þeir
sem komast í gegnum samkeppnis-
próf (klásus) geta haldið áfram á
vormisseri. - ab
Nú í ár erum við á
svipuðu róli og á
sama tíma í fyrra.
Katrín Árnadóttir
BRETLAND Donald Trump Banda-
ríkjaforseti kom í gær í opinbera
heimsókn til Bretlands ásamt Mel-
aniu eiginkonu sinni. Þau heim-
sóttu meðal annars Buckingham
höll þar sem þau hittu meðal annars
Elísabetu drottningu.
Trump sagði á Twitter frá því að
konungsfjölskyldan væri frábær
og sagði samband ríkjanna tveggja
mjög gott. Þá sagði hann að stór við-
skiptasamningur væri mögulegur
þegar Bretland hefði kastað af sér
hlekkjunum, og átti þar við útgöngu
Breta úr ESB.
Mótmæli hafa verið boðuð víða
í Bretlandi í tilefni þriggja daga
heimsóknar Bandaríkjaforseta.
Þannig hafa meðal annars verið
boðuð mótmæli í Lundúnum,
Manchester, Belfast og Birming-
ham.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaf lokksins, ákvað að snið-
ganga opinberan kvöldverð með
Trump. Þess í stað verður Corbyn
meðal ræðumanna á mótmæla-
fundi í Lundúnum.
Corbyn sagði að þátttaka í mót-
mælafundinum væri tækifæri til
að sýna samstöðu með öllum þeim
sem Trump hefði ráðist á í Banda-
ríkjunum og öllum heiminum. Vís-
aði hann sérstaklega til ummæla
Trumps um Sadiq Khan, borgar-
stjóra Lundúna.
Khan hafði sagt að Bretar ættu
ekki að rúlla út rauða dreglinum
fyrir Trump. Forsetinn brást við
með því að segja að Khan hefði
staðið sig hræðilega í embætti og
ætti frekar að einbeita sér að því að
uppræta glæpi í borginni en að tala
illa um mikilvægasta bandamann
Breta.
Í dag hittir Trump Theresu May
forsætisráðherra í Downingstræti
en búist er við því að þau ræði
meðal annars loftslagsbreytingar
og málefni kínverska tæknirisans
Huawei. - sar
Komu Trump til Bretlands mótmælt í stærstu borgum landsins
Trump hjónin hittu Karl Bretaprins og Camillu Parker. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Háskólinn á Akureyri.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍTALÍA Giuseppe Conte, forsætis-
ráðherra Ítalíu, hótaði afsögn sinni
í gær ef samstarfsflokkar hans tveir,
Norðurbandalagið og Fimm stjörnu
hreyfingin, hættu ekki endalausum
deilum sín í milli. Ef f lokkarnir létu
ekki af þessari hegðun yrði boðað
til nýrra kosninga.
Conte boðaði til fréttamanna-
fundar þar sem hann setti sam-
starfsflokknum þessa úrslitakosti.
Matteo Salvini, leiðtogi Norður-
bandalagsins, og Luigi Di Maio, leið-
togi Fimm stjörnu hreyfingarinnar,
brugðust hratt við og lýstu yfir
fullum stuðningi við ríkisstjórnina.
Báðir neituðu þeir þó að taka á sig
sökina á ástandinu.
Flokkarnir tveir hafa meðal ann-
ars deilt um innviðauppbyggingu,
innflytjendamál og jafnvel hverjum
ætti að kenna um nýlegt slys í Fen-
eyjahöfn þegar skemmtiferðaskipi
hlekktist þar á.
Deilurnar mögnuð-
ust ef t ir Ev rópu-
þingskosningarnar
í síðasta mánuði.
Þar fékk Norður-
ba nd a lag ið 34
prósent atkvæða
og tók fram úr
Fimm stjörnu
bandalaginu.
Ríkisstjórnin
glímir við efna-
hagserf iðleika
og gæti átt yfir
höfði sér viðurlög frá ESB vegna
brota á fjármálareglum sambands-
ins. Forsætisráðherrann
segir að slíkt yrði mjög
skaðlegt en hann telur
að breyta þurfi reglum
ESB. - sar
Forsætisráðherra Ítalíu hótar afsögn
Giuseppe Conte,
forsætisráðherra Ítalíu
4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
7
-F
7
C
C
2
3
2
7
-F
6
9
0
2
3
2
7
-F
5
5
4
2
3
2
7
-F
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K